Morgunblaðið - 28.02.2014, Síða 9
Gengið hefur verið frá samningum
í framhaldi af útboði byggingar-
réttar í Úlfarsárdal og Reynisvatns-
ási fyrir 504 milljónir króna. Önnur
lóðasala í fyrra nam 718 milljónum
króna og samtals voru því lóðir
seldar fyrir rúmar 1.200 milljónir
króna sem er yfir væntingum, sam-
kvæmt upplýsingum frá Reykjavík-
urborg.
Í útboðinu sem lauk síðasta sum-
ar bárust gild tilboð fyrir rúman
milljarð. Magnús Ingi Erlingsson,
lögfræðingur hjá skrifstofu eigna
og atvinnuþróunar Reykjavíkur-
borgar, segir á vef borgarinnar að
margar skýringar séu á þessum
mun tilboða og seldra lóða.
„Menn hætta við af ýmsum
ástæðum. Í sumum tilfellum var
fjármögnun ekki klár og einnig
gerðu sumir tilboð í margar eignir,
en ganga svo aðeins að hluta sam-
þykktra tilboða,“ segir Magnús.
Lóðir seldar í
Reykjavík fyrir
1,2 milljarða
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
7/8 lengd
Str. 34-46/48
kr. 14.900
Litir: galla og
svart
Komnar aftur :-)
buxurnar
Sunna Sæmundsdóttir
sunnasaem@mbl.is
Hefðarkötturinn Valdimar lifir í
góðu yfirlæti á hjúkrunarheimili
Hrafnistu í Kópavogi þar sem heim-
ilismenn dekra við hann öllum
stundum. Valdimar getur þó verið
óheppinn og þurfti á dögunum sjálf-
ur á hjúkrun á halda. „Það veitir
heimilismönnum ómælda gleði að
fylgjast með honum,“ segir Rebekka
Ingadóttir, deildarstjóri Hrafnistu.
Valdimar var ættleiddur á Hrafn-
istu frá Kattholti síðastliðið haust.
„Hann hafði verið þar í hálft ár og
enginn vitjað hans. Hann átti rosa-
lega bágt í fyrstu eftir að hann kom
til okkar og slapp meðal annars út
og týndist. Hér var öllu til tjaldað
við leitina en við náðum honum sem
betur fer aftur,“ segir Rebekka.
Hún segir Valdimar vera yndis-
legan kött sem njóti þess að vera
innan um fólkið á Hrafnistu.
„Hann fer bara inn á hvaða her-
bergi sem er og kemur sér fyrir
uppi í rúmi. Þau vilja stundum ekk-
ert trufla hann og gefa honum bara
plássið sitt. Einn einstaklingur sem
býr á deildinni lokar vanalega her-
bergi sínu þegar hann fer í mat, en
Valdimar fer alltaf og krafsar í hann
þar til hann kemur og opnar fyrir
honum,“ segir hún.
Þurfti sjúkraþjálfun eftir fótbrot
Rebekka segir Valdimar vera
óhappakött en hann fótbrotnaði um
daginn. „Allt í einu steig kötturinn
ekki í fótinn og þá þurfti auðvitað að
senda starfsmann af deildinni með
hann á dýraspítalann. Hann reynd-
ist vera brotinn og þurfti að fara í
gips greyið.“ Ekki var síður hugsað
um Valdimar en heimilismenn því
hann var hafður undir ströngu eft-
irliti og sendur í endurhæfingu.
„Sjúkraþjálfarinn okkar prófaði
að setja hann á bretti og hjól, en
hann var nú ekkert voðalega ánægð-
ur með það,“ segir Rebekka glettin.
„Að hafa dýr á hjúkrunarheimili er
ofboðslega gefandi, bæði fyrir þá
sem búa hér og vinna. Þeir sem ekki
eru hrifnir af köttum sleppa því
bara að sinna honum, en það er nú
reyndar þannig að allir eru orðnir
mjög hrifnir af honum Valdimar,
hvort sem þeir eru kattavinir eða
ekki.“
Fjölskrúðugt dýralíf
Dýralífið er fjölskrúðugt á Hrafn-
istu í Kópavogi, því ásamt Valdimari
búa þar einnig kötturinn Tinna kúr
og lítill páfagaukur. Þá bjó þar einn-
ig annar köttur áður en Valdimar
kom til sögunnar en sá fékk krabba-
mein.
„Það var mikil sorg þegar hann
drapst. Við erum með myndir af
honum uppi á vegg. Eftir að hann
fór spurði fólkið mikið hvort það
fengi ekki annan kött. Þá fengum
við Valdimar og þau eru svo ótrú-
lega ánægð með hann. Hér er vel
um hann hugsað og hann strýkur
sér upp við þau og situr löngum
stundum í fanginu á þeim,“ segir
Rebekka.
Kisi þurfti sjúkraþjálfun
Kötturinn Valdimar á Hrafnistu fótbrotnaði og þurfti á hjúkrun að halda
Ljósmyndir/Hrafnista
Í endurhæfingu Valdimar þurfti að fara í sjúkraþjálfun eftir fótbrot en hann kunni ekki sérlega vel við það.
Góðu vanur Valdimar lætur fara vel um sig á borði hjúkrunarfræðings.
Eitt tekur við af
öðru, þorrabjór-
inn hefur nýlega
runnið sitt skeið
og nú er páska-
bjórinn vænt-
anlegur í Vín-
búðirnar 5. mars.
Alls verða sjö
tegundir af
páskabjór í sölu þetta árið en þær
eru; Víking páskabjór, Páskakaldi
frá Bruggsmiðjunni, Víking Páska
Bock, Páskagull frá Ölgerðinni,
Gæðingur páskabjór, Jesús nr. 24
frá Borg og Þari páskabjór frá
Brugghúsi Steðja. Páskabjór verð-
ur í sölu fram til 19. apríl.
Páskabjórinn væntan-
legur í næstu viku
Aukablað alla
þriðjudaga