Morgunblaðið - 28.02.2014, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014
Fagleg þjónusta í 60 ár
Kringlan 4-12 • Sími 533 4533 • Finndu HYGEA á facebook
Færðu ekki nægan svefn, eldist húð þín of hratt?
Kynnum Advanced Night Repair.
Athugaðu hvað það getur gert fyrir þína húð.
Kaupaukinn þinn
DAGANA 28.FEBRÚAR- 5.MARS
Í HYGEA KRINGLUNNI
Glæsilegur kaupauki* fyrir þig ef þú verslar vörur frá Estée Lauder fyrir 6.900 eða meira
í Hygea Kringlunni dagana 28. febrúar-05. mars.
KAUPAUKINN INNIHELDUR:
Daywear Creme SPF 15 - dagkrem sem ver húðina, 15ml
Advanced Night Repair Eye - alhliða augnkrem, 5ml
Sumtuous Extreme Mascara - svartan maskara sem þykkir og lengir
Pure Color Eyeliner Duo - augnblýant, litir Blackened Cocoa og Blackened Black
Stress Relief Eye Mask - augnmaska sem lagar þrota og þreytu á augnsvæðinu
Pure Color Lipstick - varalit, fulla stærð, litur Sugar Honey
Pure Color Eyeshadow - 4 augnskugga í boxi
Smart snyrtitösku
* Meðan birgðir endast
Húsið að Þórunnarstræti 99 á Ak-
ureyri, sem hýsti upphaflega Hús-
mæðraskóla Akureyrar, öðlast nýtt
hlutverk 1. mars n.k. þegar þangað
flyst öll skammtíma- og skólavistun
fyrir fatlað fólk í bænum. Þessi
starfsemi hafði áður verið starf-
rækt á þremur stöðum á Akureyri,
þ.e.a.s. í Skólastíg 5, Árholti við
Glerárskóla og Birkilundi 10.
„Um mikla breytingu til batn-
aðar er að ræða í þjónustu við fatl-
að fólk á Akureyri því það telst
ótvíræður kostur að hafa alla starf-
semina á einum stað og úr Þórunn-
arstræti er einnig stutt í margskon-
ar afþreyingu sem fólkið nýtir
sér,“ segir í tilkynningu frá Ak-
ureyrarbæ.
Árið 2012 keypti Akureyrarbær
75% eignarhlut ríkisins í húsinu og
eignaðist það allt. Húsið er eitt af
kennileitum Akureyrar sem Guð-
jón Samúelsson húsameistari rík-
isins teiknaði. Önnur merk hús á
Akureyri eftir Guðjón eru Ak-
ureyrarkirkja og Barnaskóli Ak-
ureyrar (Rósenborg). Guðjón lauk
hönnun Húsmæðraskólans árið
1943. Byggingameistari hússins
var Stefán Reykjalín en smíðin
hófst 1944 og var húsið vígt 13.
október 1945.
Öll þjón-
usta undir
sama þaki
Húsmæðraskólinn Húsið teiknaði
Guðjón Samúelsson húsameistari.
Húsmæðraskólinn
fær nýtt hlutverk
Háhyrningurinn frægi, Tilikum,
mun að öllum líkindum ekki synda
um í sjónum við Ísland á næstu ár-
um. Líkt og greint hefur verið frá á
mbl.is barst sjávarútvegsráðuneyt-
inu fyrirspurn frá Tracy E.L. Pou-
red hjá Qualia Inc. um miðjan ágúst
á síðasta ári, en hún vildi sleppa há-
hyrningnum í hafið við Íslands-
strendur.
Samkvæmt upplýsingum frá ráðu-
neytinu virðist vera að Tracy hafi
ekki umboð til að senda fyrirspurn
eða beiðni sem þessa, en háhyrning-
urinn dvelur nú í dýragarðinum Sea
World í Bandaríkjunum. Málið er því
komið af borði Sigurðar Inga Jó-
hannssonar, sjávarútvegsráðherra.
Tilikum er sagður hafa verið
veiddur við Íslandsstrendur, nánar
tiltekið í Berufirði, árið 1983. Þá var
hvalurinn tveggja ára gamall og er
hann því 32 ára í dag. Tilikum hefur
drepið þrjár manneskjur, tvo þjálf-
ara og gest í dýragarði. Eftir þriðja
drápið sýndi Tilikum ekki listir sínar
í dýragarðinum SeaWorld í Orlando
fyrr en í mars árið 2011.
Þjálfarar hans hafa ekki verið með
honum í vatninu eftir síðasta drápið
árið 2010 og er sérstakur búnaður
notaður til að nudda hann í stað
snertingar þjálfarans. Háhyrningur-
inn hefur getið af sér 21 afkvæmi og
eru ellefu þeirra á lífi.
larahalla@mbl.is
Tilikum ekki væntanlegur
Ljósmynd/Wikipedia
Sýning Háhyrningurinn Tilikum á sýningu í SeaWorld árið 2009.
Málið komið af borði ráðherra Tracy E.L. Poured hafði
ekki umboð Háhyrningurinn verður áfram í Sea World
Föstudaginn 28. febrúar efnir
Rannsóknastofnun í jafnrétt-
isfræðum við HÍ til málþings um
reynslu og þátttöku kvenna í sveit-
arstjórnum. Málþingið ber yf-
irskriftina „Að eiga orðið“ og fer
fram kl. 14.00–16.00 í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafns Íslands.
Málþingið er haldið í tilefni af
sveitarstjórnarkosningunum í maí
n.k. Erindi flytja Kristín Ástgeirs-
dóttir, framkvæmdastýra Jafnrétt-
isstofu, Eygló Harðardóttir, félags-
og húsnæðismálaráðherra, Auður
Styrkársdóttir, stjórnmálafræð-
ingur, Bergljót Þrastardóttir, sér-
fræðingur hjá Jafnréttisstofu og
Rósa G. Erlingsdóttir, stjórnmála-
fræðingur.
Að loknum erindum taka við pall-
borðsumræður með þátttöku
kvenna sem bjóða sig nú fram til
setu í sveitarstjórnum.
Málþing um
þátttöku kvenna
í sveitarstjórnum