Morgunblaðið - 28.02.2014, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 28.02.2014, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014 26 feb.- 1. mars af öllum barnavörum 30 % afsláttur 2 fyrir 1 af barnafatnaði Íslensk hönnun 100% Hágæða Bómull Barnadagar Lín Design Laugavegi 176 og Glerártorgi www.lindesign.is Sími 533 2220 Vöggusett Verð frá: Börnin fá gefi ns 70x100 4.193 kr Bangsarúmfö t Rúmföt 100x140 Verð frá: 5.243 kr Búið er að breyta fyrirkomulagi mataraðstoðar hjá Fjölskylduhjálp Íslands sem hefur aðsetur í Breið- holti í Reykjavík. Allri aðkomu og fyrirkomulagi hefur verið breytt til að auðvelda einstaklingum og fjölskyldufólki heimsóknir. „Nú upplifir fólk sig í matvöruverslun, þegar það leitar sér aðstoðar, þar sem viðkomandi velur sér þau matvæli sem henta. Skjólstæðingar voru mjög ánægðir við fyrstu sjálfsafgreiðslu- úthlutunina,“ segir í frétt frá Fjöl- skylduhjálpinni. Áður var það fyrirkomulag hjá Fjölskylduhjálpinni að matvæli voru sett í poka sem skjólstæðingar fengu svo afhenta. Fjölskylduhjálpin úthlutar mat- vælum á miðvikudögum. Úthlutun Nýja fyrirkomulagið er eins og tíðkast í flestum matvöruverslunum. Breytt fyrirkomulag hjá Fjölskylduhjálp Dr. Haukur Arnþórsson heldur op- inn hádegisfyrirlestur í stofu 132 í Öskju, Háskóla Íslands, föstudag- inn 28. febrúar kl. 12.00-13.15 Fyrirlestur Hauks ber heitið „Upplýsingasamfélag framtíðar: tækifæri og hættur“. Í fyrirlestr- inum er fjallað um hvernig upplýs- ingasamfélag framtíðarinnar gæti litið út, þar á meðal hvað einkennir opið upplýsingasamfélag og hvert við erum komin, segir í kynningu. En einnig um hættur netsins sem eru til dæmis aukið eftirlit með net- heimum. Að lokum verða fyr- irspurnir og umræður. Haukur Arnþórsson er doktor í rafrænni stjórnsýslu frá HÍ og á að baki langa starfsreynslu á sviði raf- ræns lýðræðis og stjórnsýslu. Hættur og tækifæri upplýsingasamfélags Fjallað verður um nýtingu erfða- upplýsinga í heilbrigðisþjónustu í málstofu Siðfræðistofnunar í stofu 101 í Lögbergi föstudaginn 28. febrúar kl. 12-13.30. Erindi flytja Kári Stefánsson for- stjóri Íslenskrar erfðagreiningar, Magnús Karl Magnússon prófessor við læknadeild HÍ, Hörður Helga- son settur forstjóri Persónuvernd- ar og Salvör Nordal, forstöðumað- ur Siðfræðistofnunar. Fundurinn er öllum opinn. Rætt um nýtingu erfðaupplýsinga STUTT Sunna Sæmundsdóttir sunnasaem@mbl.is Áhugi á skiptinámi hefur aukist verulega á síðastliðnum árum, bæði meðal íslenskra háskólanema sem nýta sér tækifærið til þess að leggja stund á nám í erlendum háskólum og þeirra erlendu nema sem hingað koma í skiptinám. Á síðastliðnum tíu árum hefur er- lendum skiptinemum við Háskóla Íslands fjölgað úr 52 í 463. „Við finn- um mikið fyrir því að áhuginn á Ís- landi sé að aukast. Margir skipti- nemar koma til Íslands vegna menningarinnar, þeir eru búnir að kynna sér íslenskar bókmenntir og hljómsveitir og virðast þekkja vel til landsins,“ segir Harpa Sif Arnars- dóttir, verkefnastjóri á skrifstofu al- þjóðasamskipta í HÍ. Sækja í jarðfræði Þá segir hún Ísland vera vinsælan kost meðal jarðfræði- og raunvís- indanema, sem koma vegna sérstöðu landsins fyrir rannsóknir. Þjóðverja segir hún vera sérlega hrifna af landinu. „Það eru fleiri sem koma hingað en við sendum út. Skiptinem- arnir auðga andann í skólanum og koma inn með nýja þekkingu og sýn í verkefni sem þeir vinna með ís- lenskum nemendum.“ Háskóli Íslands á í samstarfi við um 500 háskóla á ólíkum sviðum í flestum heimsálfum. Harpa segir fjölbreytni vera það sem helst megi græða á skiptinámi. „Við hvetjum nemendur til þess að velja námskeið sem ekki eru í boði á Íslandi þannig geti þeir skapað sér sérstöðu sem framtíðar starfskraftar. Okkar til- finning er sú að þetta sé eitthvað sem vinnuveitendur leita eftir,“ seg- ir Harpa. Hún segir marga nemendur sjá sér leik á borði og sækja um skipti- nám í dýrum skólum, þar sem gesta- skólinn felli skólagjöldin niður fyrir skiptinema. Námið kosti þá ekkert, sé nemandi skráður við Háskóla Ís- lands. „Þetta tryggir að vissu leyti jafnan aðgang að námi, þar sem margir hafa ef til vill ekki fjár- hagsleg tök á því að fara í nám er- lendis séu þeir á eigin vegum.“ Fjárhagsstyrkir í boði Fjárhagsstyrkir eru í boði fyrir nemendur og segir Harpa þá ekki einungis vera fyrir afburðanem- endur. „Það er ekki gerð krafa um meðaleinkunn og langflestir komast að. Aðstaða íslenskra nemenda er þannig að plássin eru fleiri en nem- endur. Það er því hægt að segja að viljinn sé allt sem til þarf.“ Innan Evrópu segir hún flesta sækjast eftir að fara til Bretlands og Norðurlandanna þótt önnur lönd séu einnig í vexti. „Það hefur alltaf verið vinsælt að fara til Evrópu, en stór hópur nemenda er nú að fara til Asíu og Bandaríkjanna auk þess sem margir sólarþyrstir halda til Spánar eða Ítalíu.“ Morgunblaðið/Golli Kynning Skiptinemar við Háskólann í Reykjavík kynna mat frá heimalönd- um sínum á alþjóðadegi í skólanum fyrir nokkrum árum. Skiptinámssam- starf við 500 skóla Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Aðdragandi mótmælafunda er oft mjög skammur. Boðum er komið í gegnum samfélagsmiðla og sé hljóm- grunnur fyrir aðgerðum eða fundum eru hlutirnir oft fljótir að gerast. Starf okkar tekur mið af þessu,“ seg- ir Arnar Rúnar Marteinsson, aðal- varðstjóri lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu. Fjöldi fólks hefur mótmælt á Austurvelli síðustu daga, það er látið í ljós andstöðu sína við þær ákvarð- anir í Evrópumálum sem stjórnvöld hafa tekið. Talið er að yfir 3.000 manns hafi verið á svæðinu á mánu- dag, en færri eftir því sem liðið hefur á vikuna. Allstór hópur lögreglu- manna hefur verið í miðbænum vegna þessa, undir forystu Arnars Rúnars Marteinssonar sem hefur sérþjálfun í mannfjöldastjórnun. Upplausnin var lærdómsrík „Við fregnuðum fyrst á sunnu- dagskvöld að eitthvað stæði til. Slíkt var þá bara veruleiki sem þurfti að vinna samkvæmt,“ segir Arnar Rún- ar. Hann segir að síðustu ár hafi lög- regluliðinu aflast ágæt þekking á því hvernig best sé að haga gæslu, t.d. á Austurvelli, þegar eitthvað er á seyði. Upplausnarástandið í upphafi árs 2009 hafi verið lærdómsríkt. Í kjölfar þess hafi t.d. verið keyptar færanlegar girðingar sem settar séu upp við Alþingishúsið ef þarf. „Við lesum svolítið í hópinn hverju sinni og löggæslan fer eftir því,“ seg- ir Arnar Rúnar. „Þrátt fyrir tals- verðan fjölda fólks á Austurvelli síð- ustu daga hefur þetta verið mjög friðsamt, þótt einstaka ólögráða ungmenni hafi farið út af sporinu. Al- mennt er ástandið mjög gott og við höfum til taks góðan og vel þjálfaðan mannskap. Aðgerðir í fáa daga eru ekkert mál en standi þær í marga daga þarf að hugsa málin upp á nýtt.“ Morgunblaðið/Golli Austurvöllur Mótmæli við Alþingi fjórða daginn í röð vegna Evrópuumræðunnar á Alþingi. Lesum svolítið í hópinn  Mótmælt í miðborginni og margir lögreglumenn á svæðinu  Fréttu fyrst á sunnudagskvöld  Lærdómur frá 2009 Barátta Fólki fyrir utan Alþingi fækkaði með hverjum deginum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.