Morgunblaðið - 28.02.2014, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 28.02.2014, Qupperneq 25
FRÉTTASKÝRING Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Arion banki greiddi 28% meira í tekju- og bankaskatta í fyrra en árið 2012. Alls greiddi bankinn sex millj- arða króna í tekju- og bankaskatta í fyrra, samanborið við 4,7 milljarða króna á árinu 2012. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir að „stórkostleg aukning á op- inberum álögum“ setji mark sitt á uppgjör bankans. Eins og greint var frá í Morg- unblaðinu í gær nam hagnaður bankans 12,7 milljörðum króna eftir skatta í fyrra, borið saman við 17,1 milljarð króna árið 2012. Fram kem- ur í ársreikningi bankans að stjórnin leggi það til að 60% af hagnaði árs- ins verði greidd út sem arður í ár. Fram kom í máli Stefáns Péturs- sonar, framkvæmdastjóra fjármála- sviðs bankans, á fundi með blaða- mönnum í gær að bankinn hefði greitt 3.143 milljónir króna í tekju- skatt í fyrra, samanborið við 3.633 milljónir króna árið 2012. Tekju- skattur, eins og hann er settur fram í ársreikningnum, samanstendur af 20% tekjuskatti af hagnaði og 6% sérstökum fjársýsluskatti sem lagð- ur er á hagnað fjármálafyrirtækja umfram einn milljarð króna. Virkt tekjuskattshlufall lækkaði aðeins á milli ára. Það var 18,0% í fyrra en 17,2% árið 2012. Þá nam bankaskatturinn 2.872 milljónum króna í fyrra en aðeins 1.062 milljónum króna árið 2012. Stjórnvöld margfölduðu enda skatt- hlutfallið undir lok árs 2013 til að fjármagna áform sín um skuldaleið- réttingar verðtryggðra húsnæðis- lána. Hlutfallið fór úr 0,1285% í 0,376% en skatturinn leggst á heild- arskuldir fjármálafyrirtækja. Höskuldur benti á að skuldirnar væru fyrst og fremst innlán einstak- linga og fyrirtækja og því mætti segja að skatturinn væri að miklu leyti skattur á innlán. Sem slíkur myndi hann hafa neikvæð áhrif á þau kjör og þjónustu sem fjármála- fyrirtæki geta boðið viðskiptavinum sínum. Auk tekjuskatts, hins sérstaka fjársýsluskatts og bankaskatts greiða fjármálafyrirtæki einnig 6,75% fjársýsluskatt af launum starfsmanna. Um er að ræða tiltölu- legan nýjan skatt en bankinn greiddi 599 milljónir króna í hann í fyrra en 466 milljónir árið 2012. Drómalánin höfðu sitt að segja Athygli vekur að útlán til við- skiptavina jukust um tólf prósent milli ára og námu í lok árs 2013 636 milljörðum króna. Ný útlán jukust um heil sextíu prósent milli ára og námu tæplega 120 milljörðum króna í lok ársins. Fram kom á blaða- mannafundinum að aukningin í út- lánum til viðskiptavina hefði einkum skýrst af nýjum lánum sem bankinn tók yfir í tengslum við samning milli Arion banka og Eignasafns Seðla- banka Íslands um uppgjör á hinu svokallaða Drómaskuldabréfi. Lán til einstaklinga vógu um 49% af heildarlánum til viðskiptavina í árs- lok en Höskuldur sagði að þetta hlutfall hefði verið um 25% árið 2010. Á sama tíma hefur hlutdeild bank- ans í nýjum útlánum á íbúðalána- markaði aukist verulega og er hann þar enn í forystuhlutverki. Markmið bankans er að hafa lánabókina í jafnvægi þannig að dreifingin sé nokkuð jöfn á milli atvinnugreina. Vandræðalán bankans, sem eru annaðhvort með sértæka niður- færslu eða í yfir níutíu daga van- skilum en hafa ekki verið niðurfærð, héldu áfram að lækka frá því að þau náðu hámarki árið 2010. Hlutfall vandræðalána af útlánasafni bank- ans var 6,3% undir lok árs 2013 en 53,8% árið 2010. Stefán sagði að markmiðið væri að ná hlutfallinu undir 5%. Markmiðinu hefði jafn- framt verið náð ef ekki hefði verið fyrir Drómalánin sem bankinn tók yfir. Sé ekki litið til þeirra var hlut- fallið 4,5% í árslok 2013. Greiddi 28 prósentum meira í skatt Morgunblaðið/Kristinn Banki Hagnaður Arion banka dróst saman um 4,4 milljarða frá árinu 2012.  Arion banki greiddi sex milljarða króna í tekju- og bankaskatta í fyrra  Það er 28% aukning frá 2012  Alls greiddi hann 2.872 milljónir í bankaskatt í fyrra samanborið við 1.062 milljónir árið 2012 Nýskráningar » Greiningardeild Arion banka telur líklegt að bankinn muni standa að fjórum nýskrán- ingum í Kauphöll í ár. » Fyrirtækin sem um ræðir eru Eik, HB Grandi, Reitir og Síminn. » Áður hafði bankinn fleytt Högum á markað. » Þá telur greiningardeildin líklegt að Advania, Promes og Sjóvá verði skráð á markað. » Framboð á útgefnu hlutafé gæti aukist um 68 milljarða. FRÉTTIR 25Viðskipti | atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014 VELKOMINN Í BATA SMÁRALIND BARNASKÓR - Skoðið úrvalið á bata.is Vertu vinur á Barnaskór 6.990,- Barnaskór 6.990,- Barnaskór 6.990,- Blikk ljósa skór 4.990,- Blikk ljósa skór 4.990,- Blikk ljósa skór 4.990,- Blikk ljósa skór 4.990,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.