Morgunblaðið - 28.02.2014, Qupperneq 43
Á námsárunum var Fríða María
þjónn, m.a. á Hótel Borg og vann í
versluninni Borð fyrir tvo.
Farðar fyrir tísku og tónleika
Fríða María hefur starfað sjálf-
stætt við förðun frá 1998. Í upphafi
vann hún jafnframt við leikhús, hjá
Loftkastalanum 1999-2000, og við
Þjóðleikhúsið 2000-2005, en hefur
síðan starfað alfarið á eigin vegum.
Fríða María hefur starfað mest
við auglýsingar. Auk þess sinnir
hún verkefnum er lúta að tísku og
við tónlistarmyndbönd, kvikmyndir
og sjónvarpsþætti.
Kvikmyndir sem Fríða María
hefur hannað förðun og hár-
greiðslu fyrir eru Mamma Gógó og
Desember. Auk þess hefur hún séð
um förðun fyrir sjónvarpsþættina
Allir litir hafsins og Tími norn-
arinnar. Hún hefur einnig sinnt
verkefnum við tökur á erlendu
kvikmyndunum Journey to the
Center of the Earth og Hostel
Part II.
Fríða María hefur, ásamt Guð-
björgu Huldísi Kristinsdóttur, haft
yfirumsjón með förðun fyrir
Reykjavík Fashion Festival und-
anfarin tvö ár og sinnir því starfi
aftur nú í næsta mánuði. Þá hefur
hún unnið í síauknum mæli við
förðun fyrir hina ýmsu tónleika,
s.s. Jólagesti Björgvins; Minning-
artónleika Ellýjar Vilhjálms og Af-
mælistónleika Eimskips, og mun
farða fyrir KÍTÓN-tónleikana í
Hörpunni sem haldnir verða nú um
helgina.
Fríða María var tilnefnd til
Eddu verðlauna fyrir förðun við
myndina Mamma Gógó.
Allt er best í hófi
Fríða María og fjölskyldan
ganga töluvert á fjöll og fara á
skíði: „Ég er nú ekkert að missa
mig í fjallgöngum og skíðabruni.
Reyndar er eiginmaðurinn drif-
krafturinn á þessum sviðum en ég
tek þátt í hvoru tveggja og legg
mikið upp úr hreyfingu almennt.
Ég er auk þess í hlaupahópi á veg-
um Ármanns, stunda Zumba sem
er dansleikfimi og held mér í formi
í Hreyfingu heilsulind.
Að öðru leyti hef ég áhuga á
menningu og listum eins og flestir
aðrir og leggst í góðar bækur,
einkum yfir vetrartímann.“
Fjölskylda
Eiginmaður Fríðu Maríu er Al-
bert Þorbergsson, f. 19.1. 1974,
landfræðingur er starfar á um-
hverfis- og skipulagssviði Reykja-
víkurborgar.
Foreldrar hans eru Ester Al-
bertsdóttir, f. 29.4. 1945, og Þor-
bergur Guðmundsson, f. 27.9. 1940,
sölustjóri Suzuki á Íslandi. Þau eru
búsett í Reykjavík.
Börn Fríðu Maríu og Alberts
eru Sunneva Líf Albertsdóttir, f.
1.9. 1998, og Þorgeir Atli Alberts-
son, f. 2.3. 2003.
Bróðir Fríðu Maríu er Ingi B.
Poulsen, f. 20.7. 1980, umboðs-
maður borgarbúa í Reykjavík.
Foreldrar Fríðu Maríu eru Mar-
entza Poulsen, f. 10.11. 1950, smur-
brauðsjómfrú sem starfrækir veit-
ingahúsið Café Flóru í
Grasagarðinum, og Hörður Hilm-
isson, f. 12.12. 1947, sem starfaði
lengst af sem rafvirki. Þau eru bú-
sett í Reykjavík.
Úr frændgarði Fríðu Maríu Harðardóttur
Fríða María
Harðardóttir
Fredricka María Gunnarstein
húsfr. í Færeyjum
Jákob Juul Gunnarstein
sjóm. í Vaag í Færeyjum
Fridrikka Maria Poulina Gunnarstein
veitingak. í Færeyjum
Jóhann Hendrik Poulsen
sjóm. og vélstj. í Færeyjum, síðar í Rvík
Marentza Sunneva Poulsen
veitingak. í Rvík
Marentza Poulsen
húsfr. í Færeyjum
Sigurd Polulsen
í Búri í Færeyjum
Ingveldur Jónsdóttir
húsfr. í Vestmannaeyjum
Einar Björn Sigurðsson
verslunarm. í Vestmannaeyjum
Alda Björnsdóttir
myndlistarkona í Vestmannaeyjum
Hilmir Högnason
rafvirki í Vestmannaeyjum
Hörður Hilmisson
rafvirki í Rvík
Guðný Magnúsdóttir
húsfr. í Vestmannaeyjum
Högni Sigurðarson
kennari íshússtj. og útvegsb. í Vestmannaeyjum
Á skíðum Fríða María og Albert í
Austurríki í síðasta mánuði.
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014
Guðrún Halldórsdóttir, for-stöðumaður NámsflokkaReykjavíkur, fæddist í
Reykjavík 28.2. 1935 og ólst upp í
Bjarmahlíð í Laugarásnum. For-
eldrar hennar voru Halldór Jónsson
trésmiður og k.h., Þorbjörg Jóns-
dóttir húsfreyja.
Halldór var sonur Jóns Ólafs
Ólafssonar, bónda á Másstöðum í
Vatnsdal, bróður Ingibjargar Óskar
Ólafsson, aðalframkvæmdastjóra
KFUM og K á Norðurlöndum. Móð-
ir Halldórs var Guðrún Ólafsdóttir,
systir Maríu, langömmu Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur, fyrrv. borg-
arstjóra og ráðherra.
Guðrún lauk stúdentsprófi frá MR
1955, las íslensk fræði, lauk kenn-
araprófi frá KÍ 1962 og BA-prófi í
dönsku og sagnfræði frá HÍ 1967.
Guðrún starfaði við Landsbank-
ann um árabil, var kennari við Lind-
argötuskóla í 10 ár og forstöðumað-
ur Námsflokka Reykjavíkur
1972-2005.
Guðrún styrkti mjög Námsflokk-
ana og beitti sér fyrir starfsmenntun
og réttindum ýmissa láglaunastétta,
m.a. á sviði heilbrigðisþjónustu. Þá
vann hún mikið starf í þágu flótta-
fólks og nýbúa. Hún var sannkall-
aður menntafrömuður og einlægur
málsvari þeirra sem minnst mega
sín.
Guðrún átti þátt í stofnun Félags
dönskukennara, Skálholtsskóla-
félagsins og Íslenska dyslexíufélags-
ins, starfaði í Soroptimistaklúbbi
Reykjavíkur, Delta-Kappa-Gamma
– félagi kvenna í fræðslustörfum, tók
þátt í störfum Kvennaframboðsins
og Kvennalistans og var alþm.
Kvennalistans 1990-91 og 1994-95 en
sat auk þess á þingi sem vþm., alls á
átta þingum.
Guðrún var sæmd riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu, hinni
dönsku Dannebrogorðu, hlaut verð-
laun Íslensku menntasamtakanna
og heiðursverðlaun Samfélags-
verðlauna Fréttablaðsins. Henni til
heiðurs var svonefndur Guðrún-
arsjóður stofnaður af Reykjavík-
urborg við starfslok hennar 2005.
Æviminningar Guðrúnar, Að opna
dyr, komu út 2006, skráðar af Hildi
Finnsdóttur. Guðrún lést 2.5. 2012.
Merkir Íslendingar
Guðrún Halldórsdóttir
95 ára
Magnús Stefánsson
85 ára
Sigurbjörg Kristjánsdóttir
Sigurður Björnsson
Sigurður Ingvi Ólafsson
80 ára
Gísli Vilhjálmur Ákason
Guðrún Thorarensen
Jóna Kortsdóttir
Sverrir Sigurjónsson
Unnur Ingibjörg Helgadóttir
75 ára
Bára Einarsdóttir
Guðný Jónsdóttir
Helga Aðalsteinsdóttir
Svava Lúðvíksdóttir
70 ára
Bergljót Aðalsteinsdóttir
Eygló Einarsdóttir
Jón Ragnar Austmar
Kristín G. Ísfeld
Rut Hansen
Valgerður Gísladóttir
60 ára
Bryndís Snorradóttir
Emil Haraldsson
Guðbjörg Kr.
Steingrímsdóttir
Gunnjóna S. Hringsdóttir
Kristján Kristjánsson
Pétur Ármann Jóhannsson
Sigurður Jónsson
50 ára
Anna Níelsdóttir
Anna Sigríður
Jóhannsdóttir
Ása Hrönn Kolbeinsdóttir
Bergþór Gunnarsson
Einar Ármann Harðarson
Eyþór Hauksson
Helena Leifsdóttir
Inga Hildur Yngvadóttir
Líney Edda Reynisdóttir
Magnús G. Gunnarsson
María Ingibjörg
Kjartansdóttir
Nada Borosak
Paulo Jorge R.C. De Barros
Rúnar Harðarson
Sigurlín Jóna Baldursdóttir
Skúli Jónsson
Stefanía Ástvaldsdóttir
Steinunn I. Stefánsdóttir
Steinunn M. Sigurðardóttir
Úlfar Ormarsson
40 ára
Berglind Brynjólfsdóttir
Bjarki Gunnarsson
Bryndís Baldvinsdóttir
Einar Guðnason
Guðrún Tryggvadóttir
Hlynur Guðmundsson
Koen Kjartan Van de Putte
30 ára
Aldís Tryggvadóttir
Arnar Söebech Pálmarsson
Frejelene Gersanib Palada
Hafþór Björnsson
Hafþór Guðmundsson
Heiðar Sigtryggsson
Hergina Dela Cruz
Hilmarsson
Hjördís Heiða Björnsdóttir
Kamila Monika Suplicka
Katarzyna Mickiewicz
María Birgisdóttir
Steingrímur Jón
Steingrímsson
Til hamingju með daginn
30 ára Jón ólst upp á
Seyðisfirði, býr í Reykja-
vík og er nú í meist-
aranámi í húsamálun.
Maki: Agnetha Thomsen,
f. 1987, nemi í sálfræði.
Börn: Helga Hafdal, f.
2007, og Huginn Hafdal,
f. 2011.
Foreldrar: Vigdís Helga
Jónsdóttir, f. 1959, fisk-
verkunarkona og lista-
maður, og Sigurður
Hauksson, f. 1957, véla-
maður.
Jón Hafdal
Sigurðarson
30 ára Eydís ólst upp á
Fáskrúðsfirði, býr þar,
lauk prófum frá CBS í
Kaupmannahöfn og er að
ljúka fæðingarorlofi.
Maki: Steinar Grét-
arsson, f. 1978, sjúkra-
flutningam. og vélstjóri.
Börn: Auðunn Þór Stein-
arsson, f. 2004 (stjúp-
sonur) og Aníta Rós
Steinarsdóttir, f. 2012.
Foreldrar: Áslaug Jóns-
dóttir, f. 1948, og Heimir
Hjálmarsson, f. 1946.
Eydís Ósk
Heimisdóttir
30 ára Jóhanna ólst upp í
Mosfellsbæ, býr í Kópa-
vogi, er hjúkrunarfræð-
ingur og stundar nú ljós-
mæðranám við HÍ.
Maki: Jón Ingi Jónsson, f.
1983, flugumferðarstjóri.
Dóttir: Lára Aðalbjörg
Jónsdóttir, f. 2010.
Foreldrar: Hafsteinn
Pálsson, f. 1952, bygg-
ingaverkfræðingur hjá
umhverfisráðuneyti, og
Lára Torfadóttir, f. 1956,
kennari.
Jóhanna Rut
Hafsteinsdóttir
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ -ÞAÐ ER TENGI
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
GÆÐA STÁLVASKAR!
ELDHÚSVASKAR Í ÚRVALI
1 1/2 hólf með borði stærð:
100x50 cm VERÐ: 28.500,-
Þykkt:
0,7 mm
Þykkt:
0,7 mm
1 hólf með borði stærð: 79x50 cm
VERÐ: 21.499,-