Morgunblaðið - 28.02.2014, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 28.02.2014, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert bjartsýn/n varðandi fyr- irætlanir þínar í dag. Gott ráð er að leita skjóls hjá trúnaðarvini sem þarf engin láta- læti, þið finnið lausn með samræðum ykk- ar. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er kominn tími til að slaka á og taka því rólega. Þú þarft kannski að toga í spotta bakvið tjöldin, en ferð ekki yfir strikið í siðferðilegum skilningi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Gættu þess að lofa ekki upp í ermina í ákafa þínum til þess að leggja vini lið. Lausnin er falin í því að halda fé- lagslegu jafnvægi. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Til þín verður leitað í sambandi við lausn á viðkvæmu vandamáli. Sána eða gufubað hjálpar þér við að leysa upp og sleppa gamalli bræði. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Finnist þér of miklar kröfur vera gerðar til þín gæti það reynst þér nauð- synlegt að komast í burtu um tíma. Farðu þér því hægt og leitaðu ráða. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hegðar þér óaðfinnanlega. Ef þú gengur endalaust á orku þína muntu brenna út og þá verðurðu engum til gagns. 23. sept. - 22. okt.  Vog Samræður við vini verða spennandi og uppörvandi í dag. Láttu þér ekki til hug- ar koma að framkvæma hluti, sem þú ert innst inni alfarið á móti. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú vekur athygli annarra og finnst notalegt að láta hana leika um þig. Svona atburðir eru gjöf og merki um að þú sért á réttri leið. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er rétt að gangast við mis- tökum sínum og taka afleiðingunum af þeim. Fólk breytist og þú ert líka „fólk“. Farðu í göngutúr og hreinsaðu hugann. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú verður að geta staðið við þau loforð, sem þú gefur. Láttu reyna á hugmyndir þínar. Hið sama gildir ekki um innstæðuna á bankareikningnum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú leggur þig fram við að gera heimili þitt huggulegra á næstunni. Við- urkenning frá speglinum eða dagbókinni gera sálinni mjög gott. 19. feb. - 20. mars Fiskar Nú er komið að því að þú grípir til sérstakra ráðstafana varðandi útlit þitt og framkomu. Ef þú ert bjartsýn/n og gefst ekki upp mun þér takast ætlunarverk þitt þótt síðar verði. Sigmundur Benediktsson yrkirum veðurfarið: Þurrar tíðir þorrinn bjó, þægur gekk úr hlaði. Akranes með engan snjó enn í sólskinsbaði. Þó á blíðu lítt sé lát leiðan vana kenni: Hafa skal á Góu gát, gustar oft frá henni. Jón Gissurarson segir á þriðju- dag, að nánast engin úrkoma hafi verið síðan fyrir jól, þótt norðanátt hafi verið ríkjandi í vetur. – „Snjór er því lítill og enginn t.d. í Hólm- inum. Heiðríkja hefur hefur verið undanfarna daga og því sólskin á daginn:“ Sólin vermir seim og drengi, sífellt lengist hennar ganga. Hér er allt í góðu gengi, gefst því einnig margt til fanga. Ingólfur Ómar Ármannsson sendi Vísnahorninu þessar hringhendur: Ekkert þjakar andans mátt, óðarkvakið glæðist ljóðavakan lifnar dátt, lipur staka fæðist. Ljóða klingir hróður hér, halir slyngir una, óðar syngur vísnaver, vandar hringhenduna. Vigdís Hauksdóttir er umdeild, enda beinskeytt í sínum orðræðum. Hjálmar Freysteinsson orti: Margt tókst Vigdísi að vinna sem var ekki á færi hinna. Gott dæmi er það, hún gerði mig að Evrópusambandssinna. Hallmundur Kristinsson yrkir: Frá telpunni Tinnu í Vogum tárin þau streymdu í bogum. Er gaman varð grátt hún grenjaði hátt með áköfum ekkasogum. Jón Ingvar Jónsson er á öðrum nótum: Veit ég bara varla hvort versni og breytist tímar, allir kjafta upp á sport enda snjallir símar, þó er sjaldan illa ort ef það bara rímar. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vísur um veðrið og limrur um konur Í klípu „ÞAÐ ER AUÐVELT AÐ ÁNETJAST TÆKNINNI, EN ÞÉR FER FRAM. ÝTTU NÚ Á PÁSU, TÍMANUM ÞÍNUM ER LÖNGU LOKIÐ.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HANN ER EIGINLEGA ALVEG HÆTTUR AÐ HORFA Í AUGUN Á MÉR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera þakklát fyrir væntumþykju hvort annars. LEGGÐU FRÁ ÞÉR SVERÐIÐ, HRÓLFUR! LANDSSAMTÖK GEGN ILLRI MEÐFERÐ Á DREKUM ERU MEÐ SKRIFSTOFU HÉR RÉTT HJÁ! URRRR... VIÐ HEFÐUM EKKI ÁTT AÐ LEYFA ODDA AÐ HORFA Á VARÚLFAMYND. GOGGÓÓÓ! Á dögunum hafði Víkverji á tilfinn-ingunni að hann væri í stjörnu- stríði og ef einhver hefði komið með eld of nálægt er hætta á að kviknað hefði í honum og hann sprungið, svo mikill var hitinn. Hann reyndi að lækka hitann með því að leggja rak- an, kaldan þvottapoka að helstu hitasvæðunum, en við það urðu þau bara stærri og þar með jókst íkveikjuhættan og sprengihættan. x x x Fréttamenn velta sér stöðugt uppúr því hvað gerist, hvar, hvenær og hvernig. Flensan sækir líka í staf- inn „h“, því alvöru flensusjúklingur er með mikinn hita, hálsbólgu, hósta og beinverki eða heinverki, eins og þeir segja fyrir austan. Með þetta í huga er augljóst að fréttamenn eru í flensuáhættuhópi og því andar Vík- verji rólega. x x x Það er líka gott að vera fréttamað-ur með flensu vegna þess að fréttamaðurinn heldur að hann þurfi að lesa öll blöð, hlusta á alla útvarps- fréttatíma og horfa á alla sjónvarps- fréttatíma, en þegar hann er með flensu hefur hann ekki kraft til þess að halda á dagblaði, bara ipad, hefur ekki eirð í sér til þess að hlusta á út- varp og getur ekki horft á sjónvarp vegna svima. Flensan gerir honum sem sagt mögulegt að hlaða batt- eríin á tvöfaldan hátt, annars vegar með því að vera laus við daglegt áreiti og hins vegar með því að vinna á veikindunum með viðurkenndum og óviðurkenndum aðferðum. Tveir fyrir einn með ipadinn við hönd. x x x Í vikunni hitti Víkverji konu semsagðist vera með flensu og hefði verið lengi. Mætti samt alltaf í vinn- una og smitaði samstarfsfólkið vinstri hægri. Víkverji benti henni á að henni væri nær að vera heima og ná fjandanum úr sér. Það er nefni- lega engum greiði gerður með því að flensast upp á aðra. Á tímum að- halds og niðurskurðar má líka benda á að flensa er ein besta losunar- aðferð sem um getur og sá sem ligg- ur heima með flensu getur verið viss um að missa nokkur kíló. víkverji@mbl.is Víkverji En öllum þeim sem tóku við honum gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim sem trúa á nafn hans. (Jóhannesarguðspjall 1:12) Geislagötu 9, Akureyri, sími 462 1415 www.tonabudin.is Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340 www.hljodfaerahusid.is ClavinovaCVP605 Snertiskjár, 1327hljóð, 420 taktar, USBhljóðupptaka ofl. Kynnið ykkur þettamagnaða hljóðfæri í verslun okkar í Reykjavík! Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.