Morgunblaðið - 28.02.2014, Side 52
Mótettukór Hallgrímskirkju og
stjórnandi hans, Hörður Áskelsson,
fagna 400 ára afmæli Hallgríms Pét-
urssonar með tónleikum sem haldnir
verða í Hallgrímskirkju 9. mars. Á
þeim flytur kórinn útsetningar ís-
lenskra tónskálda við sálma séra
Hallgríms og tónlist eftir sam-
tímamenn hans. Í tilefni af tónleik-
unum var teiknarinn Halldór Bald-
ursson fenginn til að ímynda sér
hvernig Hallgrímur gæti hafa litið út
sem ungur maður og má sjá afrakst-
urinn á meðfylgjandi mynd.
Hallgrímur ungur á
teikningu Halldórs
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 59. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Heimsækja Geir í fangelsið
2. Bryndís selur glæsiíbúðina
3. Byrjað að selja miða á Timberlake
4. Vann 253 milljónir króna
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Breski sjónvarpskokkurinn Ainsley
Harriott er staddur hér á landi í þeim
tilgangi að taka upp efni fyrir sjón-
varpsþáttaröðina Ainsley Eats the
Streets sem hefur göngu sína á
Channel 4 í vor. Harriott er þekktur
sjónvarpskokkur í heimalandi sínu og
hefur m.a. gert hina vinsælu mat-
reiðsluþætti Ready Steady Cook og
Can’t Cook, Won’t Cook. Í þáttunum
Ainsley Eats the Streets flakkar Har-
riott um borgir víða um heim, heim-
sækir litla veitingastaði, kynnir sér
matarvenjur heima-
manna og upplifir
menningu borg-
anna. Harriott
verður einn
gestadómara
Food&Fun mat-
reiðslukeppninnar
sem fram fer á
morgun.
Kynnir sér íslenska
matarmenningu
Á laugardag Norðaustan 8-15 m/s og dálítil él með norðurströnd-
inni, lítilsháttar slydda eða rigning austanlands en yfirleitt þurrt og
bjart suðvestantil. Hiti 0 til 6 stig, mildast sunnantil.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Úrkomumeira um norðanvert landið en í
gær, annars svipað veður. Hiti 0 til 7 stig sunnanlands að deginum,
annars um frostmark.
VEÐUR
Það verða lið Stjörnunnar
og Vals sem leika til úrslita
í Coca Cola-bikarkeppni
kvenna í handknattleik, en
undanúrslitaleikirnir fóru
fram í gærkvöldi. Stjarnan
lagði þá Gróttu og Vals-
konur höfðu betur gegn
Haukum. Úrslitaleikirnir
í karla- og kvenna-
flokki fara fram í
Laugardalshöll-
inni á morg-
un. »2-3
Stjarnan og Valur
mætast í úrslitum
Þorgerður Anna Atladóttir, landsliðs-
kona í handknattleik, hefur glímt við
erfið meiðsli í öxl. Hún hefur ekkert
getað spilað með norska úrvalsdeild-
arliðinu Flint-Tönsberg síðan í nóv-
ember og ljóst er að hún spilar ekkert
meira með liðinu
á tímabilinu.
„Ég fór í aðgerð
í maí sem
hjálpaði mér lít-
ið. Ég hef prófað
allt nema að hvíla
til lengri tíma
þannig að ég verð að
gera það til að eiga
einhverja möguleika,“ segir
Þorgerður. »1
Þorgerður frá keppni
fram eftir árinu
Valsmenn féllu í gærkvöld aftur niður í
1. deild karla í körfuknattleik þrátt fyr-
ir hetjulega baráttu í Borgarnesi þar
sem tvíframlengja þurfti leikinn áður
en Skallagrímur bar sigur úr býtum,
122:120. Stjarnan vann Snæfell í upp-
gjöri tveggja liða sem berjast um að
komast í úrslitakeppnina, og Haukar
unnu Keflavík. Það hafði aðeins topp-
liði KR tekist í vetur. »2-3
Valur féll og Stjarnan
komst upp fyrir Snæfell
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Mér finnst allt skemmtilegt við að skíða; snjórinn,
fara hratt, vinirnir og auðvitað er alltaf gaman að
vinna,“ segir Kristófer Berglindarson, þrettán ára
skíðakappi í Frakklandi. Hann er mjög efnilegur á
skíðum, hefur náð góðum árangri á erlendri grundu
og sankað að sér fjölda verðlauna. Um síðustu helgi
vann hann til átta verðlauna á enska meistaramótinu í
Bormio á Italíu. Þar var hann einnig bestur keppenda
yngri en 14 ára og deildi þeim verðlaunum með öðrum
sem var jafnhár að stigum. Þá er hann í hópi 130
drengja í Frakklandi sem eru með þátttökurétt á
stórmótum.
Glímt við meiðsli
Meiðsli hafa þó sett strik í reikninginn hjá Krist-
ófer. Fyrir nokkrum árum handleggsbrotnaði hann
illa. Þá töldu læknar að jafnvel myndi handleggurinn
hætta að vaxa. En betur fór en á horfðist. Þá viðbeins-
brotnaði hann fyrir tæpu ári en hefur nú náð fullum
styrk enda duglegur að borða hollan mat og er ein-
beittur í að koma sér í gott form.
Kristófer hefur verið búsettur utan landsteinanna
frá þriggja ára aldri. Á sumrin býr hann í Englandi og
á veturna í Frakklandi þar sem hann æfir með skíða-
klúbbi. Hann æfir stíft til að verða betri á skíðum.
Fjölskyldan ákvað að flytjast yfir vetrartímann til
Frakklands, m.a. með það fyrir augum að Kristófer
gæti stundað skíðaíþróttina af kappi. Hann situr á
frönskum skólabekk yfir vetrartímann. „Þetta er
mjög erfitt því ég tala ekki frönsku en ég geri mitt
besta. Hlusta á kennarana, geri fleiri verkefni til að
ná mér upp og það virkar mjög vel.“
Íslenskar skíðabrekkur góðar
Í fyrra kom hann til Íslands og keppti í fyrsta skipti
á íslensku skíðamóti með prýðisárangri. „Það kom
mér á óvart hversu góðar skíðabrekkurnar voru á Ís-
landi. Það var rosalega gaman að keppa á Andrésar
andar-leikunum,“ segir Kristófer. Hann langar mikið
að taka þátt í þeim næstu. Þrátt fyrir ungan aldur er
Kristófer kominn með styrktaraðila sem eru að
stórum hluta íslensk fyrirtæki með starfsemi sína í
Englandi. Þetta eru m.a.: Samskip, Seagold, Lýsi,
Atlantic Fresh, jhs, Northcoast Seafood, Samskip,
Wow og Lopi.
Skíðaáhuginn ristir djúpt. Hann segir að ef hann
verði ekki í fullri vinnu við að skíða í framtíðinni langi
hann að verða læknir. „En ég þarf ekki að hugsa um
það núna, bara að hugsa um að skíða eins hratt og vel
eins og ég get og vona að það takist hjá mér.“
Kristófer fór í fyrsta skipti á skíði 7 ára gamall og
það var fyrir hreina tilviljun. „Ég fór með ömmu og
frænku minni sem var á snjóbretti. Um leið og ég kom
á skíðasvæðið og prufaði að skíða þá elskaði ég þetta
og vissi að ég vildi bara skíða,“ segir hann glaðlega.
Kristófer gat ekki gefið sér lengri tíma til að spjalla
því hann þurfti að haska sér á æfingu. Hann lofaði þó
að fara varlega í brekkunum því að hans sögn þá er
þetta nokkuð hættulegt sport en algjörlega þess virði.
Gaman að fara hratt á skíðum
Kristófer er 13 ára
íslenskur skíðakappi í
Frakklandi sem er kominn
með marga styrktaraðila
Á verðlaunapalli Kristófer tekur við verðlaunum fyrir besta árangur í stórsvigi.
Á skíðum Kristófer vill fara mjög hratt.
FÓLK Í FRÉTTUM