Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Síða 24
LINDA JÓHANNSDÓTTIR VAR ORÐIN LEIÐ Á SJÚSKAÐA
DYRASÍMANUM HEIMA HJÁ SÉR OG ÁKVAÐ AÐ SPREYJA HANN
MEÐ SILFURLITUÐU SPREYI TIL AÐ LÍFGA ÖRLÍTIÐ UPP Á HANN.
Sigurborg Selma karlsdóttir sigurborg@mbl.is
L
inda Jóhannsdóttir hönnuður tók dyrasímann
heima hjá sér í gegn. Síminn, sem var orðinn
verulega sjúskaður, er úr hvítu plasti sem vel sá
á. Linda ákvað að lífga upp á símann með því að
spreyja hann, sem er bæði ódýr og fljótleg breyting.
Linda keypti silfurlitað sprey sem hún telur tóna vel við
litaflóru heimilisins.
„Mér finnst málmar, gull, silfur og brons, skemmtilegir
litir með fallegri áferð og gaman að blanda þeim saman á
heimilinu. Hér er margt gyllt og bronslitað og þess vegna
fannst mér gaman að blanda silfri við sem tónar einnig
vel við pastelliti, sem eru mikið í tísku núna.“
Byrjað er á því að þrífa símann og pússa hann örlítið
með mjög fíngerðum sandpappír. Hann er síðan þrifinn
með þynni, sem tekur allan skít og fitu svo að
málningin festist á plastinu.
Síminn er þá tekinn í sundur og þess gætt
að spreyið fari ekki á innvolsið og að lokum er
hann spreyjaður vel og vandlega.
„Þegar ég spreyjaði heyrnartólið tók ég það í
sundur, sem er bara ein skrúfa, svo ég myndi ekki
spreyja á hátalarann í honum.“
Spreyið, sem fæst í flestum byggingarvöruversluum,
keypti Linda í Húsasmiðjunni og kostaði rétt innan við
2.000 krónur. Sniðugt er að leita ráða í málning-
arvöruverslunum, enda starfsmenn þar fróðir. Einnig
getur verið gott að grunna símann ef liturinn á að
duga lengi.
Linda var að vonum
ánægð með silfurlit-
aða dyrasímann.
Morgunblaðið/Golli
Silfurlitaður
dyrasími tónar
vel við litaflóru
heimilisins.
Sjúskaða dyrasíma
er einfalt og ódýrt
að spreyja í
skemmtilegum lit.
LÍFGAÐU UPP Á GAMLA DYRASÍMANN
Einföld og ódýr breyting
*Heimili og hönnunTextílhönnuðurinn Fríða á fallegt og hlýlegt heimili á Seltjarnarnesinu »26