Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2014
Matur og drykkir
V
ið vildum hafa matseðilinn fjölbreyttan en jafnframt að hægt
væri að útbúa eitthvað fyrirfram þar sem um hádegisboð var að
ræða. Þannig grillaði ég kjúklinginn og kjötið kvöldið áður og
útbjó kökuna,“ segir Davíð Kristinsson heilsuþjálfari en hann og
eiginkona hans, Eva Ósk Elíasardóttir, buðu góðum vinum í léttan hádeg-
isverð á heimili sínu á Akureyri.
Hópurinn sem hittist eru vinir þeirra úr Roundtable 5-klúbbnum. Sá
klúbbur er raunar strákaklúbbur sem starfræktur er víðsvegar um landið
en makarnir hafa undanfarið tekið meiri þátt í starfseminni. Markmiðið er
að sameina fólk úr ólíkum áttum og starfsstéttum en Roundtable er al-
þjóðlegt fyrirbæri.
„Svokallað vinahorn er látið ganga á milli meðlima klúbbsins og sá sem
er með það hverju sinni á að bjóða þeim sem hann vill innan klúbbsins í
heimsókn og helst er ætlast til að þú bjóðir fólki heim sem þú umgengst
minna í klúbbnum. Þetta er mjög skemmtileg hefð og hefur þjappað
hópnum enn betur saman.“
Gestum líkaði maturinn afar vel og Davíð merkti það meðal annars á
því að það fór miklu meira af honum en hann bjóst við. Davíð leggur mik-
ið upp úr því að nota hrein og lítið unnin hráefni í matinn en sjálfur tók
hann mataræði sitt í gegn fyrir rúmlega tíu árum og tók þá meðal annars
út mjólkurvörur og glúten úr sinni fæðu. Sjálfur hefur hann aðstoðað fólk
við að ná betri tökum á mataræði og gaf nýverið út bókina 30 dagar.
Halda þau hjónin oft matarboð?
„Okkur finnst gaman að bjóða vinum og fjölskyldu í mat. Við eldum oft
steikur og ýmiss konar meðlæti, sushi og svo bara bragð- og matarmiklar
súpur. Matseldin gæti flokkast sem áhugamál en maður hefur ekki alltaf
tíma. Ég held að lykilatriðið að góðu matarboði sé að bjóða skemmtilegu
fólki sem hefur svipaðan húmor og maður sjálfur. Einnig að bjóða upp á
mat sem fellur í kramið hjá sem flestum. Það er líka nauðsynlegt að
ganga úr skugga um hvort einhver sé með fæðuóþol og hagræða upp-
skriftunum eftir því. Það er líka mikið atriði að enda á góðum eftirrétti en
hann má auðvitað líka vera hollur,“ segir Davíð.
MATARBOÐ HJÁ DAVÍÐ KRISTINSSYNI
OG EVU ÓSK ELÍASDÓTTUR
Hádegisverð-
ur á Akureyri
* Ég held að lykilatriðið að góðu matar-boði sé að bjóða skemmtilegu fólki“
LÉTTUR OG SKEMMTILEGUR HÓPUR HITTIST YFIR
HÁDEGISVERÐI Í HEIMAHÚSI Á AKUREYRI OG
SNÆDDI ALLS KYNS SALÖT.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Jóhann Davíð, Elvar Örn og
Hildur Ýr gáfu sér tíma í hádeg-
inu til að snæða á heimili Dav-
íðs og Evu Óskar. Hópurinn til-
heyrir svokölluð Roundtable 5.
Akureyringarnir
Helgi Rúnar Braga-
son og Inga Stella
Pétursdóttir voru
hæstánægð með hin
fjölbreyttu salöt sem
boðið var upp á.
Fyrir 1
1 grilluð lamba-
lærissneið
provencekrydd, til
dæmis frá Him-
neskri hollustu,
eftir smekk
1 avókadó
1 tómatur
½ paprika
1 bolli spínat
Kryddið kjötið og
steikið eða grillið
eftir smekk og sker-
ið í litla bita. Skerið
lárperuna í tvennt og
takið steininn úr.
Skafið innmatinn úr
og skerið í teninga.
Setjið hann í skálina.
Skerið papriku og
tómat í bita og bæt-
ið því og spínatinu
saman við. Bætið
ólífuolíu og sjáv-
arsalti út á eftir
smekk.
Lamba-
kjötssalat