Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Page 37
Stóru fyrirtækin, eins og CCP og
Betware, geti beygt sig undir höftin
en litlu fyrirtækin lendi oftar en
ekki í vandræðum. „Á undanförnum
árum höfum við talað við fjölda
fjárfesta sem vildu vita meira um
íslensk leikjafyrirtæki eða voru að
skoða tilteknar fjárfestingar. Sumir
þessara fjárfesta voru mjög nálægt
því að setja pening í íslensk fyr-
irtæki en það runnu á þá tvær
grímur þegar þeir fóru að skoða
umhverfið. Þó að höftin eigi ekki að
hindra fjárfestingu er tilvera þeirra,
ein og sér, nægjanleg til þess að
hafa mjög ákveðinn fælingarmátt.
Við verðum líka að átta okkur á
því að Ísland er í samkeppni við
önnur lönd um starfsfólk. Það sem
er nýtt og mikilvægt að stjórnvöld
átti sig á er að sú kynslóð sem nú
er komin út á vinnumarkaðinn og
sækist í skapandi greinar, er mjög
hreyfanleg. Þetta er kynslóðin sem
kaupir ekki geisladiska heldur ger-
ist áskrifandi af Spotify. Kaupir
ekki DVD-diska, er frekar með
Netflix o.s.frv. Það er því lítið mál
fyrir það að ganga í störf í öðru
landi og flytja. Það pakkar bara í
tösku og fer. Við höfum aldrei séð
þennan hreyfanleika áður.
Það skemmtilega við íslenskan
leikjaiðnað er að flestir framleið-
endur eru að horfa á erlendan
markað, sem þýðir að ekki er verið
að bítast um sama litla íslenska
markhópinn. Þessi markaður er svo
stór að innan samtakanna, sem og á
norrænum vettvangi, hafa menn al-
veg verið til í að deila upplýsingum
á milli sín.“
Næsta bylgja að byrja
Ólafur segir að stjórnmálamenn og
fjárfestar hafi algjörlega misst af
tækifærinu til að magna þann mikla
kraft sem er í leikjagerð og skap-
andi greinum almennt. „Í stað þess
hafa fyrirtæki sem höfðu frábær
tækifæri misst af þeim og horfið.
Fyrsta bylgjan er yfirstaðin, en sú
næsta er rétt að byrja og við ætlum
að reyna að nýta okkur það eins og
við getum.
Þó er stuðning að finna og sam-
skipti við stjórnvöld hafa alltaf verið
góð. Það vanti bara að stjórn-
málamenn sjái stóru myndina. „Það
vantar skilning á hvernig þetta
hangir allt saman. Það tók Finna
svolítinn tíma að ná þessu líka, eftir
sína kreppu, en kerfið þeirra nú
virkar gríðarlega vel. Það er í raun
stórkostlegt að geta byggt upp iðn-
að sem er gjaldeyrisskapandi, bygg-
ist á menningar- og sagnaarfi þjóð-
arinnar, er eftirsóttur af ungu fólki,
skapar hálaunastörf og kallar á auk-
ið hugvit og meiri menntun. Hvers
vegna erum við ekki að gera meira
til þess að styðja við þetta og efla,“
spyr hann kannski eðlilega svolítið
hissa.
16.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Winter Sport-leikurinn er eins og
nafnið gefur til kynna vetrar-
íþróttarleikur þar sem keppt er í
helstu íþróttum vetrarólympíuleik-
ana. Fría útgáfan leyfir að keppa í
þremur keppnum en sé leikurinn
keyptur opnast heimur vetrar-
íþrótta alveg upp á gátt. Leikurinn
er nokkuð skemmtilegur, grafíkin
fín en hann er svolítið erfiður. Það
er erfitt að ná góðum tökum á
honum.
WINTER SPORT
Taktu þátt í
Sotsjí
Unroll me er gríðarlega ávanabind-
andi leikur sem nær föstum tökum
á öllum lausum tíma þess sem nær í
hann. Hann einfaldlega hverfur ekki
úr huga spilarans. Takmark leiksins
er einfalt, koma kúlunni í mark í
sem fæstum hreyfingum. Leikurinn
hentar öllum alveg frá 10 ára og
upp úr. Svona leikir hafa verið kall-
aðir klósettleikir og þessi flokkast í
fyrsta flokk. Kostar ekkert í google
play sem er kostur.
UNROLL ME
Fyrsta flokks
tímaþjófur
Robocop-leikurinn er stór-
skemmtilegur og gríðarlega vel
gerður. Grafíkin er upp á 10 og
leikjaspilun sömuleiðis. Hann er
ókeypis eins og er í Google play og
er það mikill kostur, klárlega er
þetta einn allra flottasti leikur sem
gerður hefur verið fyrir snjallsíma.
Þetta er leikur sem aðdáendur
Robocop geta verið stoltir af en
kvikmynd um tinmanninn kemur í
kvikmyndahús innan skamms.
Töffara
tinmaður
ROBOCOP
Tölvuleikjageirinn fór fram úr
Hollywood fyrir tíu árum í
tekjum. Tölvuleikurinn Grand
Theft Auto 5, sem kom út á
síðasta ári, halaði inn einum
milljarði dollara á fyrstu þrem-
ur dögunum í sölu og kostaði
meira í framleiðslu en flestar
stórmyndir gera í dag.
Avatar er sú mynd sem hef-
ur skilað mestum tekjum allra
tíma fyrir Hollywood eða sam-
tals 2,8 milljörðum dollara. Það
tók hana 50 daga að hala inn
600 milljónum dollara. „Þetta
lýsir því ágætlega hvað leikja-
iðnaðurinn er orðinn stór,
sennilega stærri
og öflugri en
flestir ímynda
sér,“ segir
Ólafur
Andri
hjá
Betw-
are.
TÖLVULEIKJAGEIRINN
ENN Í ÖRUM VEXTI
Stærri en
Hollywood
Úr tölvuleiknum
EVE online.
Smáralind | Sími 512 1330
Opið Sunnudaga 13-18
MacBookAir
Alvöru afl allandaginn
Verð frá:189.990.-
MacBookPro
Verð frá: 219.990.-
MacBook
Air...Pro
Allt að
12klst
Rafhlöðuending