Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Page 39
16.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Þ
að hefur líklega ekki farið framhjá neinum að ég er
talskona þess að konur gangi í háhæluðum
skóm, alltaf, alla daga ársins – ár eftir ár. Alla-
vega meðan þær hafa heilsu til. Það fer nefnilega
ekki framhjá neinum að konur á háhælum skóm bera sig
betur og eru tignarlegri. Þær rétta betur úr bakinu sem
gerir það að verkum að oft verður sjálfstraustið meira og
konan verður ánægðari með líf sitt.
Ég þreytist ekki á að benda á það í þessum pistlum
mínum að pinnahælar séu ígildi nagladekkja. Þeir veiti
konunni (stelpunni) ákveðinn stöðugleika á hinum hála ís
lífsins. Miðað við hvað lífið getur verið mikill óglusjór
með allskonar stormum, rigningu, roki og hægri breyti-
legri átt, þá veitir víst ekki af að vera í réttum búnaði.
Konan (stelpan) þarf að geta mætt hverju sem og verið
þannig klædd að það geti ekkert bugað hana.
En af því að lífið tekur stundum óvænta stefnu verðum
við að vera undir það búnar að lenda í aðstæðum sem við
ráðum hreinlega ekki við. Þá er mikilvægt að bíta á jaxl-
inn og gefast ekki upp …
Sú sem hér skrifar gerði nefnilega minniháttar „feil“ í
vikunni.
Ég var búin að bóka viðtal við Sigmund Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra og var planið að „labba“
hringinn í kringum Tjörnina. Með þessar upplýsingar
ákvað ég að vera vönduð og fara ekki berfætt í lakkskóm,
eins og ég hafði verið alla vikuna (eins og einhver gála)
Og svo tókum við auðvitað „selfie“ eftir göngutúrinn
til þess að vera pínu eins og Obama og Helle.
Á strunsinu með Sigmundi Davíð
heldur í vetrarskónum. Vetrarskórnir ógurlegu eru
kannski ekki vetrarlegustu skór sem fyrirfinnast í alheim-
inum en á minn mælikvarða eru þeir næsti bær við
gönguskó. Skórnir eru renndir í hliðinni og úr bólstruðu
leðri að hluta til. Þar sem ég gerði ráð fyrir því að við
myndum „labba“ í rólegheitunum hafði ég engar áhyggjur
af þessu. Sigmundur Davíð hefur heldur ekki gefið sig út
fyrir að vera mikill íþróttamaður þannig að ég taldi þetta
vera öruggt.
Það er skemmst frá því að segja að við vorum varla
komin út úr húsi þegar ég áttaði mig á því að líklegra
hefði verið heppilegra að mæta á hlaupaskónum því Sig-
mundur Davíð „labbar“ ekki – hann strunsar áfram (sem
er reyndar mjög heilsusamlegt).
Smáhesturinn sem ég er þurfti því að gefa allt í botn til
að halda í við hann (og kúlinu auðvitað líka). Á strunsinu
með Sigmundi Davíð hugsaði ég um allar hlaupaæfing-
arnar sem ég hef farið á síðasta árið og áttaði mig á því
að þær voru sko ekki til einskis. Og svo er ég ekki frá því
að kraftlyftingaæfingarnar hafi hjálpað til þegar ég var
við það að gefast upp. Þá hugsaði ég með mér – fyrst ég
get tekið 105 kíló í hnébeygju þá hlýt ég að lifa þetta af.
martamaria@mbl.is