Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Blaðsíða 41
Bandaríski leikarinn Chris
Pine er nýja andlit eins
mest selda herrailms
heims, Armnai Code.
Chris hefur mikið verið í
fréttum hér á landi und-
anfarið en kærasta hans, Ír-
is Björk Jóhannesdóttir, er
íslensk fegurðardrottning
og hafa erlendir fjölmiðlar
verið duglegir við að birta
myndir af þeim saman.
Ítalska tískuhúsið Arm-
ani valdi Chris sem andlit
ilmsins því hann býr yfir
ákveðnum þokka og glæsi-
leika sem á fullkomlega við
ilminn sem er þokkafull
blanda meðal annars af
ólífutré, bergmont og sítrus.
Ilmurinn skilgreinir fág-
aðan nútímamann.
Chris Pine er meðal ann-
ars þekktur fyrir leik sinn í
kvikmyndunum Star Trek
og This Means War.
Chris Pine er nýtt
andlit ilmsins en hann
á íslenska kærustu.
Chris Pine í lið
með Armani
Armani Code: 12.799 kr.
16.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
M
ig dreymdi alltaf um
að opna fatabúð og
eftir því sem leið á
aldurinn fékk ég
meiri áhuga á að fara út í eigin
rekstur,“ segir Ingólfur sem starf-
aði áður sem rafvirki. Það var
eftir að hafa unnið við rafmagn í
Hörpu sem Ingólfur fékk nóg af
iðnaðarmennsku og leigði sér
notalegt verlsunarhúsnæði á
Laugavegi, án þess þó að vera
búinn að ákveða hvað hann ætlaði
að versla með. Síðan hófst leit að
hinu fullkomna herrafatamerki.
„Ég byrjaði kannski öfugum meg-
in. Ég hóf leit að flottum merkj-
um og öðru slíku eftir að hafa
leigt húsnæðið. Þegar ég síðan sá
þetta merki, Scotch & Soda, þá lá
ég bara kylliflatur fyrir því.“
Hvernig var að skipta úr því að
vera rafvirki yfir í búðarrekstur?
„Ég held að það sé hollt fyrir
alla að skipta um umhverfi ein-
hvern tíma á lísfleiðinni og hugsa
hlutina öðruvísi, maður verður
svolítið að víkka sjóndeildarhring-
inn,“ segir Ingólfur og bætir við
að iðnaðarmennskan sé svolítið
sérstök og lokuð. Þetta er mikið
karlaumhverfi og honum fannst
æðislegt að breyta til. „Það
Frumleg útstilling í Sturlu.
LÁ KYLLIFLATUR FYRIR MERKINU
Fólk metur
hreinskilni
sparkaði mér svolítið af stað að
byrja á því að leigja og það tók
mig einn og hálfan mánuð að ná
merkinu.“ Scotch & Soda eru með
yfir hundrað sérverslanir út um
allan heim og segir Ingólfur
merkið nákvæmlega það sem
hann hafi verið að leita að; þægi-
leg og flott föt fyrir kalmenn sem
henta bæði á barinn og í brúð-
kaup. „Ég ætlaði mér ekki að
selja jakkaföt því nóg er úrvalið
af þeim fyrir. Ég er kominn með
mjög góðan kúnnahóp hjá strák-
unum og finn að þeir nenna ekki
að vera í jakkafötum. Ef þú ert
með góðan jakka og flottar buxur
ertu bara helvíti fínn. Jakkinn
hefur aðeins meira notagildi líka.“
Ingólfur tók nýverið inn kvenfata-
merkið Maison Scotch eftir miklar
fyrirspurnir.
Fatnaður er áhugamál
Fyrir utan Sturlu á Laugavegi
hangir stór bassatromma sem hef-
ur vakið mikla athygli en Ingólfur
lagði mikið upp úr hönnun og
umgjörð verslunarinnar. „Ég lagði
í lógóið og vildi gera það flott.
Fólk hefur tjáð mér að það sé
eins og búðin hafi alltaf verið
hérna á Laugaveginum, eins og
hún sé rótgróin.“ Nafnið Sturla
hefur einnig vakið athygli en Ing-
ólfur vildi að verslunin héti nafni
sem væri íslenskt og gengi bæði
fyrir herra og dömur. „Það kom
gamall maður hingað til mín um
daginn, gekk beint að mér og
sagði: „Ég ætla bara að þakka
þér kærlega fyrir.“ Hvað, segi ég,
„Að búðin skuli heita íslensku
nafni.“ Svo fór hann út,“ segir
Ingólfur og hlær.
Spurður hvort honum þyki ís-
lenskir karlmenn vel klæddir seg-
ist Ingólfur alltaf hafa litið á
fatnað sem áhugamál.
„Stundum er alveg hægt að
gera eitthvað fyrir sjálfan sig án
þess að það kosti of mikið. Sumir
kaupa sér veiðistangir á yfir tvö
hundruð þúsund en finnst galla-
buxur á tuttugu þúsund of dýrt.
Þetta er allt spurning um verð-
mat og áhugamál.“
Ingólfur lagði mikið upp úr hönnun og umgjörð verslunarinnar.
Ingólfur í versluninni Sturlu, sem selur föt á herra, dömur og börn frá merkjunum Scotch & Soda og Maison Scotch.
INGÓLFUR ARNAR MAGNÚSSON RAFVIRKI LÉT
DRAUMINN RÆTAST OG OPNAÐI HERRAFATAVERSLUN.
INGÓLFUR SEGIR MIKILVÆGT AÐ BREYTA TIL OG VÍKKA
SJÓNDEILDARHRINGINN. HANN REKUR NÚ HERRA-
OG KVENFATAVERSLUNINA STURLU Á LAUGAVEGI.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
www.gilbert.is