Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Qupperneq 42
*Fjármál heimilannaTíðni rifrilda um heimilisfjárhaginn segir til um líkurnar á að par skilji
Það er sjaldan róleg stund hjá Þór-
halli Vilhjálmssyni markaðsfræðingi.
Hann vinnur sem kynningar- og
upplýsingafulltrúi Mímis-símennt-
unar og rekur að auki kaffihúsið Ba-
balú á Skólavörðustíg með eig-
inmanni sínum. Hann verður síðan
fararstjóri í ferð Bændaferða til
Svartaskógar og kanadísku Kletta-
fjallanna í sumar.
Hvað eruð þið
mörg í heimili?
Við erum þrjú. Ég og eiginmaður
minn, hann Glenn Barkan, sem er
upphaflega frá New York, og tíkin
Daisy, sem er frá Hvammstanga. Við
búum í krútt-húsi í krúttlegustu göt-
unni í 101, Haðarstíg.
Hvað áttu alltaf
til í ísskápnum?
Cola Light sem ég viðurkenni van-
mátt minn gagnvart.
Hvað freistar helst
í matvörubúðinni?
Appelsínur ef þær eru góðar. Bestu
appelsínurnar eru frá Egyptalandi.
Hvernig sparar þú
í heimilishaldinu?
Þar sem við eigum ekki börn og buru
sparast sérstaklega mikið í þeirri
deild. Við erum mjög heimakærir og
reglusamir þannig að ekki erum við
að eyða neinu í áfengi og sígarettur.
Maðurinn minn er ótrúlega spar-
samur enda er þetta í blóðinu hjá
honum. Hann hleypur stundum á
eftir mér með notaða plastpoka
þegar ég er á leiðinni í búðina. Það
er þetta smáa sem gildir.
Hvað vantar helst á heimilið?
Vélmenni sem tekur til eins og þern-
an Rosie sem var hjá Jetson-
teiknimyndafjölskyldunni.
Eyðir þú í sparnað?
Ég borga í viðbótarsparnað í sjóð í
Bæjaralandi. Ég reikna ekki með að
fá neitt úr lífeyrissjóðnum mínum
hérna heima þegar að því kemur. Ís-
lenskt viðskiptalíf lítur á lífeyrissjóði
sem stað til þess að ná í peninga í
alls konar verkefni og mér finnst
ekki miklar líkur til þess að eitthvað
verði eftir þegar yfir lýkur. Því mið-
ur. Við tölum oft um að litla kaffi-
húsið okkar og fasteignin sem því
fylgir sé aðallífeyrissparnaðurinn
okkar.
Skothelt
sparnaðarráð?
Veldu áhugamál sem kostar ekki
mikið. Aðaláhugamál mitt er tónlist
og kórsöngur. Ég syng í Mótettukór
Hallgrímskirkju. Það kostar mig ekki
krónu og nærir líkama og sál. Það er
mun ódýrara en að spila golf eða
eiga hesta.
ÞÓRHALLUR VILHJÁLMSSON
Með litla trú á
lífeyrissjóðunum
Þegar kemur að því að spara segir Þórhallur að það séu litlu hlutirnir sem gildi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Um þessar mundir eru margir byrj-
aðir að skipuleggja utanlandsferðir
sumarsins. Valkostirnir eru ótelj-
andi, hver öðrum meira spennandi,
en gæta þarf vandlega að pen-
ingahliðinni og láta ekki fríið rústa
fjárhagnum.
Aurapúkinn hefur gaman af að
heimsækja framandi slóðir og hefur
komist að því að ferð hringinn í
kringum hnöttinn þarf ekki að vera
dýrari en skreppitúr til evrópskrar
stórborgar.
Það er rétt að flugið er yfirleitt
dýrt en á móti kemur oft ódýrt
uppihald. Fyrir verð einar nætur á
hóteli í London mætti sennilega fá
heila viku á hóteli í Hanoi. Fyrir
það sem hófsamur kvöldverður
kostar á veitingastað í Kaupmanna-
höfn mætti halda mikla veislu í
Buenos Aires.
Þannig geta ferðalög langt út í
heim orðið bæði lengri og íburð-
armeiri en jafndýrar ferðir til
Bandaríkjanna eða Evrópu.
púkinn
Aura-
Dýrt að fljúga,
ódýrt að lifa
R
ómantíkin er allt um kring þessa
helgina enda var Valentínusardagurinn
haldinn hátíðlegur á föstudag.
En rómantíkin dugar skammt ein og
sér og þeir sem reynt hafa vita að ein af mik-
ilvægustu stoðum farsæls, langs og ástríks sam-
bands er að sátt sé um peningamálin. Raunar
segir í grein fjármálaritsins Forbes að rann-
sóknir sýni trekk í trekk að fátt hefur meira
forspárgildi um líkurnar á skilnaði en hversu oft
pör rífast um fjárhaginn.
Skipta má fjármálarifrildum í sex flokka og í
öllum tilvikum er hægt að draga úr líkunum á
núningi og ósætti með því að hafa nokkur heil-
ræði í huga.
Peningarnir í pott
Það fyrsta sem Forbes nefnir er sá núningur
sem er nánast óhjákvæmilegur þegar tveir ein-
staklingar byrja að sameina hjá sér fjárhaginn.
Það getur verið ákveðið tilraunaferli að finna
það fyrirkomulag sem hentar best, s.s. hvort
allt á að fara í einn sjóð eða hvort betra er að
hvor haldi sínum fjármálum fyrir sig með einn
sameiginlegan reikning fyrir sameiginleg út-
gjöld. Það er ágætt að sýna sveigjanleika og
hafa ágætan skammt af þolinmæði á þessu stigi
sambandsins.
Ekki ætti að koma á óvart að skuldir geta
verið þrætuepli, hvað þá ef annar aðilinn er með
mun stærri skuldabagga en hinn. Engum þykir
gaman að upplifa sig sem fjárhagslega byrði, né
heldur er gaman að sitja uppi með kostnaðinn
af skuldasöfnun einhvers annars.
Pör ættu að reyna að forðast að líta á gömlu
skuldirnar sem einhvers konar tossastimpil á
þeim sem á skuldirnar. Það getur líka verið til
marks um þroska, styrkt sambandið og bætt
fjárhagshorfur heimilisins til lengri tíma litið ef
báðir takst í sameiningu á við það verkefni að
saxa hratt og vel á skuldirnar.
Áætlun tryggir friðinn
Útgjöld heimilisins geta verið endalaus upp-
spretta rifrilda, sérstaklega ef annar aðilinn
upplifir sig sem sparasaman en hinn sem eyð-
sukló. Fyrir það fyrsta verður að skilja að oft-
ast verður ákveðin verkaskipting hjá pörum svo
að annar sér um algenga útgjaldaliði eins og
matarinnkaupin á meðan hinn kaupir minna eða
sjaldnar vöru og þjónustu fyrir sig og heimilið.
Svo verður að muna að það eru ekki endilega
útgjöldin sjálf sem geta valdið pirringi heldur
óvænt fjárútlát og ófyrirsjáanleiki í heimilis-
rekstrinum. Forbes segir hægt að leysa þennan
vanda með því að gera fjárhags- og útgjalda-
áætlun og fylgja henni.
Pör getur einnig greint á um hvernig á að
spara, fjárfesta og byggja upp varasjóð. Sumir
vilja taka meiri áhættu í fjárfestigum en aðrir
velja öruggari kosti sem oft bera þá lægri
ávöxtun um leið. Sumir eru ekki í rónni öðruvísi
en að eiga mjög drjúgan varasjóð til að leita í ef
eitthvað kemur upp á á meðan aðrir eru bjart-
sýnni og djarfari.
Ráðlegt er að pör reyni að skilja vel fjárhags-
legar hugmyndir hvort annars, viti til hvers
sparnaður eða fjárfestingar eru ætlaðar og hver
markmiðin eru. Þannig ætti að vera hægt að
finna meðalveg og móta áætlun sem parið getur
verið samstiga um.
Allt uppi á borðum
Loks er afskaplega skaðlegt, að mati Forbes, að
halda einhverju fjárhagslegu leyndu í sambandi.
Sumum hættir til að fegra fjárhagsástandið fyr-
ir makanum eða fela slæmar ákvarðanir og
áföll. Aðrir skrökva um litlu hlutina, s.s. hvað
fínu nýju gallabuxurnar kostuðu í raun eða að
skotist var á dýran veitingastað með vinunum.
Stundum er ástæðan sú að annar aðilinn vill
verja hinn gegn áhyggjum, eða vill ekki lækka í
áliti, eða vill hreinlega losna við karp og fjas.
En með peninga eins og allt annað gildir að
heiðarleikinn er bestur á endanum. Jafnvel litlar
lygar og leyndarmál geta safnast upp og saxað
smám saman á traustið og ástríkið.
HREINSKILNI OG GAGNKVÆM TILLITSSEMI
Ekki láta fjármálin
eyðileggja sambandið
FÁTT ER ÞAÐ SEM PÖR RÍFAST MEIRA UM EN PENINGAR OG ÚTGJÖLD. MEÐ ÞVÍ AÐ FYLGJA NOKKRUM GRUNNREGLUM
ER HÆGT AÐ STUÐLA AÐ FJÁRHAGSLEGUM SAMHLJÓMI Í SAMBANDINU OG STILLA TIL FRIÐAR.
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Það er fátt sem stöðvar par sem er fjárhagslega
samstillt. Piltur og stúlka stilla sér upp fyrir ljós-
myndara á götu í Seúl.
AFP