Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Side 45
Frjáls viðskipti ríkja frábær hugmynd
Það var prýðileg hugmynd á meginlandi Evrópu að
sameinast um að gera verslun og viðskipti aðgengi-
legri á svæðinu en verið hafði. Slík breyting gat ekki
annað en verið hagfelld fyrir alla þá sem innan svæð-
isins búa og hlaut að leiða til ávinnings fyrir alla. Best
hefði svo verið ef ríki álfunnar hefðu í framhaldinu
bent á hve þetta hagræði hefði reynst þeim sjálfum
vel og beitt sér fyrir því af sannfæringu að þess háttar
breyting yrði gerð á heimsvísu, með hagsmuni verald-
arinnar að leiðarljósi. En ESB er tollabandalag sem
stefnir að því að breytast í eitt ríki innan ríkistoll-
múra, þótt einstökum þjóðum hafi ekki verið sagt frá
því. Þess vegna fóru búrókratarnir út af beinu braut-
inni til opins markaðar á milli sjálfstæðra ríkja. Það
sést best á því þegar í ljós kemur að þeir sem ætluðu
að greiða fyrir frjálsum viðskiptum í meginatriðum
eru búnir að setja 100 þúsund blaðsíður af opinberum
fyrirmælum í kringum frelsið. Það segir sig sjálft að
yfir 90 þúsundir þeirra eru örugglega óþarfar og iðu-
lega skaðlegar.
Þarf ekki að skoða gamlar forsendur?
Þá hafa upphaflegu forsendurnar aldrei verið skoð-
aðar í ljósi fenginnar reynslu.
Ekki hefur verið rannsakað hvort galopnar reglur
um flutning fólks á milli ríkja séu endilega forsenda
þess að frjáls markaður á milli manna og þjóða þrífist.
Sambandið sjálft og helstu talsmenn þess endurtaka
frasa, rétt eins og þeir séu komnir úr helgiritum, ef
um slíkt er rætt. Ekki nóg með það. Því spyrji menn
slíkra spurninga þá er stutt í dylgjur um að þeir hinir
sömu séu sennilega kynþáttahatarar eða þjóðern-
isofstækismenn og gott ef þeir séu ekki andlega
skyldir þeim kónum úr nýliðinni sögu sem mest eru
fyrirlitnir og verðskulda það. Innst inni vita þó allir að
engin þjóð ber óhefta og skiljanlega ásókn fólks af fá-
tækari svæðum inn til þjóðar sem byggt hefur upp ör-
látt velferðarkerfi á löngum tíma með háum sköttum.
Ef fjölmennir hópar sem ekkert hafa til slíks kerfis
lagt geta keypt sér miða í ferju eða flug og átt
skömmu eftir landtöku sama rétt og heimamenn, þá
gengur það dæmi ekki óbreytt upp. Annað hvort þarf
þá enn að hækka skatta og öll iðgjöld og það upp úr
öllu valdi eða draga snarlega úr þeirri þjónustu sem
þeir sem fyrir eru héldu að þeir hefðu tryggt sér. Það
þarf ekki Einstein til að fara með það dæmi upp á
töfluna, svo að sá glöggi maður sé aftur dreginn að
ósekju inn í umræður um innflytjendur. Þessi veru-
leiki er smám saman að verða þrúgandi í ýmsum ríkj-
um ESB. Og af því að þöggun ríkir og pólitískur rétt-
trúnaður bannar alla óþægilega umræðu um málið er
hætt við því, að einmitt þeir sem færa málið í ann-
arlegan farveg taki umræðuna yfir. Þá er orðið stutt í
það sem allir þykjast vilja varast. Bresk yfirvöld eru
að þokast í átt til þess að láta undan eigin áhyggjum
og stórs hluta þjóðarinnar af þessari þróun. Þegar
þeir anda því út úr sér heyrast stóryrt viðbrögð í
Brussel. Kannski á það eftir að breytast. Hollend-
ingar eru farnir að ókyrrast og Frakkar eru senni-
lega nær sömu hugsun en opinberlega er viðurkennt.
Hollande forseti gæti því óvænt beint næsta framhjá-
haldi sínu að rétttrúnaðarmönnum í Brussel.
Ókyrrð í Alpafjöllum
Sviss hefur ákveðið, með frægri niðurstöðu í þjóð-
aratkvæðagreiðslu, að stíga skref til baka varðandi
frjálsa för yfir landamæri, að þessu leyti. Pólitísk
fyrirmenni í ESB og búrókratar þess brugðu ekki
vana sínum. Þeir höfðu strax í hótunum við Svisslend-
inga. Það er þó sérkennilegt af ýmsum ástæðum. Þar
á meðal þeirri að í ljós kemur, þegar textinn er skoð-
aður, sem var undir í kosningunum, að stigið var
mjög varlega til jarðar. Yfirvöldum er gefinn góður
tími til að laga sig að niðurstöðunni og hún er að auki
fjarri því að vera afgerandi. En það skrítnasta er, að í
Brussel virðast menn líta svo á að allur aðgangur að
innri markaðnum sé aðeins í þágu ríkisins sem fær
náðarsamlegast aðgang að honum. En þegar horft er
til hagvaxtar og þróttar í Sviss annars vegar og öðr-
um hluta innri markaðarins hins vegar, eru bein-
harðar tölur mun hagstæðari Sviss. Þessi hroki fer
því ESB illa. En hann kemur ekki Íslendingum á
óvart. Þeir fengu að finna fyrir honum haustið 2008,
þeir fengu að finna fyrir honum í Icesave málinu og í
makrílmálinu. Það bjargaði því sem mátti, að menn
stóðu í lappirnar fyrstu vikurnar eftir „hrun“. En frá
og með vorinu 2009 var annars konar mannskapur
kominn í brúna, bæði í ríkisstjórn og seðlabanka. Þó
náði þjóðin að bjarga miklu eftir að forsetinn fól
henni að fara með Icesave-málið í tvígang. En hún
komst ekki að þegar sömu öfl beittum öðrum ráðum
til að þóknast yfirgangssömum „kröfuhöfum“. Ekki
heldur þegar þeim voru gefnir tveir af þremur við-
skiptabönkum með óboðlegum aðferðum og enn síður
þegar ótrúlegur aulasamningur var gerður um upp-
gjör á milli gamla og nýja Landsbankans.
Ekki skemma gott mál
Innri markaður í Evrópu er mjög gott mál. En slíku
frjálsu samstarfi má ekki drekkja í 100 þúsund blað-
síðum fullum af fyrirmælum um stórt og smátt. Hinn
frjálsi markaður er ekki forsendan fyrir svo út-
þrútnum ósköpum heldur óbifanleg ákvörðun ólýð-
ræðislegrar forystu ESB um að koma drýgstum
hluta fullveldis ríkja álfunnar yfir á skrifræðið, svo
það megi enda í einu stórríki. Réttlætingar þess eru
langsóttar. Því er haldið fram að Evrópusambandið
hafi komið í veg fyrir stríð í álfunni eftir 1945. Nær
allan þann tíma var annar hluti álfunnar undir stjórn
stórfurstanna í Kreml. Hinn var nær allur í Nato.
Bandaríkin höfðu 100 þúsund hermenn í Þýskalandi.
Hverjir áttu að fara í stríð og við hvern? Hvaða styrj-
öld á meginlandinu kom ESB í veg fyrir? Hvaða en-
demis vitleysa er þetta? Og hvers vegna þarf að fara
með slíkt fleipur? Víðtækt markaðssvæði á meg-
inlandinu er prýðilegt. Frjáls viðskipti eru til þess
fallin að ýta undir friðsamlega sambúð. Það segir
okkur gömul reynsla og ný. Það þarf ekki fáránlegar
furðusögur til að réttlæta eitt eða neitt í því sam-
bandi. Hvers vegna þarf að fabúlera um það að búró-
kratar í Brussel hafi tryggt frið í álfunni frá árinu
1945? Innst inni vita allir að slíkt er uppspuni. Þeir
meintu snillingar gátu ekkert, frekar en leiðtogar
Evrópusambandsins, þegar eldar kviknuðu í bak-
garði þess fyrir rúmum tveimur áratugum. Þeir
héldu auðvitað marga neyðarfundi, eins og vant er, en
ekkert gerðist. Mannfall óbreyttra borgara var óg-
urlegt og það breyttist ekki fyrr en Bandaríkjunum
ofbauð aumingjagangurinn og Bill Clinton skarst
nauðugur í leikinn. Og nú bendir margt til að næstu
misseri og ár muni menn sækja ófriðinn til ESB.
Morgunblaðið/Ómar
* Ekki hefur verið rannsakaðhvort galopnar reglur umflutning fólks á milli ríkja séu
endilega forsenda þess að frjáls
markaður á milli manna og þjóða
þrífist. Sambandið sjálft og helstu
talsmenn þess endurtaka frasa,
rétt eins og þeir séu komnir úr
helgiritum, ef um slíkt er rætt.
16.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45