Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Side 61
framherji Arsenal, Ryan Giggs,
hinn síungi vængmaður erkifjend-
anna í Manchester United, og
Carlo Ancelotti, einn sigursælasti
þjálfari heims sem meðal annars
gerði Chelsea að Englandsmeist-
urum árið 2010. Í dag standa
áhorfendur svo sannarlega undir
nafni og syngja fullum hálsi, rauðl-
iðum innanvallar til innblásturs. Í
bland við sönglög um liðið sjálft
kyrja þeir söngva um staka leik-
menn, ekki síst ef sérstakt tilefni
er til. Þegar Gerrard leggur Jack
Wilshire kylliflatan með öxlinni, til
að svara fyrir árekstur við sama
Arsenal-leikmann skömmu áður,
upphefst samstundis söngur, kyrj-
aður við lagið Que Sera, Sera;
„Steve Gerrard, Gerrard, // He’ll
pass the ball 40 yards,// he’s big
and he’s f**kin’ hard,// Steve Gerr-
ard, Gerrard.“ Þegar Joe Allen
byrjar að hita upp á hliðarlínunni
byrjar kvenpeningurinn þegar í
stað að kyrja, við lagið „I Wanna
Dance
With
Somebody“
með Whitney heit-
inni Houston: „Oh I
wanna dance with Joe Allen, //
I wanna feel the heat with Joe
Allen …“
Andrúmsloftið er eins og
þjóðhátíð sé í fullum gangi og
leikmenn Liverpool eru ákaft
hylltir þegar flautað er til hálf-
leiks. Viðstaddir eru í hálfgerðu
gleðilosti yfir veislunni sem pilt-
arnir hans Brendans Rodgers
hafa boðið upp á. Meðal laga sem
spiluð eru í hljóðkerfinu er slagari
Johnny Cash, Ring of Fire, og
áhorfendur raula einum rómi
trompetstefið úr laginu fljótlega
eftir að seinni hálfleikur hefst.
Stuðningsmennirnir sveifla rauðum
treflum sínum allir sem einn og þá
er sem stúkurnar skíðlogi. Anfield
er að sönnu eldhringur þessa
stundina og Arsenal er að fuðra
upp í logunum.
Þvílík stemning! Fyrir aftan vin
minn situr eldhress Skoti sem
gerði sér ferð frá Glasgow til að
vera viðstaddur þennan leik og
hann ræður sér naumast fyrir
gleði. Þegar Liverpool skorar
fimmta markið ærist hann hrein-
lega af fögnuði og faðmar vin minn
þéttingsfast að sér. Kunninginn
lætur sér það vel líka og faðmar á
móti; eins gott að Skotinn veit ekki
að viðkomandi vinur er í raun harð-
ur stuðningsmaður Arsenal – en
það er ekki hægt annað en að smit-
ast af gleðinni meðal stuðnings-
manna Liverpool, svo vinurinn leik-
ur með.
Ég man
óljóst eftir
markinu sem
Mikel Arteta,
fyrirliði Arsenal,
skoraði úr vítaspyrnu
síðar í leiknum enda
skipti það engu máli. Að
leik loknum er hetjunum
fagnað vel og lengi enda
er þetta stærsti sigur
Liverpool á Arsenal síð-
an í mars 1964.
Að hyllingu lokinni tín-
ast tugþúsundir alsælla
Púllara aftur út í hvunn-
daginn – sem verður,
vel að merkja, talsvert
ljúfari í ljósi úr-
slitanna.
Þessi dagur gleym-
ist aldrei.
Leikmenn Liverpool fögnuðu fimm sinnum marki gegn Arsenal um síðustu
helgi. Þeir Suárez, Coutinho og Flanagan fagna hér marki Raheem Sterling.
EPA
16.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 61
Verslunarstjóri - Lifandi starf
Við hjá Lín Design leitum að öflugum verslunarstjóra
í verslun okkar í Reykjavík. Um er að ræða 100%
starf. Í boði er spennandi framtíðarstarf hjá
ört vaxandi fyrirtæki sem leitar að þjónustuliprum,
jákvæðum og skapandi einstaklingi sem býr yfir
frumkvæði og er góður í mannlegum samskiptum.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í almennri
verslunarstjórn en menntun mætti gjarnan tengjast
listasviði, s.s. hönnunar- útstillinga- og markaðsmálum.
Umsóknir berist ásamt ferilskrá á netfangið
lindesign@lindesign.is fyrir fimmtudaginn
20. febrúar 2014.
Lín Design Laugavegi 176 & Glerártorgi Akureyri www.lindesign.is
Goðsögnin
Bill Shankly.