Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Qupperneq 64
SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2014
Átakið og söfnunin Öll í einn hring fyrir Barnaspítala
Hringsins hefur staðið yfir frá 1. febrúar og í dag fer
fram 1.000 króna markaður á KEX hosteli á vegum
átaksins en markaðurinn er einn af fjölmörgum við-
burðum þess. Átakið er sprottið upp úr áfanga sem
kenndur er í háskólanum og nefnist Samvinna og árang-
ur en Elmar Hallgríms Hallgrímsson, lektor við Háskóla
Íslands, kennir hann.
„Hugmyndin kom frá Elmari en málefnið er þarft og
eins og landsmenn vita þá er Barnaspítali Hringsins
ákaflega mikilvæg og verðmæt stofnun,“ segir Birna
Harðardóttir, viðskiptafræðingur og meistaranemi í
stjórnun og stefnumótun. „Fólk hefur tekið einstaklega
vel í þetta og vilja flestir leggja sitt af mörkum til að
leggja málefninu lið. Söfnunin hefur gengið vonum fram-
ar og vil ég þá nota tækifærið og þakka öllum fyrir sem
hafa tekið þátt í átakinu.“
Ýmis fyrirtæki hafa gefið fjölbreyttan varning sem
verður til sölu á markaðnum í dag og má þar meðal ann-
ars nefna gjafabréf á veitingastaði, kort í líkamsrækt,
fatnað, snyrtivörur, bækur og fleira. „Vörurnar eru hver
annarri glæsilegri og er þetta viðburður sem enginn ætti
að láta framhjá sér fara. Styrkjum gott málefni,“ segir
Birna að lokum.
Frá vinstri: Sandra Björk Stefánsdóttir, Birna Harðardóttir, Guðfinna Erla Jörundsdóttir, Auður Inga Stefánsdóttir, Elmar
Hallgríms Hallgrímsson og Herdís Helgadóttir standa fyrir góðu málefni.
Morgunblaðið/Ómar
ÞÚSUND KRÓNA MARKAÐUR Á KEX
Styrkja Barnaspítala Hringsins
Sheila Ranea Crabtree, gekk á
fund dómara í vikunni og breytti
nafni sínu í Sexy Ranea Crabtree.
Eftir smáumhugsun samþykkti
dómarinn, Robert Hoover, nafn-
breytinguna.
Sexy, sem er tveggja barna
móðir, á tvær unglingsstelpur,
sagði við CNN-fréttastofuna að
hún hefði alltaf hatað Sheilu-
nafnið og þá gengi hún alltaf í
nærfötum frá Victoriu Secret.
Sexy lá því beinast við. „Fjöl-
skyldan mín og vinir hafa sýnt
þessari ákvörðun mikinn skilning.
Ég er mjög opinn persónuleiki og
finnst gaman að lífinu. En ég
þoldi ekki nafnið mitt og fannst
kominn tími að breyta því,“ sagði
Sexy en hún hafði valið úr þrem-
ur nöfnum; Sparkle og Sinder
komu einnig til greina. Sexy varð
hinsvegar fyrir valinu.
Internetið var fljótt að taka við
sér og varð Sexy, fljótlega eftir
að dómarinn hafði veitt henni
nafnið, skotspónn húmorista víða
um heim. Hún sá sum ummæli
um sig en var bara alveg sama
hvað heiminum finnst. Hún er
ánægð og það skipti mestu.
„Loksins er ég laus við þetta ljóta
nafn og get brosað framan í
heiminn,“ sagði Sexy Ranea
Crabtree.
FURÐUR VERALDAR
Breytti
sér í Sexy
Sexy Ranea Crabtree ásamt eiginmanni sínum. Sheila var 987. vinsælasta
nafn Bandaríkjanna árið 2009. Sexy komst ekki inn á topp 1.000.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Dóra
landkönnuður
Sigríður Thorlacius
söngkona
Adele
söngkona
Vodafone H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
INTERNET
10 GB
50 GB 100 GB
INTERNET
50 GB
150 GB
INTERNET
100 GB
250 GB
INTERNET
150 GB
UM ALLT AÐ 400%
GAGNAMAGN
MIKLU MEIRA
VIÐ HÖFUM AUKIÐ
INNIFALIÐ ERLENT GAGNAMAGN
Nánar á vodafone.is
VERÐ HÆKKAR EKKI
ER NÚ
ER NÚ
ER NÚ
ER NÚ
500 GB
INTERNET
250 GB
ER NÚ