Morgunblaðið - 05.03.2014, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 05.03.2014, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2014 - með morgunkaffinu Fjölmargir lögðu leið sína í IKEA í Garðabæ í gær til að fá sér saltkjöt og baunir á sprengideginum. Nú brá svo við að IKEA bauð góðgætið ekki lengur á tvær krónur, líkt og frá 2009, heldur hafði rétturinn hækkað í 995 krónur, eða fimm- hundruðfalt milli ára. Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA, segir fyrirtækið hafa boðið túkallinn vegna kreppunnar, en nú sé henni í raun lokið. Að auki hafi margir ekki kunnað sér magamál í fyrra og etið sér til óbóta. Saltkjötið hækkaði fimmhundruðfalt Morgunblaðið/Golli Gunnar Bragi Sveinsson utan- ríkisráðherra tók þátt í norður- slóðaráðstefnu The Economist í London í gær. Þar hélt hann erindi þar sem hann fjallaði um mál- efni norðurslóða, bæði þá þróun sem á sér stað á alþjóðavettvangi sem og aukin tækifæri og þá möguleika sem Ísland stendur frammi fyrir þeg- ar uppbygging á norðurslóðum er annars vegar. Þá lagði hann áherslu á að gæta þyrfti vel að íbúum svæðisins, um- hverfismálum og vistkerfi norður- slóða þegar kæmi að framtíðarupp- byggingu svæðisins. Gunnar Bragi sagði að Ísland væri vel í stakk búið til að nýta sér þau tækifæri sem byðust þegar kæmi að uppbyggingu á Grænlandi, auknum siglingum á siglingaleiðum á norð- urslóðum og mögulegri olíuleit á Drekasvæðinu enda innviðir sterkir hér á landi. „Aukinn alþjóðlegur áhugi á norð- urslóðum endurspeglast í aukinni þátttöku ríkja utan norðurslóða í þeirri uppbyggingu sem er hafin og þeirri sem framundan er,“ sagði Gunnar Bragi í ræðu sinni en þetta er í annað sinn sem ráðstefnan er haldin. Vel í stakk búin til að nýta tækifæri á norðurslóðum Gunnar Bragi Sveinsson Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Vertu vinur okkar á Facebook Ný sending Sparijakkar og kjólar St. 36-52 Gréta Boða kynnir Le Lift frá Chanel, nýtt 24 tíma snjallkrem sem er hnitmiðuð meðferð sniðin að þörfum hvers og eins, ásamt öðrum spennandi nýjungum. kynning á CHAnEL dAgAnA 5.-7. mArs. 20% AfsLáttur Af öLLum CHAnEL vörum Laugavegi 63 • S: 551 4422 Þú minnkar um eitt númer Skoðið sýnishornin á laxdal.is Perfect fit Vertu vinur á Gardeur svartar gallabuxur - Tilboðs- verð Margir litir Ert þúmeð verki? Betri heilsa borgar sig! Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is Stoðkerfislausnir Námskeiðið hentar þeim sem eru með einkenni frá stoðkerfi, vilja læra á sjálfan sig og finna sín mörk í hreyfingu. • 3x í viku:Mán., mið. og fös. kl. 15:00 Þjálfari Anna Borg, sjúkraþjálfari Hefst 10. mars Verð 39.800 (19.900 pr. mán.) • 2x í viku: Þri. og fim. kl. 16:30 Þjálfari Arna Steinarsdóttir, sjúkraþjálfari Hefst 11. mars Verð 33.800 (16.900 pr. mán.) Skráning í síma 560 1010 eða á mottaka@heilsuborg.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.