Morgunblaðið - 05.03.2014, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 05.03.2014, Qupperneq 16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2014 Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Sérfræðingar í líkamstjónarétti Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is www.skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms- lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar- lögmaður FRÉTTASKÝRING Guðmundur Magússon gudmundur@mbl.is Skoðanakannanir þær sem Félagsvísinda- stofnun hefur gert og Morgunblaðið birt síð- ustu daga um fylgi flokka í fjórum stærstu sveitarfélögum landsins benda til þess að nokkur tíðindi komi upp úr kjörkössunum í sveitarstjórnarkosningunum í lok maí. Sam- kvæmt könnunum falla meirihlutar í þremur þessara sveitarfélaga, Reykjavík, Hafnarfirði og Akureyri, og tveir nýir flokkar, Björt fram- tíð og Píratar, festa sig í sessi. Megintíðindin í Reykjavíkurkönnuninni eru fall meirihlutans. Björt framtíð er ekki að endurheimta fylgi Besta flokksins og fylgisaukning Samfylkingarinnar dugar ekki til að hún geti stjórnað borginni án lið- sinnis einhvers þriðja flokksins. Miklar vin- sældir Dags B. Eggertssonar, oddvita Sam- fylkingarinnar, vekja einnig athygli. Um helmingur kjósenda í höfuðborginni vill að hann verði næsti borgarstjóri. Er persónu- fylgi hans langtum meira en fylgi Samfylk- ingarinnar. Ósigur án hliðstæðu Á Akureyri fellur einnig meirihlutinn og það raunar með svo afgerandi hætti að naumast á sér hliðstæðu í íslenskum sveit- arstjórnarkosningum. Listi fólksins sem nú hefur sex bæjarfulltrúa af ellefu fær aðeins einn mann kjörinn í vor. Í Hafnarfirði tapar meirihluti Samfylking- arinnar og Vinstri grænna fjórum bæjarfull- trúm af sjö. Í Kópavogi er annað uppi á teningnum. Þar heldur meirihlutinn og tveir þriggja meirihlutaflokkanna, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, auka fylgi sitt. Þriðja hjólið undir vagninum, Listi Kópavogsbúa, þurrkast út og fengi engan mann kjörinn. samkvæmt könnunum Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir MorgunblaðiðFylgi stjórnmálaflokka Reykjavík Samfylkingin Framsóknar- flokkur Björt framtíð Vinstri- græn Píratar Annan flokk eða lista ? Sjálfstæðis- flokkur *Fylgi Besta flokksins í kosningum 2010. Besti flokkurinn sameinaðist síðar Bjartri framtíð. Kosningar 2010 Könnun 6.-18. nóvember 2013 Könnun 15.-23. janúar 2014 Könnun 18.-23. febrúar 2014 Akureyri Kópavog 5 4 3 1 2 5 3 6 1 * 33,6% 19,1% 34,7*% 7,1% 2,7% 2,7% 26,6% 17,6% 29,4% 10,1% 9,0% 2,3% 5,1% 25,0% 21,8% 29,3% 10,5% 8,2% 2,8% 2,4% 28,4% 23,5% 21,0% 11,7% 9,1% 2,9% 3,4% Sjálfstæðis- flokkur Samfylkingin Framsóknar- flokkur Björt framtíð Vinstri- græn Píratar Annan flokk eða lista ? Listi fólksins Bæjarlistinn 13,3% 10,4% 12,8% 45,0% 9,8% 8,7% 20,7% 16,0% 16,0% 15,6% 13,5% 11,0% 2,1% 1,7% 3,4% 23,2% 16,7% 16,6% 14,7% 13,1% 8,7% 3,9% 1,2% 1,9% 3 2 2 2 1 1 1 1 1 6 1 Sjálfstæðis- flokkur Samfylkingin Framsóknar- flokkur Björt framtíð Vinstri- græn Píratar Annan flokk eða lista ? Kosningar 2010 Könnun 15.-23. janúar 2014 Könnun 18.-23. febrúar 2014 Tíðinda að vænta á vordögum  Meirihlutar falla í nokkrum stærstu sveitarfélögunum  Björt framtíð og Píratar festa sig í sessi SKOÐANAKANNANIR FYLGISÞRÓUN Sveitarstjórnarmenn í Framsóknar- flokknum og Sjálfstæðisflokknum hafa áhyggjur af því að uppnámið og umrótið sem orðið hefur í þjóðfélag- inu vegna ESB-málsins geti haft áhrif á fylgi flokkanna í kosningunum í vor. Í samtölum við Morgunblaðið hafa nokkrir í þessum hópi látið í ljós mikla óánægju með það hvernig stjórnarflokkarnir hafa haldið á mál- inu eftir að skýrsla Hagfræðistofn- unar um ESB-viðræðurnar kom fram. Einn þeirra sem tjáð hafa sig op- inberlega um málið er fráfarandi odd- viti framsóknarmanna í Kópavogi, Ómar Stefánsson. Hefur hann gagn- rýnt ríkisstjórnina og samflokks- menn sína á þingi harðlega. Meðal annars hefur Ómar lagt fram tillögu í bæjarstjórn Kópavogs þar sem skor- að er á ríkisstjórnina að efna til þjóð- aratkvæðagreiðslu um framhald ESB-viðræðnanna. Að sama skapi heyrist í viðtölum við sveitarstjórnarmenn í flokkum sem hlynntir eru þjóðaratkvæða- greiðslu um framhald aðildar- viðræðna við ESB að þeir vonast til þess að óánægjan með málsmeðferð ríkisstjórnarinnar verði þeim lyfti- stöng í kosningabaráttunni. Kannanir gerðar áður en tillagan kom Skoðanakannanir Félagsvísinda- stofnunar fyrir Morgunblaðið í Reykjavík, á Akureyri, í Kópavogi og Hafnarfirði voru gerðar dagana 17. til 23. febrúar. Þeim lauk áður en ESB- skýrslan kom fram og áður en ljóst varð hvernig ríkisstjórnin ætlaði að bregðast við henni. Í ljósi þess að nýrri kannanir Gallup og MMR benda til nokkurs fylgistaps stjórn- arflokkanna á landsvísu eftir að til- lagan um að hætta viðræðunum við ESB kom fram, er ekki óeðlilegt að margir álykti að málið hefði haft áhrif á fylgi flokkanna í sveitar- stjórnakönnununum ef það hefði ver- ið komið fram fyrr. Um það er þó ekkert hægt að fullyrða, enda ljóst að kjósendur gera talsverðan mun á stuðningi við flokka til sveitarstjórna og Alþingis. ESB-málið gæti haft áhrif  Spurningar vakna um áhrifin á sveitarstjórnarfylgi stjórnarflokkanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.