Morgunblaðið - 05.03.2014, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.03.2014, Blaðsíða 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2014 Fimmtudagur 6. mars Kl. 8.30 Keppni og framhaldsskólakynning hefst Kl. 9.00-14.00 Grunnskólanemendur Kl. 10.00-14.00 Atriði á sviði Kl. 13.00 Setningarathöfn Íslandsmóts iðn- og verkgreina 2014 Kl. 14.30 Keppni frestað til morguns Kl. 16.30 Framhaldskólakynning lokar Föstudagur 7. mars Kl. 8.30 Keppni og framhaldsskólakynning heldur áfram Kl. 9.00-14.00 Grunnskólanemendur Kl. 10.00-14.00 Atriði á sviði Kl. 17.30 Keppni frestað til morguns og framhaldskólakynning lokar Laugardagur 8. mars Kl. 8.30 Keppni og framhaldsskólakynning heldur áfram Kl. 11.00-13.00 Atriði á sviði Kl. 14.30 Keppni og framhaldskólakynningu lýkur Kl. 15.00 Skemmtidagskrá Kl. 16.00 Verðlaunaafhending Opið er fyrir almenning alla daga og aðgangur ókeypis Í dag kl. 14-16 verður haldið Ösku- dagsball í Gerðubergi. Plötusnúð- arnir Eric og Starri spila öll bestu danslögin og trúðurinn Wally bregð- ur undir sig betri fætinum og sýnir sirkuslistir með dyggri aðstoð gesta. Í lokin fara allir út í leiki ef veður leyfir á torginu við Gerðuberg og Miðberg. Foreldrar og starfsmenn frístund- heimila eru hvattir til að koma með krakkana og dansa og syngja með okkur. Í kvöld kl. 20 í handverkskaffi Gerðubergs kynnir Félag íslenskra eldsmiða eldsmíði. Þeir Guðmundur Sigurðsson og Bjarni Þór Krist- jánsson leiða gesti í allan sannleik- ann um galdurinn á bak við eld- smíði en auk þess að segja frá, sýna þeir myndir, verkfæri og til- búna gripi. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Aðferðir við eldsmíði hafa lítið breyst frá víkingatímanum. Margir þeirra sem stunda eldsmíði hafa einmitt áhuga á því tímabili og end- urskapa gripi frá þeim tíma. Mögu- leikar í eldsmíði eru þó í raun óþrjótandi en smíða má smærri gripir svo sem skartgripi, sylgjur, hnífa og lása ásamt stærri munum eins og lömum, kertastjökum og kollum svo nokkuð sé nefnt. Eld- smíði nýtur vaxandi vinsælda hér á landi og hópur eldsmiða fer stækk- andi en í hópnum eru bæði karlar og konur á breiðu aldursbili. Upplýs- ingar um Félag íslenskra eldsmiða má nálgast á heimasíðu þeirra, www.eldsmidir.net. Nóg um að vera í Gerðubergi Trúðurinn Wally Sirkuslistir trúðsins vekja gleði hjá börnum. Öskudagsgleði í dag og eld- smíði í kvöld Eldur Margt er hægt að búa til í eldsmíði, stórt og smátt. Kappar Tveir hraustir eldsmiðir að störfum á góðum degi. Útlendingar, eru þemað í nýjasta hefti tímaritsins Milli mála, sem er tímarit um erlend tungumál og menn- ingu, sem Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlend- um tungumálum gefur út. Greinarnar í þessu hefti fjalla um íslensku sem annað mál, ferðalýsingu í bréfi Tómasar Sæmundssonar sem birtist í Fjölni 1836, tvö verk eftir skoska rithöfundinn Robin Jenkins, villi- menn Nýja heimsins í skrifum Michels de Montaigne og fólksflutninga vestur um haf eftir sameiningu Ítalíu 1860 og til upphafs fyrri heimsstyrjaldarinnar. Í greinum utan þema er fjallað um stöðupróf í tungumálum við Háskóla Íslands, skáldsögu Tove Ditlevsen, Man gjorde et Barn Fortræd, og tökuorð á sviði siglinga og skipasmíði. Tímaritið Milli mála um erlend tungumál og menningu Ferðalýsing í bréfi Tómasar Milli mála Tímaritum tungumál. Á vef Stúdentablaðsins studenta- bladid.is er hægt að lesa Stúdenta- blaðið í heild sinni og er þar margt áhugavert að finna, viðtöl og fleira. Einnig er á vefsíðunni athyglisvert viðtal við háskólanemann Þórhall nokkurn Helgason sem nýlega tók upp kvenmannsnafnið Auður sem millinafn. Allt byrjaði þetta sem hrekkur á lokaári í menntaskóla en festist síðan við hann og að lokum sótti hann um að fá nafnið samþykkt hjá Mannanafnanefnd og fékk sam- þykkt, enda gat Þórhallur Auður bor- ið það fyrir sig að í Landnámu er þess getið að Auður sé húsbóndi á Auðs- stöðum og þá er átt við karlmann. Vefsíðan www.studentabladid.is Þórhallur Auður Hann kann vel við nýja nafnið sitt sem hann bætti við nýlega. Þórhallur tók upp nafnið Auður Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.