Morgunblaðið - 05.03.2014, Side 10
Malín Brand
malin@mbl.is
Æ
skuvinkonurnar
Unnur og Hrafn-
hildur hafa báðar
unnið mikið með
börnum og ung-
lingum og hafa áhuga á velferð
þeirra. Hrafnhildur á fimm börn og
Unnur þrjú og eru því nokkuð vel
inni í hugarheimi og veruleika barna
og unglinga. Þær langaði til að sam-
eina krafta sína og koma einhverju
góðu til leiðar og úr varð námskeið
fyrir börn og unglinga í hugleiðslu.
„Við veltum því fyrir okkur
hvernig væri hægt að hjálpa þeim að
hjálpa sér sjálfum. Okkur langar svo
til þess að kenna börnum að slaka á
því við ætlumst til þess að börnin
okkar kunni að slaka á en við kenn-
um þeim það yfirleitt ekki og sjaldn-
ast erum við þær fyrirmyndir sem
þau þurfa í því að slaka á,“ segir
Unnur sem sjálf vinnur alla jafna
sem heilari og læknamiðill og hittir
fjölda barna og unglinga í starfi sínu.
Facebook, Snapchat og áreiti
Unnur segir að við, foreldrarnir,
séum það upptekin sjálf og margt um
að vera að við kunnum ekki að slaka
á. „Við erum eins og hamstrar í hjóli.
Við bara hlaupum hring eftir hring
og þetta er það sem börnin okkar
horfa upp á. Þau fara í skólann og
þar er áreiti í sex til sjö tíma og svo
lengur eftir því sem þau verða eldri.
Síðan koma þau heim og þá taka tóm-
stundirnar við og mörg æfa þau eins
og atvinnumenn í íþróttum, sem get-
ur náttúrlega farið út í öfgar. Síðan
koma þau heim, læra, borða og sofa
nóg þannig að það er alltaf pressa.
Þau fá aldrei að vera ein með sjálfum
sér og kynnast sjálfum sér. Hver er
ég? Fyrir hvað stend ég? Hvað lang-
ar mig og hvað nærir mig? Það er
eins með okkur fullorðna fólkið. Við
stöldrum sjaldnast við fyrr en eitt-
hvað bjátar á,“ útskýrir Unnur.
Það er margt sem tekur tíma
manns frá honum sjálfum og fyrir því
finna börnin, enda áreiti úr öllum átt-
um og oft æði margslungið að átta
sig á því hvaðan það kemur.
„Þú sérð börn í dag alveg frá
tveggja eða þriggja ára, þau fara að
sjónvarpi og byrja að ýta til hliðar
með hendinni á skjáinn því fyrir þeim
er þetta bara norm. Eldri krakkar
sem eru komnir með síma sem eru
nettengdir eru tengdir allan daginn.
Þetta er pípandi á þau og ef það er
ekki Facebook eða Snapchat þá er
það Instagram og allir þessir miðlar.
Þau eru alltaf að kíkja á símann því
þau eru háð þessu. Í raun er þetta
eins og fíkn og ef maður tekur af
þeim þessi tæki þá byggist jafnvel
upp með þeim ótti við að þau séu að
missa af einhverju,“ segir hún.
Meiri þörf fyrir að slaka á
Vegna alls þess sem nefnt er
hér að ofan hlýtur eðli málsins sam-
kvæmt að skapast meiri þörf fyrir að
slaka á og „hlusta á hjartað í stað
þess að fylgja straumnum“, eins og
Unnur orðar það.
Námskeið Unnar og Hrafnhild-
ar hafa verið vel sótt og sem fyrr
segir var ætlunin að halda einungis
námskeið fyrir börn og unglinga en
þær hafa nú bætt við námskeiðum
fyrir fullorðna því þeim varð skjótt
ljóst að ekki var vanþörf á.
Börnin sem námskeiðin hafa
sótt eru á aldrinum 10-14 ára og eru
þau um átta saman í hópi. Næsta
námskeið hefst um næstu helgi og er
aðsóknin góð.
„Við spjöllum um hvað við upp-
lifðum í slökuninni að henni lokinni
og hverju við náðum að sleppa taki á
og umræðurnar eru oft mjög
skemmtilegar. Til dæmis í einni hug-
leiðslunni förum við í huganum ofan
í vatn. Við böðum okkur, syndum og
leikum okkur. Við förum undir foss
og látum hann hreinsa okkur. Áður
en við förum upp úr vatninu skiljum
við eftir eitthvað sem er að trufla
okkur – kvíða, fælni, sorg, pirring
eða reiði – og þau tjá þetta svo opin-
skátt. Við förum líka inn í lítinn helli
og þar fáum við gjöf. Mjög oft þegar
við förum í þessa hugleiðslu með
fullorðnum sjá þeir gjöfina fyrir sér
sem pakka, innpakkaða gjöf. En
börnin upplifa frekar gleði, frið, létti
og meiri tilfinningar,“ segir Unnur.
Það er draumur þeirra vin-
kvenna að hugleiðsla verði hluti af
kennslunni í grunnskólum landsins
og vilja þær leggja sitt af mörkum til
að svo geti orðið. Til stendur að
kynna þær hugmyndir nánar fyrir
kennurum og skólayfirvöldum.
Á sama tíma og mannfólkið fagnar örum tækniframförum og fylgist með heiminum gegnum tilkynningar sem
berast um snjallsíma getur hæfni mannsins til að hvíla hugann glatast. Börn og unglingar þurfa að læra
markvisst að slaka á og gefa smáu hlutunum í umhverfinu gaum og kynnast sjálfum sér um leið. Þetta er mat
þeirra Hrafnhildar Sigurðardóttur og Unnar Örnu Jónsdóttur sem saman kenna börnum og unglingum hug-
leiðslu á námskeiði sem þær nefna Hugarfrelsi.
Morgunblaðið/Golli
Æskuvinkonur Þær
Unnur og Hrafnhildur
hafa þekkst frá því þær
voru börn. Saman vilja
þær kenna börnum að
stunda hugleiðslu til þess
að þau geti notið þess að
vera ein með sjálfum sér
endrum og sinnum. Hug-
arfrelsi eru námskeið
sem þær byrjuðu með í
janúar en þær myndu
líka vilja kenna hug-
leiðslu í grunnskólum.
Ljósmynd/Hrafnhildur Sigurðardóttir
Róleg Unnur segir lítið mál að fá börn til að slaka alveg á í klukkustund.
Börn þurfa að læra að
slaka á og kynnast sjálfum sér
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2014
Í Sparki við Klapparstíg verður opið
tehús frá og með deginum í dag
fram til 20. mars. Í tilkynningu segir
að varla sé hægt að tala um sér-
íslenskt tehús en verkefnið er ein-
mitt leit og mögulega hornsteinn að
íslensku tehúsi.
Um er að ræða rými hannað út frá
tei af hönnunarteymi Attikatta. Þar
má kynnast tei í hinum ýmsu birting-
armyndum og formum sem ekki telj-
ast hefbundin. Teið mun ekki ein-
ungis halda sig í sínum hefbundna
bolla heldur einnig gleðja augu, eyru
og hjarta. Hönnunarteymið hefur
meðal annars safnað íslenskum te-
sögum sem efnivið í tehúsið.
Suðupottur tehússins er sýning 11
hönnuða og samstarfsaðila þeirra á
vörum og þjónustu tengdu tei sem
teygir anga sína og ilm frá Klappar-
stíg og út í Laugardalslaug þar sem
boðið verður upp á tepotta til að
mýkja húðina og styrkja sálina. Sýn-
endur eru þau Eygló Margrét Lár-
usdóttir, Guðjón Tryggvason, Guðrún
Lilja Gunnlaugsdóttir, Hildigunnur
Gunnarsdóttir, Hildur Steinþórs-
dóttir, Hlutagerðin, Siggi Odds,
Snæfríð Þorsteins og Þórunn Árna-
dóttir í samstarfi við Ólöfu Erlu
Bjarnadóttur. Tepottarnir í Laug-
ardalslaug voru opnir sl. sunnudag
og verða aftur opnir laugardaginn
29. mars frá klukkan 13-15.
Attikatti er hugmynda- og við-
burðasmiðja hönnuðanna Báru
Kristgeirsdóttur, Hönnu Dísar White-
head, Hönnu Jónsdóttur og Rúnu
Thors.
Endilega …
… kynnið ykkur
te og tesögur
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Tepokar Tehetta eftir Hildigunni
Gunnarsdóttur og Snæfríði Þorsteins.
Nánar á eftirfarandi síðum:
sparkdesignspace.com
facebook.com/sparkdesignspace
Facebook.com/Attiaktti
Síðumúla 11, Sími 5686899, netfang vfs@vfs.is, 108 Reykjavík. www.vfs.is
RAFMAGNSVERKFÆRI FAGMANNSINS
Skannaðu kóðann
til að lesa meira
um Hugarfrelsi.