Morgunblaðið - 05.03.2014, Page 26
Tilvitnanatíðni á alþjóðavettvangi í vísindavinnu efstu íslenskra
lækna til ársloka 2013 og hins vegar persónlegt mat íslenskrar
stöðunefndar
Tíðni
4.000
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
1 17 33 49 65 8
1
97 11
3
12
9
14
5
16
1
17
7
19
3
20
9
22
5
24
1
25
7
27
3
28
9
30
5
32
1
33
7
Röð lækna
„Verið með afbrigðummikilvirkur í
rannsóknum sínum á hjartasjúkdómum.“
Tilvitnanir 379
Litið framhjá bandarískum sérfræðiprófum og
aðstoðarprófessorsstöðu við erlenda læknaskóla.
„Lítið sinnt rannsóknarstörfum“
Tilvitnanir 931 í tímaritum, og um 200 í kennslubókum
Bandarísk sérfræðipróf mikið lofuð.
„Mikil kennslureynsla.....hlutastaða dósents“
„Afkastamikill við vísindastörf“
Tilvitnanir 141
Undanfarna mánuði hefur Land-
spítali (háskólasjúkrahús!) einkum
lyflæknissvið verið mikið í sviðsljós-
inu og m.a. verið kvartað undan
skorti á hátækniútbúnaði. Einnig
hefur komið fram óánægja með
stjórnun og samskipti. Vel mennt-
aðir sérfræðingar hafa horfið aftur
utan og margir snúa ekki heim að
loknu námi. Þjóðfélagið hefur þar
með misst af þekkingu þeirra og
tengslum við læknaskóla.
Eitt af hlutverkum háskóla-
sjúkrahúss er að mennta unga
lækna og eitthvert mikilvægasta
gæðamat á háskólasjúkrahúsi er
hversu ungir læknar sækja þangað
til sérnáms eftir bóklegt nám í
læknaskóla. Í fréttum um lyflækn-
issvið hins svokallaða háskóla-
sjúkrahúss hefur komið fram að
ungir nýútskrifaðir læknar telji
kennslu þar lélega og forðist að
leita þangað til sérnáms. Þetta er
versti dómur sem háskólasjúkrahús
getur fengið. Vitað er að deild-
arlæknar hafa neitað að vinna á
vöktum með forstöðumanni. Þetta
var kunnugum skiljanlegt.
Lyflæknisfræði er yfirgripsmikið
svið, íslenska orðið er ónákvæm
þýðing á því sem á ensku er nefnt
internal medicine. Skipulag sér-
náms getur verið mismunandi í ein-
stökum löndum. Hér á landi eru nú
viðurkenndar 16 undirgreinar
(subspecialitet) á lyflæknissviði.
Margir lyflæknar læra einnig und-
irgrein, en nokkrir einbeita sér ein-
göngu að undirgrein án heild-
arþekkingar og fá þá eingöngu
afmarkaða sérfræðiviðurkenningu.
Í BNA þykir æskilegt að taka yf-
irgripsmikil sérfræðipróf til stað-
festingar á þekkingu að loknu námi,
svo er einnig í Bretlandi. Dokt-
orspróf í flestum löndum varða af-
markað efni, ekki heildina.
Hátækniútbúnaður kennir ekki
ungum læknum lyflæknisfræði,
heldur reyndir kennarar. Nemarnir
eru þjálfaðir í klínískri vinnu með
ítarlegum viðtölum og skoðun sjúk-
linga sem getur leitt til greiningar
sjúkdóma sem frekari rannsóknir
staðfesta og hefja þá meðferð. En
til þess að svo verði þarf kennarinn
að kunna sitt fag.
Klíkuskapur sem byggist á kunn-
ingsskap, ætterni eða pólitík í emb-
ættisveitingum hefur lengi þekkst
við stöðuveitingar á landinu og
einnig náð til heilbrigðiskerfisins
hvort sem er til veitinga eða höfn-
unar. Vitað er um a.m.k. sex tilfelli
þar sem læknar fengu ábyrgð-
arstöður án tilskildrar sérfræði-
menntunar. Í nokkra áratugi hafa
stöðunefndir átt að meta umsækj-
endur um háskóla eða sjúkra-
hússtöður en það hefur litlu breytt
um starfsvenjur og nefndir getað
hagrætt staðreyndum að vild.
Fyrir alllöngu sóttu sex læknar
um yfirlæknisstöðu í lyflækningum.
Aðeins einn þeirra hafði reynslu í
kennslu lækna í sérnámi eftir að
hafa starfað um sex
ár á einu fremsta há-
skólasjúkrahúsi í
heiminum, lengstu
dvöl lyflæknis á slíkri
stofnun, verið skip-
aður kennari (assist-
ant professor) í lyf-
lækningum og tekið
margföld sérfræði-
próf, sá eini til alls
þessa á Íslandi.
Stöðunefnd taldi
þetta engu skipta og
raðaði viðkomandi næstneðstum
allra sex umsækjenda sem þýðir í
raun vanhæfni til starfa. Eftir hag-
ræðingu stöðunefndar á gögnum
hlaut stöðuna eins og fyrirfram
hafði verið ákveðið vel ættaður póli-
tískt tengdur einstaklingur sem
hafði aðeins kynnt sér eina und-
irgrein lyflæknisfræði.
Mótmæli voru gagnslaus, mál-
sókn var reynd, en dómari taldi
þetta gott og blessað. Niðurstaðan
fyrir mótmælandann var brott-
rekstur og endanleg útilokun frá
sjúkrahúsvinnu og kennslu á Ís-
landi. Hann varð að gera sér að
góðu að hrökklast aftur til síns fyrri
læknaháskóla og halda fyrirlestra
við aðra læknaskóla og á sér-
fræðiþingum, skrifa ritstjórnar-
greinar og bókarkafla og vinna á
hjúkrunarheimili á Íslandi.
Vísindavinnuna sem var lögð
fram við umsókn taldi stöðunefndin
lítils virði en til hennar var síðar
vitnað í kennslubók Háskóla Ís-
lands í lyflæknisfræði.
Við tilraun til endurupptöku
málsins m.t.t. röðunar
var bent á framgang á
alþjóðavettvangi byggð-
an á upphaflegum
grunni, en dómendur
gátu ekki séð neitt mót-
sagnakennt við staðfest-
ingu héraðsdómarans
um vanhæfni til starfa á
Íslandi. Samstaða dóm-
enda er algjör.
Þessi reynsla er því
miður ekki einsdæmi.
Forystustörf í sjúkra-
húsgeiranum tengjast
yfirleitt kennarastöðum í lækna-
deild HÍ. Stöðunefndir hafa oft
hafnað einstaklingum á mjög nei-
kvæðan hátt sem hafa numið eða
síðar starfað við háskóla svo sem;
Harvard, Yale, Karólínska, Sa-
hlgrenska, Kings College og Árósa.
Mótmæli hafa verið árangurslaus.
Fullyrða má með tilliti til þess-
arar reynslu að hið bága ástand
heilbrigðiskerfisins sé ekki síst
dómstólum að kenna.
Vald stöðunefnda hér á landi án
nokkurs málskotsréttar á sér ekki
hliðstæðu í nágrannalöndum. Jafn-
vel læknadeild hefur stundum of-
boðið en ekki getað hnekkt áliti
stöðunefnda og miklar deilur hafa
verið innan HÍ eins og sést hefur í
fjölmiðlum. Það er tilgangslaust
fyrir ungt menntafólk að fórna
framamöguleikum í starfi erlendis
og snúa heim nema hafa tryggt sér
pólitísk tengsl og velvild stöðu-
nefnda.
Ef bæta á heilbrigðiskerfið og HÍ
verður að hætta að skipa í stöður
eins og vel ættaða pólitíska komm-
issara, og leggja áherslu á „há-
kunnáttu“ ekki síður en hátækni.
Almenningur á rétt á að tryggt sé
að hæfir einstaklingar veljist til
ábyrgðarstarfa.
Dómstólar hafa ekki séð mun á
réttu eða röngu.
Stöðunefndir og dómstólar
Eftir Birgi
Guðjónsson
»Ef bæta á heilbrigð-
iskerfið verður að
hætta að skipa í stöður
eins og pólitíska komm-
issara, og leggja áherslu
á „há-kunnáttu“ ekki
síður en hátækni.
Birgir Guðjónsson
Höfundur er læknir, MACP, FRCP,
AGAF. Fv. aðstoðarprófessor við
Yale School of Medicine.
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2014
Hvað skyldu þau
sem eldri eru segja?
Ætli reynsluboltarnir
hafi verið spurðir? Er
það nógu hipp og kúl
fyrir unga fólkið, sem
er við stjórnvölinn í
dag, að leita í smiðju
til þeirra sem teljast
til eldri borgara?
Þetta fer maður að
spá í þegar fjölgar ár-
unum. Ekki það að ég telji mig til-
heyra öldungadeildinni, þvert á
móti, en það kemur að því. Þau
sem eru á efri árum, öldungar,
eldri borgarar eða hvaða nafni sem
þessi hópur er nefndur, er einmitt
sá hópur sem hefur víðtæka þekk-
ingu og reynslu, sem er mjög mik-
ilvæg hverju samfélagi. En þar að
auki eru ýmis hagsmunamál sem
snúa að öldungum bæjarins sér-
staklega. Þessar hugrenningar
komu upp við lestur greinar eftir
Jónu Valgerði Kristjánsdóttur, for-
mann Landssambands eldri borg-
ara, í Morgunblaðinu fyrir stuttu.
Þar varpar hún fram þeirri góðu
hugmynd, að sveitarstjórnir skipi
öldungaráð til að skapa samráðs-
vettvang fyrir sveitarstjórnarmenn
og félög eldri borgara. Málefni
eldri borgara er mikilvægur mála-
flokkur í hverju sveitarfélagi, og
þar er mitt sveitarfélag, Kópavog-
ur, ekki undanskilið. Það hlýtur að
teljast eðlilegt að hafa samráð og
samvinnu við félög
eldri borgara þegar
ákvarðanir eru teknar í
sveitarfélögum um
málefni, sem snerta
hagsmuni þeirra. Þar
má nefna búsetumál,
heimaþjónustu, tóm-
stundir, hjúkrun og
fleira. Samfylkingin
talar fyrir virku sam-
ráði við íbúana og öld-
ungaráð fellur þar
sannarlega undir. Ná-
grannar okkar í Hafnarfirði hafa
starfrækt öldungaráð undanfarinn
áratug, og þar er því komin
reynsla, sem við getum nýtt okkur
þegar okkar öldungaráð verður að
veruleika.
Nokkur æskudýrkun hefur ríkt á
Íslandi. Reynsla og þekking hefur
oft á tíðum vikið fyrir „hipp og kúl“
kynslóðinni og viðhorfum hennar. Í
þessu, sem svo mörgu öðru, þarf að
ríkja jafnvægi. Það þarf að ríkja
jafnvægi milli kynslóðanna, hver
kynslóð þarf að eiga möguleika á að
hafa áhrif á samfélagið og sitt nær-
umhverfi, sín hagsmunamál.
Mér finnst blasa við að Samfylk-
ingin í Kópavogi muni koma á öld-
ungaráði í Kópavogi eftir næstu
bæjarstjórnarkosningar þannig að
hægt verði að hafa öflugt samráð
við ýmis félög eldri borgara um
málefni þeirra. Það eru hagsmunir
Kópavogs að fá að nýta sér þekk-
ingu þeirra sem eldri eru með sam-
ráðsvettvangi sem virkt öldungaráð
getur orðið.
Öldungaráð
í Kópavogi
Eftir Pétur Hrafn
Sigurðsson
Pétur Hrafn Sigurðsson
» Það þarf að ríkja
jafnvægi milli kyn-
slóðanna, hver kynslóð
þarf að eiga möguleika
á að hafa áhrif á sam-
félagið og sitt nær-
umhverfi, sín hags-
munamál.
Höfundur er oddviti Samfylking-
arinnar í Kópavogi.
Morgunblaðið gefur þann
27. mars út glæsilegt
sérblað um HönnunarMars
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARFRESTUR
AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 12,
mánudaginn
24. mars.
NÁNARI
UPPLÝSINGAR
GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Hátíðin verður haldin
víðs vegar um Reykjavík
þar sem saman koma
íslenskir hönnuðir og
sýna fjölbreytt úrval
nýrrar íslenskrar hönn-
unar og arkitektúrs af
margvíslegu tagi.
HönnunarMars
DesignMarch
Reykjavík 27.-30.03.2014
– með morgunkaffinu
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Félag eldri borgara Reykjavík
Fimmtudaginn 27. febrúar var spil-
aður tvímenningur hjá bridsdeild Fé-
lags eldri borgara, Stangarhyl 4,
Reykjavík. Spilað var á 12 borðum.
Efstu pör í N/S:
Ragnar Björnsson - Bjarni Þórarinss. 262
Magnús Oddsson - Oliver Kristóferss. 251
Helgi Hallgrímss. - Ægir Ferdinandss. 242
Hrafnh. Skúlad. - Guðm. Jóhannsson 235
A/V:
Bjarni Guðnas. - Guðm. K. Steinbach 268
Kristín Guðmundsd. -Kristján Guðmss. 257
Helgi Samúelss. - Sigurjón Helgas. 247
Albert Þorsteinss. - Bragi Björnsson 234
Mánudaginn 3. mars var spilaður
tvímenningur á 13 borðum.Efstu pör í
N/S:
Siguróli Jóhannss. - Jón Þ. Karlsson 362
Björn Árnason - Auðunn Guðmss. 258
Friðrik Jónsson - Jóhannes Guðmannss. 355
Guðlaugur Bessas. - Trausti Friðfinnss. 346
A/V
Albert Þorsteinss. - Bragi Björnsson 394
Axel Lárusson - Bergur Ingimundars. 380
Bjarni Guðnason - Guðm. K. Steinbach 369
Gunnar Jónss. - Magnús Jónsson 337
Fimm lotur búnar í keppninni
um Súgfirðingaskálina
Í byrjun góu var spiluð fimmta lota
um Súgfirðingaskálina, tvímennings-
keppni Súgfirðingafélagsins.
Karl Bjarnason og Ólafur Ólafsson
voru í ham eftir vel heppnað þorrablót
félagsins og höfðu nauman sigur eftir
hörkukeppni.
Úrslit 5. lotu, meðalskor er 88 stig.
Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 103
Þorsteinn Þorsteinss. - Rafn Haraldss 102
Friðgerður Benediktsd. - Kristín Guðbjörnsd.
100
Finnbogi Finnbogas. - Árni Sverrisson 99
Heildarstaðan, meðalskor 550 stig.
Þorsteinn Þorsteinss. - Rafn Haraldss. 654
Flemming Jessen - Kristján H. Björnss. 613
Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 598
Gróa Guðnad. - Guðrún Jóhannesd. 572
Eðvarð Sturluson - Mortan Hólm 556
Kristján Pálss. - Ólafur Karvel Pálss. 556
Staða Þorsteins og Rafns er nokk-
uð vænleg fyrir síðustu tvær loturnar.
Veðbankar eru enn opnir.
Næst verður spilað 24. mars, rétt
fyrir upphaf einmánaðar.
Fimmtán borð í
Gullsmáranum
Fimmtudaginn 27. febr. var í Gull-
smára spilað á 15 borðum.
Úrslit N/S:
Örn Einarsson – Sæmundur Björnss. 326
Jón Bjarnar – Sigurður Björnsson 312
Jón Stefánsson – Viðar Valdimarss. 305
Óskar Ólason – Magnús Marteinsson 297
Guðlaugur Nielsen – Pétur R. Antonss. 295
Úrslit A/V:
Ormarr Snæbjss. – Sturla Snæbjörnss. 332
Ágúst Vilhelmss. – Kári Jónsson 326
Ragnar Haraldss. – Bernhard Linn 301
Hrólfur Gunnarss. – Gunnar M. Hanss. 295
Jón I. Ragnarss. – Sæmundur Árnas. 278