Morgunblaðið - 05.03.2014, Qupperneq 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2014
Elsku amma mín.
Mig langar að
kveðja þig með broti
úr sálmi sem þú
hafðir undirstrikað í
Biblíunni þinni sem þú gafst mér
og mér þykir svo undurvænt um.
„Þegar ég hugsaði: mér skriðnar fótur,
þá studdi mig miskunn þín, Drottinn.
Þegar margar áhyggjur lögðust á hjarta
mitt,
Sigurlína
Sigurgeirsdóttir
✝ Sigurlína Sig-urgeirsdóttir
fæddist 16. júní
1935. Hún lést 12.
febrúar 2014. Útför
Sigurlínu fór fram
26. febrúar 2014.
hressti huggun þín sálu
mína.“
Elsku amma, ég
er svo þakklát fyrir
að hafa átt jafn ynd-
islega, hæfileikaríka
og glæsilega ömmu
og þig sem kenndi
mér svo margt – allt
frá því að útbúa
fiskibollur til þess að
temja mér nægju-
semi og þrifnað. Við söknum þín
og mjúku handanna þinna með
„rauða hringnum“, við söknum
fallega brossins þíns og dillandi
hlátursins, við söknum skemmti-
legu frásagnanna frá Siglufirði,
við söknum þín.
Guð blessi minningu elskulegr-
ar ömmu Línu.
Berglind og fjölskylda.
Mig langar að minnast þín,
amma Lína, í örfáum orðum og
þakka þér fyrir stundirnar sem
við áttum saman. Síðustu árin
voru þér erfið vegna veikinda. Það
er þó ekki minningin um baráttu
þína við illvígan Alzheimers-sjúk-
dóm sem lifir í hjarta mínu heldur
minningin um umhyggjusama,
hlýlega og duglega konu.
Þú varst glæsileg og hafðir
gaman af því að klæða þig upp á.
Þú áttir marga fallega skartgripi
sem þú geymdir á vísum stað og
var spennandi að skoða. Mér er
það sérstaklega minnistætt þegar
þú komst í klippingu í Logafoldina
til mömmu og þið spjölluðuð um
heima og geima á meðan ég sat
hugfangin og hlustaði á hvert orð.
Þú hafðir frá svo mörgu skemmti-
legu að segja.
Ég minnist þess líka með hlý-
hug þegar þú föndraðir með okkur
frændsystkinunum. Þar varst þú
sannarlega á heimavelli, enda ein-
staklega fær handavinnukona.
Það var gaman að skoða allt hand-
verkið heima hjá ykkur afa og það
var ósjaldan sem þú leyfðir mér að
taka eitthvað fallegt með heim.
Þið afi áttuð fallegt heimili í
Fögrubrekku í Kópavogi þar sem
þið bjugguð í áratugi. Þar tókstu
alltaf vel á móti manni og varst
mikil húsmóðir. Oft bauðstu upp á
heimabakaðar kleinur og kæfuna
góðu. Það var gaman að koma í
gróðurhúsið ykkar og fá að klippa
afleggjara af rósunum sem þið
ræktuðuð af miklum áhuga.
Elsku amma, ég minnist þín
með þakklæti í huga og veit að nú
ertu komin á betri stað þar sem
þér líður betur. Guð styrki afa,
pabba, Selmu og Gunnu á erfiðum
tímum.
Þín
Erna.
Diddi bróðir minn
fastnaði sér konu
einhvern tíma í byrj-
un sjöunda áratugar
síðustu aldar. Ein-
hverjum mánuðum áður en það
varð, sá ég Unni í fyrsta skipti.
Það var að mig minnir, í erfi-
drykkju eftir jarðarför, þar sem
hún gekk um beina.
Há og tíguleg, fríð sýnum,
björt yfirlitum og beinvaxin
Unnur
Einarsdóttir
✝ Unnur Ein-arsdóttir fædd-
ist 17. maí 1940.
Hún lést 13. janúar
2014. Útför Unnar
fór fram í kyrrþey
18. janúar 2014.
gekk hún um salinn
og mér varð að orði,
hvaða stúlka er
þetta? Áður en árið
var liðið var hún
orðin mágkona
mín.
Unnur og Diddi
(Kristinn Gunnars-
son frá Nesi) hófu
búskap á Hellu,
eignuðust fljótlega
dreng og síðan aðra
tvo, dæturnar tvær fæddust all-
nokkru síðar. Diddi vann við
smíðar en Unnur var heima með
börnin og vann öðru hvoru utan
heimilis þegar tími og tækifæri
gáfust til, við afgreiðslu hjá
Kaupfélaginu Þór á Hellu,
saumaskap og fleira. Guðrún
dóttir okkar hjóna var hjá þeim
við barnagæslu tvö sumur og bar
Unni og heimilinu vel söguna.
Börnin uxu upp og urðu mann-
vænleg og eiga öll fjölskyldur í
dag. Mörgum okkar í fjölskyld-
unni eru minnisstæð meistara-
verk Unnar í bakstri og kökugerð
allri. Blómum skreyttar marsip-
antertur á borðum á stórhátíðum
og hjá okkur hljóp hún iðulega
undir bagga í fermingarveislum
og verður það seint fullþakkað.
Helsta áhugamál Unnar voru
blóm og ræktun allskonar. Um
skeið átti hún mikið safn fagurra
og sjaldgæfra blóma bæði úti og
inni og á pallinum við húsið var
gott skjól til að gera ýmsar til-
raunir. Trjágarðurinn er stór og
að mestu verk Didda, en einnig
höfðu þau komið sér upp rækt-
unarlandi ofar á bökkum Ytri-
Rangár. Annað áhugamál þeirra
á yngri árum var hestamennskan
en þau áttu nokkra góða hesta og
sérstaklega var Unni kær verð-
launagæðingurinn Frúar-Jarpur
sem keppti oft á hestamannamót-
um. Tveir synir þeirra hafa erft
hestaáhugann frá þeim og eru
þekktir hestamenn. Húsið þeirra
í Ártúni var þeim kært en það
skemmdist nokkuð í jarðskjálft-
unum árið 2000. Það tókst þó að
koma því í samt lag og bjuggu
þau þar bæði til dauðadags. Það
má heita táknrænt fyrir þau, sem
bæði voru heimakær og báru hag
heimilisins og barnanna mest fyr-
ir brjósti að þau skyldu bæði
verða bráðkvödd í húsinu, sem
þau byggðu ung með eigin hönd-
um og ólu upp börnin sín fimm í.
Hann 14. maí 2007 og hún 13. jan-
úar síðastliðinn.
Við þökkum fyrir áralöng
kynni sem aldrei bar skugga á.
Afkomendum þeirra vottum við
dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Unnar og
Didda.
Jóhann og Edda.
Jóhanna Stefánsdóttir starfaði
sem gangavörður hér í Æfinga-
skólanum, nú Háteigsskóla, frá
1975 til vors 1998. Hún var starfs-
maður Æfinga- og tilraunaskóla
Kennaraskóla Íslands, Æfinga-
og tilraunaskóla Kennaraháskóla
Jóhanna M.
Stefánsdóttir
✝ Jóhanna M.Stefánsdóttir
fæddist 2. júlí 1929 í
Eystri-Hól í Vestur-
Landeyjum. Hún
andaðist 18. febrúar
síðastliðinn á heim-
ili sínu, Stað-
arbakka 20 í
Reykjavík.
Jóhanna var jarð-
sungin frá Áskirkju
28. febrúar 2014.
Íslands, Æfinga-
skólans og Háteigs-
skóla sem allir eru
sami skólinn. Hún
starfaði hér í 23 ár
og heimsótti okkur á
hátíðarstundum eft-
ir starfslok og alltaf
fannst mér eins og
hún gæti sest niður
við skrifborðið sitt í
anddyrinu og hafið
störf. Hún var ein af
þeim ótrúlegu manneskjum sem
manni finnst að eldist ekki – hún
var alltaf jafngömul sjálfri sér.
Ég var samstarfsmaður Jóhönnu
í tíu ár. Allmargir eru enn starf-
andi í skólanum sem voru sam-
starfsmenn Jóhönnu og hugsa til
hennar með hlýhug. Aðrir starfs-
menn sem ekki voru henni sam-
tíða hrífast af minningum hinna.
Það voru aðrir tímar þegar Jó-
hanna starfaði hér sem gang-
avörður og hollt að rifja það upp.
Nemendur gerðu kröfur þá eins
og nú og kannski meira þá, því að
okkur þóttu uppeldisaðferðir
hippanna sem voru orðnir for-
eldrar stundum ansi frjálslegar.
Við lok aldar er sjónum meira
beint að börnum með sértækan
vanda og við upphaf þessarar er
sett aukið fé í stuðning. Starfs-
fólkinu fjölgaði þannig með til-
komu stuðningsfulltrúa og skóla-
liða. Hvernig fór Jóhanna að
þessu?
Jóhanna var ein á göngunum á
þessum tíma og var margra
manna maki í atvikum sem þar
komu upp. Hennar nærvera róaði
ástandið, hún var eins og laufmik-
ið tré sem nemendur sóttu undir í
skjól. Jóhanna var einstök til orðs
og æðis. Sérstaklega var til þess
tekið hvað hún var ævinlega vel
til fara og með því sýndi hún bæði
samstarfsfólki og nemendum
virðingu. Við höfum tilhneigingu
til að gleyma því í dag að með
klæðaburði okkar sýnum við
samferðamönnum okkar virð-
ingu. Klæðaburður er ekki bara
fyrir þann sem klæðist fötunum –
í honum felast mikilvæg skilaboð.
Hún var af þeim gamla skóla sem
skildi þennan veruleika og
kannski megum við þrátt fyrir
miklar og örar breytingar varð-
veita sumt af því gamla. Kannski
eru þetta skilaboð sem við meg-
um hlusta á til að heiðra minn-
ingu Jóhönnu gangavarðar.
Við minnumst Jóhönnu vegna
mannkosta hennar sem voru um-
fram allt jákvæðni og þolinmæði.
Það eru hverjum manni forrétt-
indi að eiga vinnufélaga og sam-
ferðamenn sem byggja upp með
hverju handtaki, með hverri
augngotu og skreyta með brosi.
Minning Jóhönnu lifir, yljar
okkar og hvetur.
Ásgeir Beinteinsson,
skólastjóri Háteigsskóla.
Fyrstu minningar mínar um
Árna Bárð tengjast fjölskylduboði
á heimili foreldra hans við
Bræðraborgarstíg, en þangað var
þá boðið foreldrum mínum og
Árni Bárður
Guðmundsson
✝ Árni BárðurGuðmundsson
fæddist á Ísafirði 3.
ágúst 1925. Hann
andaðist á hjúkr-
unarheimilinu Sól-
vangi í Hafnarfirði
12. febrúar 2014.
Útför Árna fór
fram frá Hafnar-
fjarðarkirkju 21.
febrúar 2014.
börnum þeirra, en
Stefán, bróðir minn,
var þá giftur Mar-
gréti, systur Árna.
Ljúf móðir Árna bar
þar fram veglegar
veitingar og faðir
hans sagði frá ýms-
um atvikum úr sínu
lífi, en hann var skip-
stjóri og gerði út vél-
bátinn Hermóð.
Hvað minnisstæðast
úr þessu fjölskylduboð var radd-
aður tvísöngur þeirra bræðra,
Árna og Ólafs, og leikur Árna á
munnhörpu, en hann spilaði einn-
ig á fleiri hljóðfæri. Þeir bræður
sungu samtímis mörg ár í Kirkju-
kór Hafnarfjarðarkirkju og
Karlakórnum Þröstum.
Eftir að Árni varð forstjóri
Prentsmiðju Hafnarfjarðar 1963
voru náin samskipti okkar aðallega
við prentun bæjarblaðsins Borgar-
ans og útgáfu tveggja bóka með
lögum mínum. Öll þjónusta í prent-
smiðjunni var til fyrirmyndar og
alltaf staðið við gefin fyrirheit. Þau
hjónin Árni og hans ágæta eigin-
kona, Ágústa, bjuggu frá árinu
1965 í Arnarhrauni 24 uns þau 1990
fluttust í íbúð sína syðst við Suð-
urgötu. Kom sú staðsetning sér vel
fyrir Ágústu, sem daglega iðkaði
sund í Suðurbæjarlauginni.
Framkoma Árna var einkar að-
laðandi. Hann var brosmildur,
mjög samviskusamur og skapgóð-
ur, prýddur yfirvegun og rósemi.
Árni átti við heilabilun að stríða í
mörg ár og naut góðrar umönnun-
ar á Sólvangi. Þótt sjúkdómur
Árna hefði ýmsar afleiðingar á
heilsufar hans var sönggleðin
óskert. Þannig sungum við saman í
síðustu heimsókn minni til Árna
nokkur lög við texta sem Árni
kunni.
Það var táknrænt, að á andláts-
degi Árna söng hann með dóttur
sinni, Guðnýju, sálminn „Ástarf-
aðir himinhæða“. Síðasta erindið í
þeim fallega sálmi er bæn til Guðs
og lýsir trúhneigð Árna. Erindið
er svohljóðandi:
Andi þinn lát æ mér stjórna
auðsveipan gjör huga minn.
Á þinnar elsku vegum
inn mig leið í himin þinn.
(Steingrímur Thorsteinsson.)
Með virðingu og einlægu þakk-
læti kveð ég minn góða vin, Árna
Bárð.
Árni Gunnlaugsson.
Stína Kára er ein
af þeim sem koma
til með að gera
himnaríki að
skemmtilegri stað.
Hún er ein yndislegasta
manneskja sem ég hef kynnst
og það var alltaf líf og fjör í
kringum hana, þó bjó hún yfir
Kristín Káradóttir
✝ Kristín Kára-dóttir fæddist
1. maí 1949. Hún
andaðist 20. febr-
úar 2014. Útför
Kristínar fór fram
28. febrúar 2014.
visku og reynslu,
því var ávallt gott
að leita til hennar.
Ég kynntist henni
fyrir 23 árum og
urðum við strax
góðar vinkonur,
eins og við hefðum
alltaf þekkst. Hún
var barngóð og
börnin okkar köll-
uðu hana Stínu
ömmu. Ég kveð
Stínu með söknuði í hjarta og
votta fjölskyldu hennar mína
dýpstu samúð.
Brynhildur Hauks.
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
IngerRósÓlafsdóttir
✝
Móðir okkar,
ÞORGERÐUR ÞORLEIFSDÓTTIR,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
föstudaginn 7. mars kl. 15.00.
Gísli Eiríksson,
Björg Eiríksdóttir,
Þorleifur Eiríksson,
Ívar Eiríksson,
Flosi Eiríksson,
Elín Eiríksdóttir.
✝
Okkar elskulegi sonur, bróðir, mágur og
frændi,
SIGFÚS GUÐMUNDSSON
Víkurbraut 11,
Vík í Mýrdal,
verður jarðsunginn laugardaginn 8. mars frá
Víkurkirkju kl. 14.00.
Ester Guðlaugsdóttir,
Guðlaugur Guðmundsson og fjölskylda,
Guðbjörg Guðmundsdóttir og fjölskylda,
Bárður Guðmundsson.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
MATTHÍAS BJARNASON,
fyrrv. alþingismaður og ráðherra,
Lómasölum 16,
Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
föstudaginn 28. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 11. mars kl. 15.00.
Auður Matthíasdóttir, Kristinn Vilhelmsson,
Hinrik Matthíasson, Steinunn Ósk Óskarsdóttir,
Matthías Kristinsson, Liv Anna Gunnell,
Matthías Hinriksson, Kristín Dögg Guðmundsdóttir,
Sigrún Hanna Hinriksdóttir, Kenneth Kure Hansen,
Kristín Petrína Hinriksdóttir
og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið.
Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu
kveðju, 5-15 línur.
Minningargreinar