Morgunblaðið - 05.03.2014, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þig langar að gera eitt en aðstæður
kalla á annað. Mundu bara að frelsi þitt endar
þar sem frelsi annarra tekur við.
20. apríl - 20. maí
Naut Varastu allan oflátungshátt í garð sam-
starfsmanna þinna, þótt þú hafir á réttu að
standa í þetta skiptið. Þig langar meira til að
skemmta þér en sinna skyldum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Lísa í Undralandi kennir manni að
það útheimti þjálfun að trúa á hið ómögu-
lega. Breytingar þurfa að leiða til ávinnings,
annars eru þær ekki til neins.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Notaðu hvert tækifæri sem þú færð
til þess að tjá þig í rituðu máli. Ekki vera of
fljót/ur á þér að játast verkefnum og fólki, því
það á eftir að éta upp allan þinn tíma.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert að læra að vera þakklát/ur fyrir
það sem ástvinir færa þér í lífinu. Ef eitthvað
fer í taugarnar á þér er það leti. Þér finnst
erfitt að segja nei.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft að stíga skrefið til fulls ef þú
vilt að hjólin fari að snúast þér í hag. Lyftu
þér upp í kvöld. Þú ættir að setja heilsu þína í
fyrsta sæti.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er kominn tími til þess að þú dragir
þig í hlé frá ákveðnum málum og leyfir öðrum
að taka við. Einhleypir hitta ákjósanlega
maka á óvenjulegum stað.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er oft lærdómsríkt að vera
baksviðs og fylgjast með því sem gerist á bak
við tjöldin. Notfærðu þér þetta og svo kemur
sá dagur síðar, að þú réttir einhverjum öðrum
hjálparhönd.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú kynnist manneskju, líklega
meyju eða vog, og sambandið þróast út í að
verða meira. Lausn vandamála á að vera for-
gangsmál hjá þér í dag.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Einhver löngu liðinn atburður set-
ur svip sinn á daga þína. Ef þú setur þér
markmið nærðu að minnsta kosti að gera
eitthvað meiriháttar, sem er dýrmætt út af
fyrir sig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vertu ekki of gráðug/ur því marg-
ur verður af aurum api. Gættu þess að stíga á
bremsurnar svo þú farir ekki of hratt upp til-
finningaskalann.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Blandaðu geði við skemmtilegt fólk.
Hugsaðu stórt en byrjaðu smátt og umfram
allt skipuleggðu tímann eins vel og þú getur.
Höskuldur Einarsson á Vatns-horni orti þegar hann kom til
sonar síns Einars á Mosfelli:
Þegar mín er gróin gröf
og grasið vaxið kringum
hlotnast mér sú góða gjöf
að gleyma Húnvetningum.
Séra Hjálmar Jónsson rifjar upp
um Höskuld: „Ég kynntist Höskuldi
frænda mínum af Reykjahlíðarætt
þegar hann flutti til Húnvetninga
og var ýmist hjá Einari syni sínum
og fjölskyldu á Mosfelli eða hjá Sig-
ríði dóttur sinni og fjölskyldu henn-
ar á Kagaðarhóli. Við hittumst oft á
þeim árum en þegar ég sótti um
Sauðárkróksprestakall leist honum
ekki vel á það og orti:
Enga sá ég á þér nauð
er þú hérna tafðir.
Og er nú þetta betra brauð
en brauðið sem þú hafðir?“
Þessa vísu ritaði guðfræðineminn
Hjálmar Jónsson í gestabók sókn-
arprestsins í Hvanneyrarpresta-
kalli 16. nóvember 1974 eigin
hendi:
Skepnur við hann vonir bindur
vafalaust ég tel
að sambýlið við kýr og kindur
klerkum henti vel.
Helgi Zimsen orti á hagyrð-
ingamóti í Kennaraháskólanum:
Elliglöpin eru mér
einhver svona gletta:
Horfa í spegil, heilsa sér
og hugsa, kvur er þetta …?
Ármann Þorgrímsson yrkir um
ættarfylgjur. Fyrst er það Háls-
skorni Fúsi:
Fyrstan skal í fríðum hópi Fúsa telja
Tók hann líf af sjálfum sér
síðan fylgir okkur hér.
Þá Þorgeirsboli:
Ömmu fylgdi alltaf, sagður ættar-
draugur
Heyrast enn við Eyjafjörð
öskur svo að skelfur jörð.
Loks Gunnlaugur hundi:
Frá Langanesi leið hans forðum
lá í vestur
Kominn hingað aftur er
enn á lífi og fylginn sér.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af prestum, elliglöpum og
ættarfylgjum
Í klípu
„GALLINN VIÐ SVONA BJÖRGUNAR-
AÐGERÐIR ER AÐ MAÐUR FÆR EKKI AÐ
GLEYMA ÞEIM SVO GLATT.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„KRISSA, SKILDIR ÞÚ ÞETTA DRASL
EFTIR Á SKRIFBORÐINU MÍNU?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þið
standið saman.
Fangelsisstjóri
SÁ YKKAR SEM EKKI HEFUR
HUGREKKI OG KJARK TIL AÐ
MÆTA ATLA HÚNAKONUNGI, OG
STRÍÐSMÖNNUM HANS ...
... STÍGI
TVÖ SKREF
FRAM!
ÞETTA ERU MIKLU
FLEIRI EN TVÖ
SKREF!
HVAÐ SEGIRÐU,
HEIÐA?
HATARÐU MIG MEÐ HVERRI
EINUSTU FRUMU Í LÍKAMANUM?
ÞAÐ ER SENNILEGA
EKKI GOTT.
FER EFTIR ÞVÍ
HVAÐ FRUMURNAR
ERU MARGAR.
Víkverja var brugðið þegar hanngekk út um dyrnar hjá sér í
gærmorgun og á honum skall eitt-
hvað blautt og kalt. Forviða leit
hann í kringum sig og liðu nokkur
augnablik áður en rifjaðist upp fyrir
honum að þetta væri rigning. Eftir
þurrka undanfarinna vikna kom
rigningin Víkverja í opna skjöldu.
x x x
Víkverji er sérlegur aðdáandisprengidags og getur hámað í
sig saltkjöt og baunir frá morgni til
kvölds. Í gær fékk hann saltkjöt og
baunir í hádegis- og kvöldmat og var
saddur og sæll. Að ári ætlar hann að
heimta saltkjöt og baunir líka í
morgunmat.
x x x
Flosi Ólafsson heitinn setti eitt sinnfram uppskrift að saltkjöti og
baunum. Hann byrjaði á að fara út í
búð og kaupa saltkjöt, baunir og róf-
ur. Síðan fór hann til tengdamömmu
og bað hana að elda.
x x x
Víkverji kann reyndar einnig velað meta bolludaginn. Hann
byrjar á að taka forskot á bolludag-
inn helgina áður með því að borða
sem mest af bollum og svo notar
hann bolludaginn sjálfan til að vinna
upp forskotið. Yfirleitt ná endar
saman í dagslok.
x x x
Víkverji getur ekki sagt að hannlifi sig inn í óskarsverðlaunahá-
tíðina og kýs frekar að sofa en að
vaka fram á morgun yfir stjörnuf-
ansinum í Kaliforníu. Hann hafði séð
eitthvað af myndunum, sem voru til-
nefndar, en þær reyndust ekki sig-
ursælar fyrir utan myndina Þræll í
12 ár. Keníska leikkonan Lupita
Nyong’o vakti sérstaka hrifningu
Víkverja. Nyoung’o hefur ekki mikla
reynslu af kvikmyndaleik, en hún fór
á kostum í myndinni í afar erfiðu
hlutverki og Víkverja kom ekki á
óvart að hún skyldi tilnefnd til verð-
launanna fyrir bestan leik í auka-
hlutverki. Þegar hún síðan fékk
verðlaunin hugsaði Víkverji með sér
að þeim væri ekki alls varnað í
Hollywood þegar öllu væri á botninn
hvolft. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
GJÖRIÐ
SVO VEL!Hafðu það hollt
í hádeginu
HAFÐU SAMBAND
OG FÁÐU TILBOÐ!
HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is
HEITT OG KALT býður starfsfólki fyrirtækja hollan og
næringaríkan mat í hádegi.
Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is
Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari
og er í dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta
matreiðslukeppni heims.
mbl.is
alltaf - allstaðar