Morgunblaðið - 07.03.2014, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2014
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
14
06
29
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
Flottar
fermingargjafir
- okkar hönnun og smíði
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér verður treyst fyrir miklu leynd-
armáli og mátt alls ekki bregðast því trausti.
Einhver nákominn finnur sig knúinn til þess
að láta til sín taka í félagi við aðra.
20. apríl - 20. maí
Naut Eyddu ekki óþarfa tíma í að sannfæra
aðra um að þú sért að gera rétt því þú ert
besti dómarinn í því máli. Sinntu bara þínu
og varastu að dragast inn í deilur manna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hugurinn er á fullu við að mynda
sér skoðanir en munninn ættir þú að nota til
þess að hrósa fólki. Jafnvel þótt þú reynir að
tala skýrt muntu verða misskilin/n.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú átt enn langt í land með það
verkefni sem þú beinir mestri orku þinni að.
Eins og svo oft er lausnin nærtækari en þú
heldur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það gengur vel að ræða við maka eða
nána vini í dag. Klipptu hárið, festu kaup á
nýrri græju eða gefðu gömlu fötin þín. Þú
endurnærist.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ykkur finnst eins og eitt og annað
þurfi að klára áður en þið farið út á meðal
fólks. Þú ert umburðarlynd/ur og lipur gagn-
vart fólki en getur líka látið í þér heyra ef þér
þykir ástæða til.
23. sept. - 22. okt.
Vog Stundum er betra að breiða út faðminn
og stundum að krossleggja handleggina og
huga að sínum innri manni. Best er að vera
sjálfum sér samkvæmur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Einhver kemur þér til aðstoðar
án þess þú hafir óskað eftir því. Reyndu að
njóta dagsins. Eitthvað í umhverfi þínu hefur
áhrif á samskipti þín við fólkið í kringum þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Óvænt tækifæri mun bjóðast þér
og það ríður á miklu að þú kunnir að bregð-
ast rétt við. Mættu hlutunum með bros á vör
og leystu þá ljúfmannlega.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Gættu þess að bregðast ekki of
hart við minniháttar málum og einblína ekki
á eitt atriði þegar þú reynir að finna málum
þínum lausn. Dagurinn fer batnandi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur mikla frelsisþörf í dag
og neitar að láta aðra ráða því hvernig þú lif-
ir þínu lífi. Hentu því sem þú hefur ekki leng-
ur þörf fyrir og komdu skipulagi á hlutina.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að leysa vandamál sem
krefst mikillar einbeitingar og yfirsýnar.
Kannski hugsar þú með þér: hvenær kemur
röðin að mér? Ekki örvænta, bráðum.
Þorvaldur Ágústsson skrifaði mérá þriðjudag: „Þú birtir vísu
Bólu-Hjálmars um Sölva Helgason í
Vísnahorninu í dag ásamt viturlegri
umsögn Guðrúnar P. Helgadóttur.
En eins og þú veist þá orti Hjálmar
aðra vísu um Sölva, sem, ásamt hinni
vísunni, lýsir að mér finnst samúð
með Sölva og djúpum skilningi á ævi-
kjörum hans og ógæfu. Sölvi var að
upplagi listamaður en lenti utan-
garðs í þjóðfélaginu sökum skap-
gerðargalla sinna og ýmissa annarra
ástæðna ásamt skilningsleysi sam-
tímans. Þetta hefur Hjálmar skilið
enda sjálfur að sumu leyti utangarðs:
Maður kom með þrýstin þjó,
ég þekkti hann gegnum ljóra.
Á sér bar og eftir dró
óhamingju stóra.“
Í „Lausavísum frá 1400-1800“ er
vísan eins og hjá Þorvaldi. En ekki
er allt sem sýnist. Í 1. útgáfu af ljóð-
um Hjálmars, Akureyri 1879, stend-
ur „þunnleit þjó“ og þar eru vís-
urnar tvær:
Gilti dygð hans grönn og sljó
grantólftunga fjóra;
klækirnir að þyngslum þó
þreyttu marga jóra.
Í tveggja binda útgáfunni 1919
eru vísurnar eins og í frumútgáfunni
nema þar stendur:
„gran-tólftunga“ til skilningsauka
og síðan bætast við tvær vísur:
Betra væri þessum þó
þurfa ekki að tóra,
dysjaður í djúpum sjó
við djöfuls þungan stjóra.
Eður í Niflheims kvala kró
krafsa og moka flóra,
og þiggja af Satan þykka skó,
sem þyldu hans húsgangsóra.
Ýmislegt hafa hagyrðingar um
mottumarsinn að segja, en menn
hafa þóst slá tvær flugur í einu höggi
með því að safna skeggi og áheitum
til krabbameinsfélagsins um leið.
Skarphéðinn Ásbjörnsson yrkir:
Höfða ég til hugarfars
og hjartagæsku leita.
Ég tek þátt í Mottumars,
þið megið á mig heita.
Ingólfur Ómar Ármannsson segist
einnig vera byrjaður að safna:
Um það vil ég yrkja stef,
einkum þó í gríni.
Myndarlegan hýjung hef
sem hæfir ljótu trýni.
Ingólfur Ómar bætir síðan við að
félagi sinn hafi ekki verið hrifinn af
hýjungnum, svo að hann hafi bætt
öðrum seinni parti við, – „og þá var
honum skemmt!“
Ærið ljótan hýjung hef
sem hæfa myndi svíni.
Halldór Blöndal.
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Bólu-Hjálmari,
heimspekingi og mottumars
Í klípu
„ÉG SKIL, EKKERT YKKAR
GLÍMIR VIÐ VANDAMÁL. ÞAÐ ER
ÉG, VANDAMÁLIÐ ER HJÁ MÉR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞARFTU ENDILEGA AÐ MUNA EFTIR
AFMÆLINU MÍNU Á HVERJU ÁRI?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... bakarameistarinn
þinn.
NAFNIÐ
ÞITT,
VINSAM-
LEGAST?
LEIFUR
ÓHEPPNI. ER ÞAÐ Í ALVÖRU
NAFNIÐ ÞITT?
TÆKNI NÚTÍMANS ER
SANNARLEGA MÖGNUÐ.
ÉG MAN EKKI HVERNIG Á AÐ
KVEIKJA Á TÖLVUNNI!
EN HÚN HEFUR EKKI ROÐ VIÐ
GAMALDAGS HEIMSKU.Víkverji veit fátt betra en að vaknavið skröltandi, tóma drykkjar-
dós á gangstéttinni fyrir utan svefn-
herbergisgluggann. Nema þá helst
að vakna við tvær skröltandi, tómar
drykkjardósir fyrir utan gluggann.
x x x
Þegar Víkverji fer í morgun-göngutúrinn finnst honum ekk-
ert eðlilegra en að sjá brotnar flösk-
ur og glerbrot hér og þar á
gangstígum og í rennusteinum.
Hann veit hvar glerbrotin eru og
getur gengið að þeim vísum. Viku
eftir viku, mánuð eftir mánuð.
x x x
Þegar blæs kröftuglega á rusl úrtunnum, sem standa úti, á það til
að fjúka um götur og stíga. Ekki
bara í Hafnarfirði heldur líka í höf-
uðborginni. Í annars tilbreyting-
arsnauðu umhverfi gerir þetta rusl
vegfarendum mögulegt að kynna sér
hvað fólk hefur látið í sig, hvernig
það gengur frá tómu mjólkurfern-
unum og hvernig það skilur almennt
við rusl. Víkverji veit fátt betra en að
ganga um ruslastígana enda eru þeir
aldrei eins vegna þess að ruslið fýk-
ur til, er á einum stað í dag og á öðr-
um á morgun.
x x x
Hann blés hraustlega í höfuðborg-inni um liðna helgi. Tóma dósin
var á sínum stað, vakti Víkverja af
værum blundi og hélt vöku fyrir
honum þar til góðhjartaður borgari
fjarlægði dósina í morgunsárið.
x x x
Þegar Víkverji fór í morgungöng-una blasti við honum undarlega
skreyttur skógur í garði nágrann-
ans. Þegar betur var að gáð var
þarna komið ruslið úr bláu tunnunni,
fríblöð og annar úrgangur á trjánum
sem annars bera bara lauf á sumrin.
Það sem ekki festist í trjánum fauk
um nærliggjandi götur og skreytti
grámyglulegt malbikið sem gægðist
undan svellbunkanum. Víkverji sá
fyrir sér gott myndefni, en nágrann-
arnir komu í veg fyrir að ruslið yrði
ódauðlegt, hreinsuðu draslið af
trjánum og því er það bara til í minn-
ingunni. Borgaryfirvöld mættu læra
af íbúunum. víkverji@mbl.is
Víkverji
En þetta er ritað til þess að þið trúið
að Jesús sé Kristur, sonur Guðs, og að
þið í trúnni eigið líf í hans nafni.
(Jóhannesarguðspjall 20:31)