Morgunblaðið - 14.03.2014, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2014
Lyfjaval.is • sími 577 1160
Bílaapótek Hæðasmára
Mjódd Álftamýri
15%
afsláttur
af öllum pakkni
ngum
Afslátturinn gildir í mars.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sprengingar og útgröftur á efni úr
Vaðlaheiðargöngum liggur niðri
vegna vinnu við að þétta vatns-
sprungu sem komið var að. Aðeins
vantaði 9 metra í 2.000 metra
áfangann þegar vinnan stöðvaðist.
Vegna vatnsæða sem áður hafa
opnast við gangagerðina eru bor-
aðar könnunarholur langt inn fyrir
sprengiholur. Því vissu verktakarn-
ir af vatnssprungunni nokkru áður
en þeir komu að henni. Eftir að
stór vatnsæð opnaðist 120 metrum
utar var ákveðið að loka öllum
sprungum til að auðvelda verkið.
Það var gert í síðustu viku og er
gert nú.
Valgeir Bergmann, fram-
kvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga
hf., segir áætlað að vatnsrennslið
sé um 70 lítrar á sekúndu af 52
stiga heitu vatni. Það er talsvert
heitara en í stóru sprungunni þar
sem vatnið er 46 stiga heitt.
Bergþéttingin getur tekið einn til
tvo sólarhringa og ekki lengjast
göngin á meðan. Þau standa í 1.991
metra.
Einnig hefur hægst á hraðanum
við gerð Norðfjarðarganga vegna
þess að nú er verið að vinna í berg-
lagi með lausara efni, svokölluðu
rauðu bergi, sem annað slagið verð-
ur á vegi gangamanna. Rauða lagið
er í Eskifjarðarleggnum. Góður
gangur var í verkinu þangað til
enda er einnig byrjað að sprengja
Norðfjarðarmegin. Á sunnudags-
kvöld stóðu göngin í 882 metrum
svo 1.000 metra áfanginn nálgast
hægt en örugglega. helgi@mbl.is
Gröftur stöðvast vegna
nýrrar vatnsæðar
Níu metra vantar upp á 2.000 metrana í Vaðlaheiðargöngum
Ljósmynd/Valgeir Bergmann
Bergþétting Unnið í Vaðlaheiðar-
göngum í gærdag.
Hæstiréttur dæmdi í gær Lýð Guð-
mundsson, fyrrverandi stjórnarfor-
mann fjárfestingarfélagsins Exista,
í átta mánaða fangelsi, þar af fimm
mánuði skilorðsbundið fyrir brot á
lögum um hlutafélög. Bjarnfreður
Ólafsson, lögmaður og fyrrverandi
stjórnarmaður í Kaupþingi, var
dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar
af þrjá mánuði skilorðsbundið, fyrir
brot gegn sömu lögum. Hann var
jafnframt sviptur réttindum til að
vera héraðsdómslögmaður í 1 ár.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði
áður sýknað Bjarnfreð af ákæru
sérstaks saksóknara og dæmt Lýð
til að greiða 2 milljónir króna í
sekt.
Hæstiréttur taldi sannað að Lýð-
ur hefði vísvitandi brotið gegn
ákvæðum hlutafélagalaga í því
skyni að tryggja sér og meðeiganda
sínum áframhaldandi yfirráð yfir
Exista og það hefði honum tekist.
Þetta gerði Lýður með því að
greiða Exista minna en nafnverð,
eða um 1 milljarð króna, fyrir 50
milljarða nýrra hluta í félaginu. Var
þetta talið brjóta í bága við fortaks-
laust ákvæði laganna um að
greiðsla hlutar mætti ekki vera
minni en nafnverð hans.
Bjarnfreður var sakfelldur fyrir
að hafa hinn 8. desember 2008 sent
villandi tilkynningu til Hlutafélaga-
skrár þar sem kom fram að hækk-
un á hlutafé Exista að nafnvirði 50
milljarðar króna hefði verið greidd
að fullu til félagsins. Fram kemur í
dómnum að Bjarnfreður hafi, m.a. í
tölvupósti til Lýðs í desember 2008,
látið í ljósi efasemdir um að til-
kynningin stæðist lög. Engu að síð-
ur hefði hann sem lögmaður skrifað
undir tilkynninguna og þannig brot-
ið gegn hlutafélagalögum.
Hæstiréttur segir síðan í niður-
stöðu sinni að brot bæði Lýðs og
Bjarnfreðs hafi varðað verulegar
fjárhæðir og verið til þess fallin að
hindra eða fresta hvers kyns rétt-
mætum aðgerðum skuldheimtu-
manna Exista. Því hafi þeir báðir
unnið sér til fangelsisrefsingar.
Brot gegn hlutafélagalögum
Lýður Guðmundsson og Bjarnfreður Ólafsson hlutu fangelsisdóma
Brotin til þess fallin að hindra réttmætar aðgerðir skuldheimtumanna Exista
Lýður
Guðmundsson
Bjarnfreður
Ólafsson
Brot gegn lögum
» Lýður var talinn hafa brotið
gegn 16. grein hluta-
félagalaga.
» Bjarnfreður var talinn hafa
brotið gegn 153. grein sömu
laga.
Um fjögur hundruð félagsmenn Bandalags há-
skólamanna, BHM, mættu á fund BHM og viðsemj-
enda félagsins í Háskólabíói í gær. Halldór Hall-
dórsson, formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga, og Jón Gnarr, borgarstjóri Reykja-
víkur, ávörpuðu fundinn. „Við vildum fá að vita
hvaða áætlanir þeir hefðu í okkar kjaramálum,“
sagði Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM, í
viðtali við mbl.is í gær. Hún segir óánægju fara vax-
andi meðal félagsmanna. „Áherslan hefur verið
mikil á lægstu launin og okkar fólk hefur setið eft-
ir. Við viljum sjá launaleiðréttingar og sjá þær núna,“
sagði Guðlaug.
Nú þegar hefur einn hópur innan BHM, háskólakenn-
arar, ákveðið að greiða atkvæði um verkfallsboðun og
verður það gert í næstu viku.
Fundað var með hléum í kjaradeilu Félags framhalds-
skólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum
við ríkið í gær og lauk fundum um kl. 19 í gærkvöld.
Samninganefnd ríkisins lagði ekki fram nýtt launatilboð
á þessum fundum. Verkfall hefst í framhaldsskólum á
mánudaginn, náist ekki samningar fyrir þann tíma.
Morgunblaðið/Ómar
Óánægja félagsmanna fer vaxandi
Samræðufundur Bandalags háskólamanna og viðsemjenda í Háskólabíói
„Mikilvægt er að senda eitthvað
á eftir þessu sem fyrst þannig
að menn haldi ekki að það séu
að koma 50 milljarðar inn í fé-
lagið!!!!!“
Þetta sagði í tölvupósti sem
Lýður Guðmundsson sendi m.a.
til forstjóra Exista 3. desember
2008.
Í tölvupósti sem Bjarnfreður
Ólafsson sendi 4. desember
segir m.a.: „Var á fundi með
Deloitte. Þeir ætla að gefa út
skýrslu um staðfestingu á
hækkun hlutafjár. Hún er rúmt
orðuð og tekur tillit til væntan-
legs hluthafafundar sem mun
lækka hlutafé aftur til jöfnunar
á tapi. Það verður svo að koma í
ljós hvort þetta fer í gegn hjá
Hlutafélagaskrá.“
Ekki 50 millj-
arðar í félagið
TÖLVUPÓSTAR Í DÓMI
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Í frumvarpsdrögum að lögum um
náttúrupassa sem Morgunblaðið hef-
ur undir höndum er kveðið á um að
heimilt verði að stofna sjálfseignar-
stofnun, Náttúrupassasjóð, til að sjá
um það sem viðkemur passanum.
Í því felst að hafa umsjón með
tekjum sjóðsins og úthluta fjármunum
til uppbyggingar og viðhalds á ferða-
mannastöðum. Gert er ráð fyrir því að
18 ára og eldri greiði fyrir passann.
Gjaldið verði 2.000 krónur fyrir fjóra
daga, 3.000 krónur fyrir passa frá
fimm dögum til fjögurra vikna og
5.000 kr. fyrir lengri tíma en fjórar
vikur. Gildistíminn verði fimm ár.
Aðilar að Náttúrupassasjóði eru
ráðuneyti ferðamála, ráðuneyti um-
hverfismála og ráðuneyti fjármála,
Samband íslenskra sveitarfélaga,
Samtök ferðaþjónustunnar, Land-
vernd, Samút og Landeigendafélag
Íslands.
Fram kemur að stjórn Náttúru-
passasjóðs beri árlega að setja saman
framkvæmdaáætlun um uppbygg-
ingu og viðhald innviða á ferða-
mannastöðum. Í áætluninni eru taldir
upp þeir ferða-
mannastaðir sem
náttúrupassinn
tekur til og verk-
efnum forgangs-
raðað. Fram kem-
ur að 95% af
tekjum sjóðsins
séu hugsuð til
uppbyggingar og
viðhalds en 5% til
málefna er varða öryggi ferðamanna.
Tekið er fram að stefnt sé að því að
hefja gjaldtöku 1. janúar árið 2015.
Þá segir að gildistími laganna sé
áætlaður til 31. desember árið 2019.
Eftirlit í höndum lögreglu
Áætlað er að eftirlit með passanum
verði í höndum lögreglu en verði
tekjur af passanum ekki í samræmi
við fjölda ferðamanna skuli endur-
skoða eftirlitsþáttinn.
Í drögunum segir jafnframt að inn-
lendir sem erlendir ferðamenn þurfi
að greiða fyrir passann. Niðurstaða
lögfræðiálits sýni fram á að í ljósi
skuldbindinga Íslands vegna EES-
samningsins yrði mjög erfitt að rök-
styðja það að Íslendingar þyrftu ekki
að greiða fyrir passann.
Náttúrupassi hjá
sjálfseignarstofnun
Gjald fyrir náttúrupassa verði 2.000-
5.000 krónur Íslendingar þurfi passa
Gullfoss Gjaldtaka
hefjist árið 2015.