Morgunblaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2014 Þó að hörðustu stuðningsmennaðildar að ESB haldi því iðu- lega og ákaft fram gegn betri vitund að ástæða sé til að „klára viðræð- urnar“ til að „kíkja í pakkann“ missa þeir stundum út úr sér að vitað sé hvað er í pakkanum. Á al- þingi heyrast þessa dagana ýmsar ást- arjátningar í garð ESB og stundum glittir jafnvel um leið í fjandskap við það sem íslenskt er.    Ásta GuðrúnHelgadóttir Pí- rati lét til að mynda út úr sér að and- staðan við aðild byggðist á „þjóðern- iskennd, þröngsýni og ótta, á fána- hyllingum og ást á íslenskri glímu“!    Svo hélt hún áfram: „Sífellt er rifistum það hvort varanlegar eða tímabundnar sérlausnir eða undan- þágur geti fengist í samningum við Evrópusambandið með sérstakri áherslu á landbúnað og sjávarútveg. Svo virðist sem ríkisstjórnarflokk- arnir geri sér ekki grein fyrir því að aðild að Evrópusambandinu og reyndar Evrópusambandið sjálft er ævarandi samningsferli í stöðugri þróun en ekki bundin einum 100.000 blaðsíðna óbreytanlegum reglu- pakka. Þetta hafa stjórnarherrar reyndar verið duglegir að benda á. Þeir vilja ekki ganga inn í sambandið sem er í stöðugri þróun. Ef þeir segja við Evrópusambandið að við viljum varanlegar undanþágur er það vegna þess skiljanlegt að Evrópusambandið lyfti brúnum. Það er ekki tilbúið að skuldbinda sig um tiltekið fyrir- komulag um aldur og ævi.“    Þetta var athyglisverð játning pír-atans, og ekki síður sú játning sem fylgdi á eftir þegar Brynhildur Pétursdóttir í Bjartri framtíð sagð- ist „sammála hverju einasta orði“. Ásta Guðrún Helgadóttir Sammála: Engar undanþágur í boði STAKSTEINAR Brynhildur Pétursdóttir Veður víða um heim 13.3., kl. 18.00 Reykjavík 2 snjókoma Bolungarvík -1 snjókoma Akureyri 3 skýjað Nuuk -6 skafrenningur Þórshöfn 6 þoka Ósló 10 heiðskírt Kaupmannahöfn 12 heiðskírt Stokkhólmur 11 heiðskírt Helsinki 8 heiðskírt Lúxemborg 17 heiðskírt Brussel 17 heiðskírt Dublin 6 þoka Glasgow 8 alskýjað London 17 heiðskírt París 17 heiðskírt Amsterdam 13 heiðskírt Hamborg 13 heiðskírt Berlín 17 heiðskírt Vín 15 heiðskírt Moskva 7 skýjað Algarve 16 léttskýjað Madríd 12 léttskýjað Barcelona 15 léttskýjað Mallorca 16 léttskýjað Róm 16 heiðskírt Aþena 12 heiðskírt Winnipeg -3 alskýjað Montreal -12 skýjað New York -6 alskýjað Chicago -3 léttskýjað Orlando 14 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 14. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:50 19:25 ÍSAFJÖRÐUR 7:56 19:29 SIGLUFJÖRÐUR 7:39 19:12 DJÚPIVOGUR 7:20 18:54 Stofu 102 í Gimli í Háskóla Íslands föstudaginn 14. mars kl. 11.30–12.00 Í fyrirlestrinum ræðir Hannes Hólm- steinn sjónarmið heilags Tómasar af Akvínó um séreignarrétt og frjáls við- skipti, en Tómas telur eins og fleiri heimspekingar, að ranglátt sé í við- skiptum að nýta sér tímabundna neyð annarra. Þar gerðu hins vegar norskir og finnskir aðilar eftir bankahrunið íslenska, þegar þeir keyptu eignir Glitnis mjög lágu verði. Hannes bendir á nýjar upplýsingar, sem komið hafa fram um feikilegan hagnað kaupenda af viðskiptunum, ef til vill hundrað milljarðar ísl. kr., og ræðir um, hvort opin- berir aðilar í Noregi og Finnlandi hafi veitt þeim aðstoð á laun. Málstofan er haldin á vorráðstefnu Viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands og einnig þáttur í samstarfsverkefni RNH og AECR, Evrópusamtaka íhaldsmanna og umbótasinna, um „Evrópu, Ísland og framtíð kapítalismans“. Fyrirlestur Hannesar H. Gissurarsonar prófessors: Töpuðu Íslendingar hundrað milljörðum? Ferskt kindakjöt er væntanlegt í verslanir fyrir páska. Nokkur slát- urhús bjóða upp á páskaslátrun sem sum kalla vorslátrun sauðfjár. „Þetta er alltaf svipaður skammt- ur hjá okkur, um 800 fjár. Það hefur skipst til helminga, lömb og fullorðið fé,“ segir Magnús Freyr Jónsson, framkvæmdastjóri Sláturhúss KVH ehf. á Hvammstanga. Þar verður boðið upp á páskaslátrun 8. apríl. Magnús segir að bændur séu að láta slátra lömbum sem hafi verið of smá í haust og geldum ám. Aðeins hluti kjötsins fer því ferskur á markað sem páskalamb. SS verður með páska- og þjón- ustuslátrun 26. mars. Í gær var búið að panta slátrun fyrir 900 fjár, bæði fullorðið og lömb. Sigmundur Hreiðarsson, stöðvar- stjóri Norðlenska á Húsavík, segir að frekar sé boðið upp á vorslátrun sem þjónustu við bændur en að svo mikil eftirspurn sé eftir fersku kjöti fyrir páska. Bændur þurfi að láta slátra geldfé og öðru til að létta á húsunum. Sauðfjárslátrun verður hjá Norðlenska á Húsavík og Höfn, SAH afurðum á Blönduósi og KS á Sauðárkróki í byrjun apríl. Nóg er til af kindakjöti í birgðum, heldur meira en á sama tíma á síð- asta ári enda hefur heldur dregið úr sölu síðustu mánuði. Salan síðustu tólf mánuði var 1,3% minni en sama tímabil á fyrra ári. helgi@mbl.is Fersk páskalömb væntanleg á markað  Nokkur sláturhús bjóða upp á vor- slátrun  Bændur grisja í húsunum Lamb Þeir sem vilja geta fengið páskalamb á diskinn sinn. Stefnt er að því að hefja gjald- töku við Geysis- svæðið, þ.e. inn á hverasvæðið við Geysi í Haukadal í Bláskógabyggð, síðdegis í dag. „Það eru allar lík- ur á því að þetta hefjist seinni partinn á morgun. Í síðasta lagi á laugardag,“ sagði Garðar Eiríksson, talsmaður Landeigendafélags Geysis, í samtali við mbl.is í gær. Stakur miði inn á svæðið mun kosta 600 kr. fyrir 17 ára og eldri og gestir fá bækling í hendur að sögn Garðars. Líkt og fram hefur komið átti gjaldtakan að hefjast sl. mánudag en félagið ákvað að fresta henni vegna lögbannskröfu fjármálaráðherra. Niðurstaða í málinu lá fyrir á mið- vikudaginn þegar sýslumaðurinn á Selfossi hafnaði kröfu ráðherra. Landeigendafélagið hefur undir- búið gjaldtökuna síðustu mánuði og um leið þjónustu á svæðinu. Þannig hafa níu starfsmenn verið ráðnir og tóku þeir til starfa 1. mars. „Við höf- um starfsfólk í hliðum og starfsfólk á svæðinu. Síðan höfum við samið við verslunareigandann handan göt- unnar að hann verði með sölu á mið- um í samvinnu við okkur,“ segir Garðar. jonpetur@mbl.is Mun kosta 600 kr. inn á Geysissvæðið Geysir í Haukadal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.