Morgunblaðið - 14.03.2014, Page 16

Morgunblaðið - 14.03.2014, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2014 Ökufærni er lykilatriðið þegar ungmenni hefja akstur. Hvar fær ungmennið þitt kennslu? Hluti námsins fer fram í fullkomnum ökuhermi Áhersla lögð á færni nemenda og öryggi þeirra í umferðinni Allt kennsluefni innifalið Ökukennsla www.bilprof.is Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 • Opið 10-17 alla daga. Hringdu núna og bóka ðu ökuskól ann ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD – yfir 40 ár í fagmennsku. Þekking og reynsla í fyrrirúmi Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Umdeilt ákvæði sem skyldar at- vinnubílstjóra til að gangast undir endurmenntun á fimm ára fresti er komið enn á ný til kasta Alþingis. Frumvarp innanríkisráðherra um ýmsar breytingar á umferðarlögum sem hafa að markmiði að auka um- ferðaröryggi er til meðferðar í um- hverfis- og samgöngunefnd og hafa fjölmargar umsagnir borist frá samtökum, fyrirtækjum og einstaklingum á undanförnum dög- um og vikum. Tilraunir til heildarendurskoð- unar á umferðarlöggjöfinni hafa ekki gengið eftir á seinustu þingum og frumvörp ekki verið útrædd. Ráðherra hefur í nýja frumvarpinu lagt fyrir þingið þau ákvæði úr fyrri frumvarpsdrögum sem talið er brýnt að nái fram að ganga án frek- ari tafa. Þar er fyrst og fremst á ferðinni innleiðing Evróputilskip- ana. Þ.á m. er hin umdeilda skylda atvinnubílstjóra að undirgangast 35 klst. endurmenntun á fimm ára fresti, hertar reglur um akstur léttra bifhjóla og ekki er síður um- deild heimild til handa umferðareft- irlitsmönnum að kanna ástand til- tekinna ökutækja á vegum, fjarlægja skráningarnúmer af van- búnum ökutækjum og skoða öku- skírteini ökumanns. Gagnrýnt er í nokkrum umsögn- um til þingnefndarinnar að lög- regluvald verði fært með þessum hætti til eftirlitsmanna við umferð- areftirlit. „Þarna finnst okkur vera vegið hart að ákveðinni stétt þjóð- félagsins með auknu lögvaldi aðila annarra en lögreglu til að sinna lög- gæslustörfum og efumst við um að það eigi við nokkra aðra starfstétt en þessa að til þurfi auknar laga- heimildir til eftirlits,“ segir í um- sögn hópferðafyrirtækisins Guð- mundar Tyrfingssonar ehf. Samtök iðnaðarsins taka í sama streng og segja með öllu ólíðandi að fela eigi umferðareftirlitsmönnum auknar valdheimildir þannig að þeir fái í raun lögregluvald í störfum sínum. Félag hópferðaleyfishafa segir að með þessu yrði lögregluvald flutt til Samgöngustofu og þeirri stofnun veittar heimildir til að finna að bílum á vettvangi og um leið heim- ildir til að kyrrsetja ökutæki og fjarlægja skráningarmerki, sem að- eins hefur verið í höndum lögreglu. Erfitt verður að fá ökumenn á rútur yfir sumartímann Í umsögn Guðmundar Tyrfings- sonar er því einnig haldið fram að krafa um endurmenntun bílstjór- anna muni hafa í för með sér meiri skaða en gagn, skerðingu atvinnu- frelsis fjölda manns og efasemdir séu um að slík skerðing afturvirkt standist stjórnarskrárbundinn rétt. Lýst er áhyggjum af að erfiðlega muni ganga að manna þann mikla akstur með ferðamenn sem eigi sér stað yfir sumartímann því ökumenn sem aki aðeins hluta úr árinu muni veigra sér við að endurnýja öku- réttindi sín vegna aukins kostnaðar við endurmenntun. „Í okkar tilfelli rúmlega tvöfaldast sá fjöldi öku- manna sem við þurfum til að halda starfseminni gangandi á fullum af- köstum yfir þann tíma […],“ segir þar. Í umsögn Ársæls Haukssonar til þingsins segir að með innleiðingu þessarar lagabreytingar sé verið að setja þúsundir ökumanna í nám til að uppfylla reglur sem ekki sé þörf á hér á landi Landssamband vörubifreiðaeig- enda segir tilskipunina mjög íþyngjandi og fordæmalausa. „Eng- in fordæmi eru um að aðrar starfs- stéttir eigi á hættu að missa at- vinnuréttindi sín sinni þær ekki endurmenntun,“ segir í athugasemd landssambandsins. Félag hópferða- leyfishafa segir að með þessu yrði ferðaþjónustunni greitt þungt högg. Greinin muni tapa stórum hluta af þeim mannskap sem hún hafi getað kallað til sín yfir háannatímann. Krafa um end- urmenntun „þungt högg“  Frumvarpið sagt færa eftirlitsmönn- um með umferð á vegum lögregluvald Skiptar skoðanir og gagnrýni í umsögnum við frumvarp um breytingar á umferðarlögunum Umferð Innanríkisráðherra leggur til að gerðar verði breytingar á umferð- arlögum sem sé brýnt að nái fram að ganga eins fljótt og auðið er. Morgunblaðið/Ómar Landssamtök hjólreiðamanna lýsa ánægju „með nokkur meginstef í framkomnu frumvarpi en eru með nokkrar þungar athuga- semdir við það,“ segir í umsögn þeirra við stjórnarfrumvarpið um breytingar á umferðarlögunum. Samtökin gera alvarlegar athuga- semdir við að létt bifhjól sem hingað til hafi, fyrir misskilning, verið skil- greind sem reiðhjól, verði leyfð í umferð á öllum gangstéttum og leggja til að hægt verði að heimila umferð þeirra þar með boðmerkj- um. „Þá er lagst jafn eindregið gegn því að umferð þeirra verði bönnuð á vegum þar sem hámarkshraði er meiri en 50 km á klst. þar sem það bann er á misskilningi byggt og get- ur sett hættulegt fordæmi fyrir hjól- reiðar,“ segir í umsögninni. Bent er á að akstur reiðhjóla sé í dag leyfður á öllum götum og vegum á Íslandi utan Hvalfjarðarganga. Menn virð- ist ekki átta sig á að á Íslandi séu um 13 þúsund km af þjóðvegum sem nær allir eru með yfir 50 km há- markshraða en afar lítilli umferð. „Það er því ekki í lagi að banna akst- ur þessara ökutækja á öllum þessum 13 þús. km, hugsanlega vegna þess að menn sjá hættu við það á þessum fáu km af stofnbrautum á höf- uðborgarsvæðinu.“ Vilja ekki banna létt bifhjól þar sem aka má yfir 50 km/klst. Slysagögn Samgöngustofu sýna að 31 slys varð á rafvespum og reið- hjólum með hjálparvél á landinu á árunum 2012 og 2013. Þessar töl- ur koma fram á minnisblaði innan- ríkisráðuneytisins til umhverfis- og samgöngunefndar. Ekkert banaslys varð á þessum hjólum á sl. tveimur árum en sex alvarleg slys, þar af fimm í fyrra. Ellefu slys voru skráð með litlum meiðslum. Á þessu sama tímabili slasaðist enginn sem farþegi á reiðhjóli að því er fram kemur en hins vegar slasaðist 12 ára barn sem var far- þegi á rafvespu. Á þessum tveimur árum slösuðust þrjú börn sem far- þegar á bifhjólum; eitt 14 ára árið 2012 og 13 og 14 ára börn árið 2013. Öll með minniháttar meiðsli, að því er segir á minnisblaðinu. 31 slys á léttum bif- hjólum á seinustu tveimur árum Létt bifhjól sem falla í dag undir flokk reiðhjóla og ekki eru hönn- uð til hraðari aksturs en 25 km verða skv. frumvarpinu framvegis felld undir sérstakan flokk léttra bifhjóla í flokki I og verða skrán- ingarskyld. Aka má þeim á gang- stétt, hjólastíg eða gangstíg en þeim verður bannað að aka á ak- brautum þar sem er 50 km há- markshraði eða meira. Skiptar skoðanir eru á þessum tillögum í umsögnum. Barnaheill hafa sent umhverfis- og samgöngunefnd umsögn þar sem segir að ef hjól sem áður hafa verið skilgreind sem reiðhjól verði nú skilgreind sem létt bifhjól þurfi að gera kröfu um ökuréttindi þeirra sem slíkum hjólum aka. Það geti þýtt að börn sem nú þegar eiga slík tæki verði að öðlast réttindi til að mega aka þeim. Ökukennarafélag Íslands vekur athygli á að óljóst sé hvaða hæfn- is- og menntunarkröfur verða gerðar til ökumanna þessara hjóla. Skráð reiðhjól en verða bifhjól SKIPTAR SKOÐANIR Á BREYTTUM REGLUM UM LÉTT BIFHJÓL Bílastæðanefnd Reykjavíkur- borgar vill að heimildir Bíla- stæðasjóðs og lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu til að leggja á ökutæki stöðubrotagjöld verði auknar og heimildir stöðu- varða verði rýmkaðar. Þetta kemur fram í umsögn borgarinnar við frum- varpið um breytingar á umferð- arlögum. Veita þurfi heimild til að leggja stöðubrotagjald á ökutæki sem hindra t.a.m. aðkomu að bruna- hana og torvelda akstur til og frá húsum. Óviðunandi sé að stöðu- verðir þurfi að ganga fram hjá ólöglega lögðum ökutækjum. Í dag hafi þeir ekki heimild til að leggja gjald á bifreið sem leggur fyrir brunahana en mega leggja gjald á ökutæki sem leggur á gangstétt fyrir framan brunahana. Stöðuverðir fái auknar heimildir Stöðumælavörður að störfum í mið- borginni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.