Morgunblaðið - 14.03.2014, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2014
Aðalfundur
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn
að Skarfagörðum 4, Reykjavík,
föstudaginn 28. mars 2014 og hefst kl. 16:00.
Á dagskrá fundarins verða:
Stjórn Hampiðjunnar hf.
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á
eigin hlutum skv. 55. gr. hlutafélagalaga.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til
sýnis, tveimur vikum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á
fundarstað.
Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm
virkum dögum fyrir upphaf aðalfundar.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu
hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi
síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.
Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa
umboð, þurfa að gera það skriflega.
Árin segja sitt1979-2014
Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslumeistari og kona
hans Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás. Laugarásvegi 1
104 Reykjavík • laugaas.is
Lauga-ás hefur
frá 1979 boðið
viðskiptavinum sýnum
uppá úrval af réttum
þar sem hráefni,
þekking og íslenskar
hefðir hafa verið
hafðar að leiðarljósi.
553 1620
Verið velkominn
Þrátt fyrir að rekstrarhagnaður
Skipta fyrir afskriftir og fjármagns-
liði (EBITDA) hafi numið 8,3 millj-
örðum króna árið 2013 og aukist um
12% milli ára nam tap félagsins
tæplega 17 milljörðum króna. Árið
2012 nam tap Skipta, móðurfélags
Símans, 3,4 milljörðum.
Þetta mikla tap skýrist fyrst og
fremst af 14 milljarða virðisrýrnun
viðskiptavildar. Nemur afskriftin
23% af heildareignum Skipta og ríf-
lega 50% af eigin fé félagsins sem
var 26,4 milljarðar króna í árslok
2013. Eiginfjárhlutfall Skipta er
engu að síður sterkt, eða 45%.
Í afkomutilkynningu er haft eftir
Orra Haukssyni, forstjóra Skipta,
að uppgjörið einkennist af mikilli
virðisrýrnun óefnislegra eigna sem
veldur verulegu tapi. „Slíkt tap hef-
ur ekki áhrif á fjárhagslegan styrk
félagsins né getu þess til að standa
við allar sínar skuldbindingar. Efna-
hagsreikningurinn endurspeglar nú
betur markaðsvirði félagsins við
fjárhagslega endurskipulagningu á
seinasta ári. Við teljum rétt að beita
ýtrustu varúð við mat á óefnislegum
eignum og á einskiptiskostnaði. Alls
eru gjaldfærðir 19,6 milljarðar
króna vegna þessara liða í uppgjöri
ársins og munar um minna.“
Auk afskrifta á viðskiptavild má
rekja tap Skipta til þriggja milljarða
niðurfærslu á kröfu á hendur Glitni
vegna uppgjörs gjaldmiðlaskipta-
samninga og 2,6 milljarða gjald-
færslu í varúðarskyni vegna endur-
ákvörðunar skatta.
Sölutekjur Skipta jukust á liðnu
ári um 3,6% og námu 29,9 millj-
örðum króna. Félaginu tókst sömu-
leiðis að lækka hjá sér rekstrar-
kostnað um 79 milljónir milli ára og
var hann samtals 9,47 milljarðar á
árinu 2013.
Handbært Skipta frá rekstri
hækkaði nokkuð á síðasta ári og
nam sjö milljörðum, samanborið við
6,3 milljarða árið áður. Fjárfesting-
ar Skiptasamstæðunnar í varanleg-
um rekstrarfjármunum jukust einn-
ig um tæpan milljarð króna milli ára
og námu 3,87 milljörðum 2013.
Um mitt síðasta ár lauk fjárhags-
legri endurskipulagningu Skipta
sem þýddi að vaxtaberandi skuldir
lækkuðu verulega og eigið fé styrkt-
ist. Skuldir námu um 26,7 milljörð-
um um áramót en voru fyrir end-
urskipulagningu 62 milljarðar.
17 milljarða tap
Skipta árið 2013
14 milljarða afskrift á viðskiptavild EBITDA hækkar
Morgunblaðið/Golli
Forstjóri Orri Hauksson segir að efnahagsreikningurinn endurspegli nú
betur markaðsvirði félagsins við fjárhagslega endurskipulagningu 2013.