Morgunblaðið - 14.03.2014, Qupperneq 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2014
Mér finnst gaman að grípa í hamar og sög. Um aldamót hófstég handa við að byggja mér og mínum hús við Laufskógahér í Hveragerði og hingað fluttum við 2006. Hafi menn
áhuga og getu er alveg þjóðráð í svona verkefnum að gera sem mest
sjálfur og spara,“ segir Helgi Þorvaldsson í Hveragerði sem er sex-
tugur í dag. „Sem strákur var ég mikið í íþróttum en hef hægt á mér í
seinni tíð. Finnst þó gaman að gönguferðum en fer helst aldrei á
hvert fjall nema einu sinni. Leita alltaf nýrra ögrana. Fannst til dæm-
is mikið ævintýri að ganga á Heklu og nú er stefnan sett á Botns-
súlur.“
Helgi sem er frá Selfossi er kennari að mennt. Hóf ferilinn 1977 í
Hveragerði, en hefur verið enskukennari við Fjölbrautaskóla Suður-
lands frá stofnun árið 1981. „Stundum hendir að í tímum eru barna-
börn þeirra sem voru hjá mér fyrstu árin. Nemendurnir eftir öll þessi
ár skipta orðið þúsundum,“ segir Helgi sem ætlar að njóta afmæl-
isdagsins með sínu fólki og hefur svigrúm til þess, því í dag stendur
svo á að vorannarfrí er í FSu. Og hugsanlega verkfall eftir helgina.
„Við hjónin förum kannski út að borða, það verða engin hátíða-
höld,“ segir Helgi sem er kvæntur Þóreyju Hilmarsdóttur, samkenn-
ara sínum. Með fyrri konu sinni, Arndísi Guðmundsdóttur, sem er lát-
in, á Helgi tvo syni, þá Þóri og Þorvald Pál sem báðir eru uppkomnir
menn. sbs@mbl.is
Helgi Þorvaldsson er 60 ára í dag
Hvergerðingur „Fer helst aldrei á hvert fjall nema einu sinni. Leita
alltaf nýrra ögrana,“ segir Helgi Þorvaldsson kennari við FSu.
Vorannarfrídagur
og kannski verkfall
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjanesbær Aþena Mist fæddist
5. júní kl. 2.51. Hún vó 3.904 g og var
53 cm löng. Foreldrar hennar eru
Hildur Margrét Ríkarðsdóttir Owen
og Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Hlynur Hugi fæddist 5. júlí
kl. 2.11. Hann vó 3.516 g og var 53 cm
langur. Foreldrar hans eru Dagný Fjóla
Jóhannsdóttir og Bragi Þór Anton-
íusson.
H
ildigunnur fæddist í
Reykjavík 14.3. 1964
en flutti með fjöl-
skyldunni í Garða-
bæinn þegar hún var
fimm ára. Hún var í Barnaskóla
Garðahrepps sem síðar varð Flata-
skóli, í Garðaskóla og síðan í fyrsta
árganginum sem gekk í Fjölbrauta-
skólann í Garðabæ. Hún lauk þaðan
stúdentsprófi 1983.
Hildigunnur lærði á fiðlu í Tónlist-
arskóla Garðabæjar í nokkur ár en
fylgdi síðan fiðlukennaranum í Tón-
skóla Sigursveins og var þar í nokkur
ár. Þá lá leiðin í tónfræðadeild Tón-
listarskólans í Reykjavík þar sem hún
lagði stund á tónsmíðar og almenna
tónfræði. Kennarar hennar þar voru
Þorkell Sigurbjörnsson og Atli Heim-
ir Sveinsson. Eftir lokapróf frá deild-
inni tók síðan við nám í Hamborg hjá
prof. Günter Friedrichs og síðar í
Hildigunnur Rúnarsdóttir tónskáld, kennari og söngvari – 50 ára
En dansk morgenmad Hildigunnur og Jón Lárus í Danmörku þar sem þau fengu brennandi áhuga á matargerð.
Nýtur lífsins með tón-
eyra og bragðlaukum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í eldhúsinu Hildigunnur að matbúsa eitthvað ljúffengt fyrir matarboð.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is