Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Side 3

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Side 3
gamma er aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Við erum stolt af samstarfi okkar við hljómsveitina og ánægð með að geta tekið höndum saman með ástríðufullu fagfólki um þetta mikilvæga starf. www.gamma.is Baksviðs með Sinfóníuhljómsveit Íslands� � Mæðginin Ágústa María Jónsdóttir og Stefán Jón Bernharðsson eru hluti af mikilvægri heild. Stefán Jón: Ég var auðvitað alveg grænn fyrst þegar ég byrjaði í sveitinni fyrir fimmtán árum síðan. Ágústa: Já, en þetta vandist fljótt og ætli þetta hafi ekki snúist við í dag, þú alir mig upp. Það er allavega stuðningur í því að vinna með fjölskyldumeðlimum. Sagt er að ákveðnar manngerðir leiki á viss hljóðfæri, eða skyldu hljóðfærin á einhvern hátt hafa mótandi áhrif á manneskjurnar? Að sitja inni í miðri hljómsveit þegar allt er komið á fulla ferð er merkileg upplifun sem Ágústa María Jónsdóttir þekkir vel. Hún kom til starfa í Sinfóníuhljómsveit Íslands undir lok áttunda áratugarins. Tónlistarnámið stundaði hún hér heima og í sjálfri háborg tónlistarinnar, Vín í Austurríki, þar sem menn á borð við Mozart og Beethoven sömdu verk sín forðum daga. Þó að fiðlan sé í öndvegi í sinfónískum tónverkum eru hornin engu að síður meðal glæsilegustu hljóðfæra sinfóníuhljómsveitar og einn tónlistarmannanna sem blæs í þau er Stefán Jón, sonur Ágústu. Það er gott að vita að í hljómsveitinni komi kynslóðirnar saman með eitt markmið – að þjóna tónlistargyðjunni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.