Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Page 3
gamma er aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Við erum stolt
af samstarfi okkar við hljómsveitina og ánægð með að geta tekið höndum
saman með ástríðufullu fagfólki um þetta mikilvæga starf.
www.gamma.is
Baksviðs með Sinfóníuhljómsveit Íslands� �
Mæðginin Ágústa María Jónsdóttir og Stefán Jón Bernharðsson eru hluti af mikilvægri heild.
Stefán Jón: Ég var auðvitað alveg grænn fyrst þegar ég
byrjaði í sveitinni fyrir fimmtán árum síðan.
Ágústa: Já, en þetta vandist fljótt og ætli þetta hafi
ekki snúist við í dag, þú alir mig upp. Það er allavega
stuðningur í því að vinna með fjölskyldumeðlimum.
Sagt er að ákveðnar manngerðir leiki á
viss hljóðfæri, eða skyldu hljóðfærin á
einhvern hátt hafa mótandi áhrif á
manneskjurnar?
Að sitja inni í miðri hljómsveit þegar allt
er komið á fulla ferð er merkileg
upplifun sem Ágústa María Jónsdóttir
þekkir vel. Hún kom til starfa í
Sinfóníuhljómsveit Íslands undir lok
áttunda áratugarins. Tónlistarnámið
stundaði hún hér heima og í sjálfri
háborg tónlistarinnar, Vín í Austurríki,
þar sem menn á borð við Mozart og
Beethoven sömdu verk sín forðum
daga. Þó að fiðlan sé í öndvegi í
sinfónískum tónverkum eru hornin
engu að síður meðal glæsilegustu
hljóðfæra sinfóníuhljómsveitar og einn
tónlistarmannanna sem blæs í þau er
Stefán Jón, sonur Ágústu.
Það er gott að vita að í hljómsveitinni
komi kynslóðirnar saman með eitt
markmið – að þjóna tónlistargyðjunni.