Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Side 12
* Kominn tími til þess að [ ] tryggja að fjármunirnýtist betur og beint í dagskrána, meira fari íinnihald og minna í umbúðir.
Magnús Geir Þórðarson, nýr útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins.
Landið og miðin
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
UM ALLT LAND
MÝRDALUR
Sveitarstjórn
Mýrdalshrepps hefur
ákveðið að láta bora
tilraunaholu og freista þess
að finna vatn í varmadælu
til upphitunar á skóla- og
íþróttamannv
Holan ver
djúp og
F r
HVALFJARÐARSV
Hallgrímur
Pétursson
fæddist 1614,
fyrir 400
árum.Af því
tilefni verður
frumsýnd
ný ópera í konsertuppfær
Skáldið og Biskupsdóttirin
í Hallgrímskirkju í Saurbæ
Hvalfjarðarströnd 11. apr
segir af vináttu Hallgríms
Ragnheiðar Brynjólfsdóttu
Skálholti.Alexandra Cher
semur tónlistina en Guðr
Ásmundsdóttir skrifar han
leikstýrir. Meðal einsöngva
Kristján Jóhannsson,Alexa
Chernyshova og Elsa Waa
EYJAFJARÐARSVEIT
Stefnt er að
því að leggja
Eyjafj
Sv
h
að ræ
hefur
ljósle
VESTURBYGGÐ
Bæjaryfirvöld
S
Ljós
á Patre
sem allra
„Þorpin á sunnnaverðumVestfjörðum voru
síðust í röð þeirra 53 þéttbýlisstaða á
landinu sem fengu Ljósnetið í þessari lotu.
æÞað er ót kt að skilja helming byggðar á
Patreksfirð tir ótengdan þegar óvissa
kir um hvenær framkvæmdinni lýkurrí
á landinu,“ segir í bókun bæjarráðs sem
bæjarstjórn hefur samþykkt. Þar er Síminn
jafnframt hvattur til að bæta 3G samband á
jsunnanverðumVestf örðum sem sé afleitt.
F
Náttfari sá sem varð eftir viðSkjálfanda þegar GarðarSvavarsson hélt af landi
brott upp úr miðri níundu öld, hefur
ekki notið sannmælis að margra
mati enda að líkindum fyrsti land-
námsmaður Íslands. Örlygur Hnefill
Örlygsson á Húsavík vill setja Nátt-
fara á þann stall sem honum sæmir
og verður hann í öndvegi á nýju
safni nyrðra.
Könnuðir af ýmsu tagi hafa verið
Örlygi Hnefli hugleiknir. „Mér hafa
lengi þótt æfingar bandarísku
tunglfaranna hér á okkar slóðum á
áttunda áratugnum stórmerkilegar,
fór að safna efni um þær fyrir
nokkru og hélt sýningu um æfingar
þeirra í Safnahúsinu hér á Húsavík
árið 2011,“ segir Örlygur Hnefill við
Morgunblaðið.
„Í sömu viku og ég opnaði sýn-
inguna fór Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra til fundar við
Hillary Clinton í Washington og eft-
ir að þau höfðu rætt alvöru mál
sagði Össur henni frá sýningunni og
bandaríski utanríksráðherrann
sendi kveðju til Húsvíkinga fyrir
vikið. Það gaf verkinu byr undir
báða vængi.“
Bandarískir geimfarar æfðu í
Þingeyjarsýslu 1965 og aftur 1967
þar sem þeir bjuggu sig undir
fyrstu ferðir til tunglsins. „Þegar ég
fór að skoða könnunarsöguna; þörf
mannsins til að gera eitthvað nýtt,
hvort sem eru víkingar eða geimfar-
ar, sé ég ákveðnar tengingar við
Þingeyjarsýslu; Garðar Svavarsson,
sem hér hafði vetursetu, sigldi
fyrstur í kringum Ísland og Bill
Anders, eini geimfarinn sem kom
bæði 1965 og 67, flaug fyrstur í
kringum tunglið.“
Vert er að geta þess að Örlygur
hyggst einnig rifja upp kapphlaupið
á pólana á Könnunarsafninu; The
Exploration Museum eins og hann
nefnir það á ensku.
Safnið, sem Örlygur opnar 10.
maí, er til húsa í Hlöðufelli, þar sem
Reðasafnið var áður. „Friðrik Sig-
urðsson bóksafli á Húsavík lánar
mér húsið, ég get verið hér í tvö til
þrjú ár en vonandi stækkað safnið
að þeim tíma liðnum.“
Skáld og aðrir listamenn hafa
gefið mörgum persónum úr sögunni
andlit á síðari tímum en Örlygur
nefnir að þeir félagar, Garðar og
Náttfari, hafi ekki verið í þeim hópi.
„Ég einsetti mér að láta gera af
þeim myndir og Garðar er tilbúinn;
það var Artûras Slapðys frá Lithá-
en sem málaði hann, en ég vil lyfta
sögu Náttfara enn frekar því okkur
finnst þurfa að gera hans merka
landnámi mun betri skil en hingað
til. Ég fékk Kristin G. Jóhannsson,
myndlistarmann á Akureyri, til að
koma með hugmyndir að andliti á
hann. Kristinn hefur lesið mikið um
landnámsmanninn og hefur teiknað
Náttfara eins og hann ímyndar sér
hann; nú á bara eftir að mála
myndina og hún verður tilbúin fyrir
opnun safnsins. Arngrímur Jó-
hannsson flugstjóri, bróðir Kristins,
ætlar af rausnarskap sínum að fjár-
magna verkið.“
Bræðurnir sóttu Örlyg heim í vik-
unni og Arngrímur, sem segist lengi
hafa verið kortasafnari af ástríðu,
notaði tækifærið og afhenti safninu
að gjöf forláta Íslandskort eftir hol-
lenska kortagerðarmanninn Merca-
tor úr handriti frá 1595. „Það er
mikill fengur að þessu korti. Ég
kann Arngrími innilegar þakkir fyr-
ir hans framlag,“ sagði Örlygur.
HÚSAVÍK
Náttfari og
geimfari á
sama safni
ÖRLYGUR HNEFILL ÖRLYGSSON OPNAR BRÁÐLEGA SAFN
Á HÚSAVÍK ÞAR SEM FJALLAÐ VERÐUR UM ÝMSA ÞEKKTA
KÖNNUÐI; M.A. LANDNÁMSMANNINN NÁTTFARA OG
BANDARÍSKA GEIMFARA SEM ÆFÐU Í ÞINGEYJARSÝSLU.
Arngrímur Jóhannsson flugstjóri gaf Örlygi Hnefli forláta Íslandskort eftir Hollendinginn Mercator til að hafa í safninu. Á
veggnum má sjá fjölda ljósmynda af bandarískum geimförum við æfingar í Þingeyjarsýslu á sjöunda áratug síðustu aldar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kristinn G. Jóhannsson listmálari og Örlygur Hnefill rökræða um það hvar sé
best að koma fyrir málverkinu af landámsmanninum Náttfara í safninu.
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.3. 2014