Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Blaðsíða 25
vera túristi eða gera það sem mann langar til. Ertu almennt meðvituð um mataræðið? Já, það skiptir að sjálfsögðu miklu máli með íþrótt- unum að mataræðið sé í góðu standi. Hvað borðarðu til að halda þér í formi? Ég reyni að borða fjölhæft, en skera út sykur og óþarfa hveiti. Ég borða mikið af kjúklingi, eggj- um og grænmeti. Hvaða óhollustu ertu veik fyrir? Súkkulaði. Hvað ráðleggurðu fólki sem vill bæta matar- æðið? Ég held að það sé rosalega misjafnt hvernig fólk virkar og því skiptir máli að fólk finni eitthvað sem hentar fyrir það. En fyrst og fremst er það ákvörðunin um að breyta matar- æðinu og síðan fylgja því sem skiptir mestu máli. Hvaða gildi hefur hreyfing og líkamsrækt fyr- ir þig? Körfubolti sem íþrótt er mitt starf og ástríða þannig að það skiptir mig gríðarlega miklu máli. Það er ekki nóg að kunna að dripla bolta heldur þarf ég að vera í góðu líkamlegu formi, vera sterk og geta hlaupið í 40 mínútna leik. Hver eru erfiðistu meiðsli sem þú hefur orðið fyrir? Ég hef verið mjög heppin með heilsu að mestu minn feril, en síðast- liðið haust lenti ég í að slíta upp úr kálfa- vöðva og það var líklegast í fyrsta skipti sem ég þurfti að taka algjöra pásu frá körfubolta og líkamsrækt. Hversu lengi varstu að ná þér aftur á strik? Það tók allt í allt um fjórar vikur í pásu; tvær vikur með algjörri hvíld en síð- an tvær vikur í sundi og hjóla. Hver eru heimskulegustu meiðslin sem þú hefur orðið fyrir? Ætli það sé ekki þegar ég var að hlaupa aftur á bak á æfingu og steig ofan á keilu sem ég átti að vita að var inni á vellinum, sneri ökklann og missti af næsta leik. Hvað eru algeng mistök hjá fólki við æfingar? Erfitt að segja, en fyr- ir óvant fólk held ég að sé nauð- synlegt að fá leiðbeiningu, alla- vega til að byrja með. Það er synd að vera að setja inn tíma í ræktinni og gera æfingar eða annað sem hjálpar ekki til eða gerir lítið sem ekkert fyrir þig og gæti aukið meiðslahættu. Hver er erfiðasti mótherjinn á ferlinum? Ég held ég gleymi því aldrei þegar ég mætti Diönu Taurasi og Candice Parker í sama Nafn: Helena Sverrisdóttir Gælunafn: Helí eða Ice. Íþróttagrein: Körfubolti. Hversu oft æfir þú á viku? Misjafnt, en níu til tólf sinnum. Hvernig æfir þú? Mest með liðinu mínu, en þar eru venjulega tvær æfingar á dag, og svo reyni ég að ná inn aukaæfingu sjálf allavega einu sinni í viku. Þegar ég er heima á Íslandi reyni ég að halda svipaðri rútínu. Henta slíkar æfingar fyrir alla? Líklegast ekki, en til að vera í toppformi og halda sér þar þarf að vinna virkilega fyrir því. Hvernig er best fyrir nýliða að koma sér af stað? Við erum öll misjöfn og því skiptir máli fyrir alla að finna hvað hentar fyrir sig, en ef þú ert í liðsíþrótt færðu kannski ekki miklu ráðið þegar kemur að æfingafjölda, nema þá þínar aukaæfingar. Hver er lykillinn að góðum árangri? Ég hef trú á að viljinn komi manni ansi langt. Ef þú tekur ákvörðun um að þú viljir eitthvað alveg ótrúlega mikið og ert tilbúinn að leggja það und- ir sem þarf þá oftar en ekki geturðu það. En þú þarft að vilja fórna því sem þarf að fórna og leggja þig fram eins og þarf. Hvað er það lengsta sem þú hefur hlaupið? Hljóp 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu 2013, ætli það sé ekki eitt af lengri hlaupum sem ég hef hlaupið. Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira? Að finna sér tíma og einhvern til að vera með sér í því. Það er erfitt fyrir nánast alla að ýta sér áfram á hverjum degi og því er svo gott að hafa einhvern sem ýtir manni áfram og sem maður sjálfur ýtir á líka. Líður þér illa ef þú færð ekki reglulega útrás fyrir hreyfiþörfina? Já, hrikalega. Ég hef oft reynt að taka mér líkamlegt frí en það gengur vanalega mjög illa, eftir tvo eða þrjá daga verð ég að gera eitthvað þó svo að það sé ekki nema létt skokk og smáæfing. Hvernig væri líf án æfinga? Það er góð spurn- ing og nokkuð sem ég veit ekki alveg hvernig ég myndi höndla. En ætli maður þyrfti ekki bara að finna sér eitthvert annað áhugamál og reyna að nýta tímann í það. Hvað er það lengsta sem hefur liðið á milli æfinga hjá þér? Kannski fimm dagar eða svo, sem atvinnumaður er nánast aldrei frí, þú þarft alltaf að vera í formi eða að æfa. Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú ferð í frí? Ég reyni að æfa snemma á morgnana því þá líður manni betur og getur notað daginn í að leiknum. Þær eru leikmenn sem ég hef litið upp til lengi og að mæta þeim inni á vellinum, þar sem spennustigið var verulega hátt, var frekar ógnandi. Hver er besti samherjinn? Pálína Gunnlaugs- dóttir. Við þekkjumst vel og höfum spilað sam- an síðan við vorum lillur, mér þykir ótrúlega gaman að koma heim og spila með landsliðinu með henni. Hver er fyrirmynd þín? Þegar ég var yngri voru það stór nöfn eins og Michael Jordan og Diana Taurasi. En eftir því sem ég hef elst og lært hvaða hlutir skipta máli í lífinu verð ég að segja foreldrar mínir. Bæði mamma og pabbi eru æðislegar fyrirmyndir og ég er ótrúlega þakklát fyrir allt sem þau hafa gert fyrir mig og ég hlakka til að eignast mína eigin fjölskyldu og vonandi vera jafngóð í foreldrahlutverkinu og þau eru. Hver er besti íþróttamaður allra tíma? Ég er körfuboltaunnandi og segi því Michael Jordan. Hámark ferilsins? Hvað var hámark ferilsins? Ég held að þetta verði spurning sem ég get svarað eftir 10-15 ár, en ég á vonandi nóg eftir á ferlinum. Mestu vonbrigðin? Það sem er ferskt í minninu ennþá í sambandi við vonbrigði er að hafa ekki náð að vinna úrslitakeppni í deildinni okkar þeg- ar ég var hjá TCU. Sem íþróttamaður er ein versta tilfinningin að vita að þú skildir eitthvað eftir á gólfinu og mér fannst við gera það þar og það nagar mig enn. Skemmtileg saga frá ferlinum? Það er mér alltaf minnisstætt þegar við vorum í U-16 ára á Möltu árið 2002 held ég. Við vorum frekar ungar margar og í okkar fyrstu landsliðsferð. Við vorum fimm saman á herbergi að mig minnir og vorum með smásögustund eitt kvöldið sem leiddi síðan í draugasögur. Við gerðum hver aðra skíthrædda og vorum farnar að heyra hljóð frá ganginum á hótelinu sem við vorum vissar um að væri Texas Chainsaw Massacre-gæinn, mættur til að saga okkur í sundur. Við vorum að sjálfsögðu með pæju-öskrin í botni og sumar farnar að hringja heim til foreldra sinna. Það var síðan bankað á hurðina og það gerði út- slagið, einhverjar földu sig inni í skáp, und- ir rúmi og bak við ísskápinn. Það kom svo bara í ljós að dyr höfðu verið opnar og hljóðin sem við heyrðum voru gegnumtrekkur og bankið á hurðina voru hótelstarfsmenn að biðja okkur að hafa ekki svona hátt; við héldum vöku fyrir öðrum hótelgestum. Skilaboð að lokum? Jákvætt skap skiptir öllu máli; þegar við vökn- um á morgnana getum við tekið þá ákvörðun að dagurinn í dag verði góður dagur. Með því að halda hausnum jákvæð- um er hægt að takast á við alls kyns mótlæti auðveldlega og allt saman verður miklu léttara og betra. ÍÞRÓTTAKEMPA VIKUNNAR HELENA SVERRISDÓTTIR Mikið af kjúklingi, eggjum og grænmeti 23.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 Fyrir þá sem elska að fresta hlutunum þangað til á morgun getur verið gott að eyrnamerkja ákveðna tíma í vikunni, t.d. þrisvar í viku, fyrir líkamsrækt og setja þá sem fasta tíma inn í dagatalið. Þannig eru meiri líkur á að náist að halda í við innri frestunaráráttu. Merktu við í dagatalið* Því meira sem þú leyfirþér að dreyma, þvílengra kemstu. Michael Phelps HÁGÆÐA HÚÐVÖRUR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Á FRÁBÆRU VERÐI. ENGIN ILM- EÐA LITAREFNI. FÁST NÚ Í APÓTEKUM BREYTT ÚTLIT Á A+ VÖRUNUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.