Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Page 54

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Page 54
Þ að fer ekkert milli mála hvaða starfsemi fer fram í þessu húsi. Nærvera þeirra frænda Andrésar andar og Mikka músar er áþreifanleg. Og kyns þeirra alls. Skrifstofa Eddu útgáfu á Lynghálsinum er eins og lítið Disney-land. Þegar mig ber að garði stendur landstjórinn sjálfur, Jón Axel Ólafsson, úti á miðju gólfi og ráðfærir sig við samstarfsmenn sína. Heilsar með virktum. Frá því Jón Axel og bróðir hans, Garðar Ólafsson, festu kaup á Eddu fyrir rúmum fimm árum hef- ur Disney-efni verið hryggsúlan í starfsemi útgáfunnar og eftir að hafa náð góðum árangri á heima- markaði stefna bræðurnir nú skón- um út í heim. Ameríka skal það vera, sjálft höfuðvígi þessara alda- vina barna á öllum aldri, Mikka og Andrésar. Íslenskar Disney-bækur eru sumsé væntanlegar á markað vestra með vorinu. „Við höfum unnið að þessum samningi í tvö ár. Þetta er meira en að segja það,“ upplýsir Jón Axel þegar við höfum komið okkur fyrir inni á skrifstofu hjá honum. „Nú er þetta loksins í höfn og fyrsta bókin kemur út 22. apríl næstkomandi. Fimm til sjö bækur til viðbótar koma út í haust og næstu tvö árin stefnum við að því að bæta við meira en tuttugu bókum.“ Kennslubók í grænum fræðum Um er að ræða lífsstílsbækur af ýmsu tagi. Sú fyrsta heitir Go Green – A Family Guide to a Sus- tainable Lifestyle og fjallar, svo sem nafnið gefur til kynna, um um- hverfisvernd og „grænan“ lífsstíl. Er einskonar kennslubók í græn- um fræðum, að sögn Jóns Axels. Höfundar eru Ásthildur Björg Jónsdóttir, Ellen Gunnarsdóttir og Gunndís Ýr Finnbogadóttir og út- litshönnun og teikningar eftir Magnús B. Óskarsson. Alls verða að minnsta kosti þrjár bækur í Go Green-seríunni. Jón Axel segir Disney í Norður- Ameríku mjög spennt fyrir bókinni enda sé fyrirtækið farið að láta sig umhverfisvernd varða. „Disney hef- ur metnað til að verða umhverfis- vænt fyrirtæki, þannig að þetta fellur vel að þeirri stefnu,“ segir hann. Útgáfudagurinn, 22. apríl, er engin tilviljun en hann er einmitt „Dagur jarðarinnar“. Fyrsta upplag verður á bilinu fjörutíu til fimmtíu þúsund eintök en bókin kemur einnig út í rafbók- arformi. Hún verður gefin út hér heima á sama tíma en ekki undir merkjum Disney. Jón Axel gerir sér enga grein fyrir því á þessari stundu hversu hátt sé hægt að stefna en vinsæl- asta barnabókin í Bandaríkjunum á síðasta ári mun hafa selst í 1,6 milljónum eintaka. Heiður og áskorun í senn Af öðrum þemum sem eru til skoð- unar hjá Eddu má nefna kennslu, matreiðslu, fjölskyldu, vísindi, hár- greiðslu, afmæli og töfrabrögð. Markhópurinn er fjölskyldan og er tilgangur bókanna að auka skiln- ing, þekkingu og þroska lesenda, eins og Jón Axel kemst að orði. Hann segir bæði koma til greina að frumskapa og gefa út efni sem þegar hefur komið út hér heima og laga það að Ameríkumarkaði. „Það er allt opið í þeim efnum svo lengi sem hugmyndin er góð.“ Jón Axel segir það í senn mikinn heiður og mikla áskorun að hafa náð samningum um framleiðslu og dreifingu á Disney-bókum í Norð- ur-Ameríku. Þar með stilli Edda sér upp við hlið þekktra forlaga sem gefi út Disney-efni vestra, eins og til dæmis Random House og fleiri. „Það eru átta öflugir fagfjár- festar á bak við þetta verkefni. Þeir eru í sérstöku félagi og allir innlendir. Þeir hafa mikla trú á verkefninu en markmiðið er að Edda komist í hóp fimm stærstu Disney-leyfishafa í Bandaríkjunum á næstu árum. Þetta er langtíma- verkefni. Við tjöldum ekki til einn- ar nætur,“ segir Jón Axel. Hoppar ekki upp í sendibíl Undanfarið hefur hann alfarið helgað sig Ameríkuverkefninu – aðrir sjá um innlenda starfsemi Eddu – ásamt öðrum starfsmanni forlagsins, Tinnu Proppé, sem hef- ur reynslu af markaðsstarfi í Bandaríkjunum. Unnið er náið með Disney vestra, auk þess sem geng- ið hefur verið til samstarfs við stór dreifingarfyrirtæki. Eddu- bækurnar verða til sölu í helstu stórmörkuðum í Bandaríkjunum og Kanada, í bókabúðum, í vefversl- unum eins og Amazon, auk Disney- verslana og vitaskuld Disney World. „Við erum með öfluga aðila í kynningar- og dreifingarmálunum fyrir okkur. Maður hoppar ekki bara upp í sendibíl í Bandaríkj- unum, eins og maður gerir hér heima fyrir jólin,“ segir hann hlæj- andi. Jón Axel fer utan í apríl til að fylgja fyrstu bókinni úr hlaði en Disney mun, að hans sögn, einnig leggjast af þunga á árar. Þá verður Go Green og næstu útgáfur kynnt- ar rækilega undir merkjum Disney og Eddu á stórri bókastefnu í Bandaríkjunum síðar á þessu vori. Í bakgarðinum hjá Disney Gangi bókaútgáfan vel vestra segir Jón Axel vel hugsanlegt að hún vindi upp á sig. „Það opnast marg- vísleg tækifæri við verkefni sem þetta og vörusala tengd bókunum og jafnvel sjónvarpsverkefni eru al- gjörlega raunhæf markmið. Það á þó eftir að koma betur í ljós. Það er alveg ljóst að þetta verkefni get- ur farið í ýmsar áttir ef rétt er unnið úr því, Disney er stórt fyr- irtæki sem getur opnað mörg tæki- færi,“ segir Jón Axel. Hann segir samt lykilatriði að stíga varlega til jarðar. Ætla sér ekki um of. „Það er spennandi verkefni að vinna í bakgarðinum hjá Disney en um leið vand- meðfarið. Við eigum örugglega eft- ir að gera allskonar mistök og taka út okkar þroska en þannig gengur þetta nú einu sinni fyrir sig. Við erum staðráðnir í að fóta okkur á þessum markaði.“ Spurður hvort hann hafi órað fyrir því þegar hann keypti Eddu að hann ætti eftir að verða kominn í bókaútgáfu í Bandaríkjunum fimm árum síðar skellir Jón Axel upp úr. „Nei, það hvarflaði ekki að mér. En þessi starfsemi hefur und- ið jafnt og þétt upp á sig og hingað erum við komin. Edda er stöðugt að svipast um eftir nýjum tækifær- um og þetta er eitt af þeim.“ Endurreistu Eddu útgáfu Rekja má samstarf Eddu útgáfu og Disney þrjá áratugi aftur í tímann en Ólafur heitinn Ragnarsson hóf útgáfu á Andrési önd á íslensku ár- ið 1983. Þá undir merkjum Vöku Helgafells. Það félag rann síðar inn í Eddu útgáfu. Andrés hafði áður gert það gott á dönsku hérlendis og ekki minnkuðu vinsældirnar þegar loksins var hægt að lesa um ævintýri hans á hinu ástkæra yl- hýra. „Það er ekkert lesefni eins vin- sælt á Íslandi og lesefni frá Disn- ey,“ segir Jón Axel. „Áskrifendur að Andrési, Syrpum og Disney- klúbbnum eru tíu þúsund talsins og útsendingar af okkar hálfu um þrjú hundruð þúsund á ári. Ekkert efni er heldur leigt eins mikið út á bókasöfnum og efni frá Disney. Syrpurnar frá Disney eru leigðar tæplega 100.000 sinnum á ári en til samanburðar má nefna að sú ís- lenska barnabók sem næst kemur er leigð út 3.000 sinnum.“ Edda útgáfa barðist í bökkum þegar Jón Axel og Garðar bróðir hans festu kaup á félaginu um ára- mótin 2008-09. Tildrög kaupanna voru þau að Jón Axel hafði um Edda í bóli Andrésar „Það er spennandi verkefni að vinna í bakgarðinum hjá Disn- ey en um leið vandmeðfarið,“ segir Jón Axel Ólafsson. EDDA ÚTGÁFA HEFUR GERT SAMNING VIÐ DISNEY Í NORÐUR-AMERÍKU UM BÓKA- ÚTGÁFU Í BANDARÍKJUNUM OG KANADA OG KEMUR FYRSTI TITILLINN ÚT 22. APRÍL NÆSTKOMANDI, GO GREEN – A FAMILY GUIDE TO A SUSTAINABLE LIFESTYLE. UM ER AÐ RÆÐA LÍFSSTÍLSBÆKUR AF ÝMSU TAGI, SKRIFAÐAR OG HANNAÐAR HÉR HEIMA, OG VÆNTIR JÓN AXEL ÓLAFSSON, ÚTGEFANDI HJÁ EDDU, ÞESS AÐ ÞÆR VERÐI Á BILINU TÍU TIL TÓLF Á ÁRI NÆSTU ÞRJÚ ÁRIN, HIÐ MINNSTA. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Myndir: Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is Þau vinna að útgáfumálum í Bandaríkjunum og Kanada af hálfu Eddu útgáfu: Garðar Ólafsson, Tinna Proppé og Jón Axel Ólafsson. 54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.3. 2014 Menning

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.