Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Page 58

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Page 58
58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.3. 2014 BÓK VIKUNNAR Sannleikurinn um mál Harrys Quebert eftir Joël Dicker er glæpasaga sem allir unnendur slíkra sagna verða að lesa. Saga sem kemur stöðugt á óvart. Bækur KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR kolbrun@mbl.is Ef einhver á ekki þessa bók og hefurekki lesið hana þá skal hann geraþað núna,“ sagði Ásdís Benedikts- dóttir, hinn öflugi bóksali í Eymundsson á Skólavörðustíg, og átti þar við Veröld sem var eftir Stefan Zweig sem nýlega var endurútgefin í kilju. Líkt og svo ótal- margir aðrir hefur Ásdís sérstakt dálæti á þessari minnisstæðu bók og á örugg- lega eftir að mæla með henni við marga viðskiptavini sem vilja fá góðar og traust- ar leiðbeiningar við bókakaup. Veröld sem var, hin ástsæla bók Stef- ans Zweig, kom fyrst út í íslenskri þýð- ingu árið 1958, hefur nokkrum sinnum verið endurútgefin og er nú komin út að nýju. Þetta er bók sem hefur hrifið kyn- slóðir og eitt það ánægjulegasta við vin- sældir hennar er hversu mjög hún höfðar til listelskra og hrifnæmra ungmenna. Sá sem les Veröld sem var einu sinni er líklegur til að lesa hana aftur, og til eru þeir sem hafa fyrir vana að lesa hana með nokkurra ára milli- bili. Fáar bækur eru betri fulltrúar hinna húmanísku viðhorfa en þessi undragóða bók þar sem stöðugt er minnt á mikilvægi friðar, mildi og miskunnar í samskiptum manna og þjóða og áhersla lögð á hinn undursamlega mátt listarinnar. Persónur bókarinnar birtast ljóslifandi á síðunum, fólk með sterk einstaklingseinkenni og snilldarlega hæfileika og má þar nefna Rodin, Rilke, Freud, Maxim Gorki, Rich- ard Strauss, James Joyce og Bernard Shaw. Zweig, sem lifði tvær heimsstyrj- aldir, töfrar fram veröld hins liðna í Vínarborg í byrjun 20. aldar þar sem bjartsýnin var við völd hjá ungu og hæfi- leikaríku fólki sem trúði á mátt þess góða en lifði það að sjá hvernig nasisminn tók völdin og tekið var að hundelta þá sem neituðu að gangast illskunni á vald. Þeir hlutar bókarinnar sem fjalla um uppgang nasismans eru átakanlegir og sýna okkur hvernig manneskjan er þegar hún er upp á sitt versta. Allir þeir sem unna menningu og vilja veg hennar sem mestan og telja skapandi og mannúðlega hugsun mikilsverða hljóta að hafa Veröld sem var í háveg- um. Bókin er áminning til okkar allra um að glata aldrei mennskunni. Það er mikið gleðiefni að þessi dásamlega bók skuli enn á ný vera á markaði. Orðanna hljóðan BÓK FYRIR ALLAR KYNSLÓÐIR Stefan Zweig Ástsæl bók sem gleymist ekki. B ók Bjargar Guðrúnar Gísladótt- ur, Hljóðin í nóttinni, hefur vak- ið gríðarlega mikla athygli og fengið sérlega góða dóma. Bókin er í efsta sæti metsölulista Ey- mundsson og skömmu eftir útgáfu hennar er önnur prentun komin út. Eins og kunnugt er fjallar Björg í bókinni um uppvöxt sinn í Höfðaborginni í Reykjavík á sjöunda áratug síðustu aldar og segir frá heimilis- og kyn- ferðisofbeldi og lýsir uppgjörinu við það liðna. „Ég er glöð og snortin, ég átti aldrei von á þessum góðu viðtökum,“ segir Björg, sem er ekki byrjandi á ritvellinum þótt ekki hafi mikið komið út eftir hana. Hún skrifaði á sín- um tíma ásamt Kolbrúnu Ernu Pétursdóttur einleikinn Þá mun enginn skuggi vera til sem fjallaði um sifjaspell og afleiðingar þeirra og var sýndur víða um land á árunum 1994-1995 og einnig á Kvennaráðstefnunni í Turku og síðan í Svíþjóð og Noregi. Árið 1995 kom svo út ljóðabók eftir Björgu, Sigur- vegarinn sárfætti, og sama ár tók hún þátt í höfundasmiðju Borgarleikhússins og skrifaði þar einþáttung um ástir tveggja kvenna og fordóma samfélagsins gagnvart þeim. Björg, sem hefur lengi unnið sem ráðgjafi hjá Stígamótum, útskrifaðist sem bókmennta- fræðingur frá Háskóla Íslands árið 2008 með ritlist sem aukagrein. „Ég skrifaði Hljóðin í nóttinni á einu ári en hafði lengi gengið með hugmyndina,“ segir hún. „Mér var mikið í mun að skrifa bókina þannig að hún stæði sem bókmenntaverk og ég vildi forðast allt tilfinningaklám. Ég gef mikið af mér í þessari bók og það gekk nærri mér að skrifa hana en ég var líka tilbúin til þess. Það er mér gríðar- leg hvatning að fá öll þessi góðu viðbrögð og svo sannarlega ætla ég mér að skrifa meira. Á síðasta ári sótti ég um listamannalaun en fékk þau ekki en mér finnst líka sanngjarnt að ég þurfi að sanna mig. Mig langar að skrifa og ég á djúpan brunn og mér finnst það vera köllun mín að koma því sem þar er á framfæri.“ Björg segist hafa mikla unun af bóklestri. „Ég hef alltaf verið mikill lestrarhestur, verð að hafa bækur á náttborðinu og les uppi í rúmi á hverju einasta kvöldi. Ég á mikið af bókum, er grúskari og hef gaman af alls kon- ar bókum, þar á meðal heimspeki, siðfræði og sálfræði.“ Framundan hjá Björgu er sam- starfsverkefni hennar og konu hennar. „Kon- an mín, Guðbjörg Ottósdóttir, aðjunkt í fé- lagsráðgjafdeild HÍ, er að ljúka doktorsnámi í Englandi en hún hefur verið að rannsaka hælisleitendur og andlega og líkamlega fötl- un. Hún hefur líka verið að kynna sér þá að- stoð sem ungt fólk veitir á heimilum þar sem börn búa við alkóhólisma eða önnur vanda- mál. Saman erum við að undirbúa fyrir- lestraröð þar sem við nýtum bókina mína og fræðum þjóðina sömuleiðis um þarfir barna sem búa við vandamál á heimilum, eins og til dæmis alkóhólisma. Bretar hafa verið að gera marga góða hluti í þessum málum sem við ætlum að miðla áfram og munum prufukeyra fyrirlestrana hjá Rótinni, sem er félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda.“ Spurð hvort hún sé með aðra bók í smíðum segir Björg: „Mér finnst gaman að yrkja ljóð og á mik- ið til af þeim, en þarf að skoða þau nánar og yfirfara. Ég hef verið að punkta hjá mér hugmyndir að skáldsögu og svo er ég með hugmynd að leikriti. Það er spennandi að sjá hvað kemur næst. Ég hef gaman af að tak- ast á við ólík form í ritlist. Við sjáum til hvað gerist, hvaða hugmynd nær yfirhend- inni.“ UNDIRBÝR FYRIRLESTRARÖÐ ÁSAMT KONU SINNI Ætla að skrifa meira „Mig langar að skrifa og ég á djúpan brunn og mér finnst það vera köllun mín að koma því sem þar er á framfæri,“ segir Björg sem er bæði með hugmynd að leikriti og skáldsögu. Morgunblaðið/Eggert HLJÓÐIN Í NÓTTINNI, BÓK BJARG- AR GUÐRÚNAR GÍSLADÓTTUR, HEFUR VAKIÐ MIKIÐ UMTAL OG FENGIÐ AFAR GÓÐA DÓMA. BJÖRG SEGIR AÐ HINAR GÓÐU VIÐTÖKUR SÉU SÉR MIKIL HVATNING. Uppáhaldsbækurnar mínar í gegnum tíðina eru svo óteljandi margar að ég verð að viðurkenna að ég fyllist duggunarlitlum valkvíða að draga einhverjar þeirra út úr hugskoti mínu og nefna þær. En manninn skal víst reyna og því við hæfi að nefna hér fyrstar til sögunnar bækur Albert Camus sem ég las upp til agna samhliða Íslendingasögum og Eddukvæð- um í menntaskóla. Þar áður, sem barni og tæplega unglingi, voru mér bækur Steinbeck og Heming- way kærkomið lesefni samhliða skólaljóðunum ís- lensku í bláu vinylkápunni. Í HÍ, í almennri bók- menntafræði, hafði ég sérstakt yndi af Hómer, Dostojevskí, Majakovskí og sögum suðuramer- ískra töfraraunsæishöfunda. Núna í seinni tíð eru mér Ævintýri H.C. Andersen sérlega kær og einnig ljóð Önnu Akhmatovu en þau les ég eins og svo óteljandi margt annað á ensku og beint af gúgglinu í endalausri leit minni að einhverju og ég hef ekki hugmynd um að hverju ég er að leita en veld- ur mér alltaf undrun og sælu með jöfnu millibili að finna þar gersemar að lesa. En ein er sú bók sem er í almestu uppáhaldi hjá mér og það er Bókin um veginn eftir Lao Tze og þá vitaskuld í snilldarþýð- ingu þeirra bræðra Jakobs Smára og Yngva Jóhannessona. Hana les ég á hverju kvöldi, alltaf eitthvað um allt og ekkert. Það er gott veganesti, hvort heldur er í raunheimum eða draumheimum, hvar og hvenær sem. Í UPPÁHALDI PÉTUR ÖRN BJÖRNSSON ARKITEKT Pétur Örn Björnsson fylltist valkvíða þegar hann var beðinn um að nefna uppáhaldsbækur sínar, en val hans er til fyrirmyndar. Morgunblaðið/ÓmarAlbert Camus

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.