Morgunblaðið - 03.04.2014, Side 4

Morgunblaðið - 03.04.2014, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2014 Páskar á Kanarí VITA er lífiðVITA Suðurlandsbraut 2 Sími 570 4444 Skráðu þig í netklúbbinn -VITA.isVITA er í eigu Icelandair Group. 13. – 25.apríl *Verð án Vildarpunkta 99.900 kr. Flugsæti: 89.900 kr. og 12.500Vildarpunktar* ÍS L E N S K A S IA .I S V IT 68 54 3 4/ 20 14 *Verð án Vildarpunkta 139.900 kr. Tilboðsverð ámann frá 129.900 kr. og 12.500Vildarpunktar* Innifalið: Flug með Icelandair, gisting í smáhýsi á Maspalomas Lago í 12 nætur og íslensk fararstjórn Síðustu sætin Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Skriður er að komast á undirbúning viðræðna á milli ASÍ og Samtaka at- vinnulífsins um endurnýjun kjara- samninga í haust á grundvelli aðfar- arsamningsins sem gerður var á almenna vinnumarkaðinum. Samn- inganefndir samtakanna koma saman til fundar á mánudaginn til að fara yf- ir þá vinnu sem framundan er, að sögn Þorsteins Víglundssonar, fram- kvæmdastjóra SA. Haldinn var fundur í samninga- nefnd ASÍ í gær vegna þessa und- irbúnings. Rætt er um að breyta tímasetningum í viðræðuáætlun sem samið var um í tengslum við kjara- samningana í desember sl. en þeir gilda til ársloka. Þar sem stéttar- félögin sem felldu desembersamning- inn og gengu frá nýjum kjarasamn- ingum í febrúar, sömdu um lengingu samningstímans um tvö mánuði eða til loka febrúar 2015, hefur verið ákveðið að færa dagsetningar í viðræ- ðuáætluninni vegna næstu samninga aftur um u.þ.b. einn mánuð. Skv. því eiga aðildarfélög og sambönd ASÍ að hafa lagt fram kröfugerðir um sérmál fyrir lok apríl. Í viðræðuáætlun er gengið út frá því að viðræður um launalið næstu samninga hefjist fyrir 15. október. Nú hefur verið ákveðið að seinka því um einn mánuð. Öll heildarsamtök á vinnumarkað- inum urðu ásátt um það á seinasta ári að stefna að mótun nýs íslensks kjarasamningalíkans að norrænni fyrirmynd í kjaraviðræðunum sem framundan eru. Það fæli m.a. í sér að hafinn yrði undirbúningur að at- vinnugreinasamningum milli sam- taka atvinnurekenda og samflots stéttarfélaga sem tæki til allra starfs- manna fyrirtækja í viðkomandi at- vinnugrein. Enn liggur ekkert fyrir um hvaða atvinnugreinar verða fyrir valinu í fyrstu lotu og hefur það ekki verið útkljáð á vettvangi ASÍ, skv. upplýsingum Morgunblaðsins. Þor- steinn Víglundsson segir ótvírætt að stefnan verði sett á gerð atvinnu- greinasamninga. ,,Markmiðið er að forma helst tvo slíka samninga að lág- marki í komandi kjaraviðræðum,“ segir hann. Hefja vinnuna við nýtt samningalíkan  Samninganefndir ASÍ og SA koma saman eftir helgi Meirihluti bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB hefur nú undirritað nýja kjarasamninga við Samninganefnd ríkisins. Alls hefur verið samið fyrir rúmlega 40% félagsmanna BSRB, skv. upplýsingum Ágústs Bogasonar, kynningarfulltrúa BSRB. Nokkur stór félög eiga þó enn ósamið og þar er Sjúkraliðafélagið stærst með tæplega 2.000 félagsmenn. Samninga- fundur var haldinn í gær. Viðræður eru ekki farnar í gang á milli Lands- sambands lögreglumanna og ríkisins. Alls hafa tólf af fimmtán bæjar- starfsmannafélögum BSRB sem eiga félagsmenn sem starfa hjá ríkinu skrifað undir nýja kjarasamninga við Samninganefnd ríkisins. Samningar BSRB-félaga gilda almennt út apríl á næsta ári eða tveimur mánuðum lengur en kjarasamningar á almenna vinnumarkaðinum. Búið er að semja fyrir rúm 40% félagsmanna í BSRB FJÖLMARGIR KJARASAMNINGAR Í HÖFN Guðni Einarsson gudni@mbl.is Farfuglarnir flykkjast til landsins þessa dagana. Hópar skógarþrasta hafa heilsað fuglaáhugamönnum á Suðurlandi og víðar. Hrossagaukar hneggja af kæti yfir að vera komnir og tjaldar spígspora víða um fjörur á sínum fagurrauðu fótum. Stelkar hafa einnig sést. Um síðustu helgi sáust lóuhópar á Suðurlandi og sungu inn vorið. Heið- lóa söng af lífsins lyst í Stykkishólmi á sunnudag. Álftum og gæsum hefur líka fjölgað mjög upp á síðkastið. Reikna má með að farfuglum fjölgi mjög næstu daga og flýta suðlægar áttir fyrir för þeirra yfir hafið. Fuglar sem hafa hér viðdvöl á leið sinni vestur um haf á leið til Græn- lands eru líka farnir að sýna sig. Nokkuð er síðan fyrstu margæs- irnar komu á Álftanesið og þar hafa einnig sést tildrur. Vel á þriðja hundrað blesgæsir voru í Þykkva- bænum á sunnudaginn var. Hrafnar eru farnir að safna í laupa en krummi verpir með fyrra fallinu. Þeir allra fyrstu gætu þegar verið orpnir á sunnanverðu landinu. Yann Kolbeinsson, líffræðingur hjá Náttúrustofu Norðausturlands, hefur skráð fyrstu komur farfugla til landsins allt frá árinu 1998. Hann sagði að farfuglar hefðu komið með fyrra fallinu í ár. Fyrsta koma álftar var skráð 16. febrúar sem er tví- mælalaust með því fyrsta sem þekk- ist. Koma þúfutittlings var skráð 27. mars. Aðeins einu sinni áður hefur þúfutittlingur sést svo snemma sam- kvæmt skrá Yanns. Það var 1998. „Meðalkomutími heiðagæsa frá 1992-2013 er 31. mars og blesgæsa 1. apríl. Báðar tegundirnar komu 25. mars í ár,“ sagði Yann. Nú var sér- stakt hvað mikið af gæsum kom svo snemma þótt margar séu enn ókomnar. Yann sagði að helsingja- hópur hefði sést á Barðaströnd 28. mars sem sé mjög snemmt. Brand- endur komu einnig mjög snemma í ár eða 12. mars en gamla metið var 15. mars. Aðrar tegundir hafa verið nokkuð nálægt hefðbundnum komu- tímum eins og rauðhöfðaönd, urtönd og tjaldur. Morgunblaðið/Ómar Tjaldar Skrækar raddir tjaldanna óma nú í fjörum landsins þar sem þeir stika um í flokkum á fagurrauðum fótum og finna sér æti. Morgunblaðið/Ómar Margæsir Vor og haust hafa hér viðdvöl margar fuglategundir sem eru á leið yfir hafið frá vetrarstöðvum austan hafs til varpstöðva í Grænlandi. Margir farfuglar eru snemma á ferðinni Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hjón sem skulda 30 milljónir af íbúðaláni frá árinu 2008 geta fengið höfuðstól lánsins lækkaðan um allt að 3,4 milljónir króna, taki þau þátt í boðaðri leiðréttingu íbúðalána. Þetta má lesa úr svari fjármála- og efnahagsráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins um áhrif aðgerð- anna á stöðu fimm ímyndaðra lán- taka. Eiga þeir það sameiginlegt að geta allir fullnýtt skattleysi séreign- ar, en þann rétt hafa heimili með 700.000 krónur eða meira í heildar- tekjur á mánuði. Niðurstöðurnar eru sýndar hér fyrir ofan en fyrirspurnin var send til ráðuneytisins sl. fimmtudag. Tekið er fram í svari ráðuneytisins að heildar- umfang leiðréttingarinnar liggi fyrir að afstöðnu umsóknarferli. Útreikn- ingum sé aðeins ætlað að gefa vís- bendingar um líkleg áhrif á stöðu íbúðalána. Þá beri að hafa í huga að frum- varpið sé ekki orðið að lögum og geti því tekið breytingum í meðförum Al- þingis, sem geti haft áhrif á niður- stöður. Forsendur útreikninganna eru svohljóðandi: Um er að ræða verðtryggt jafn- greiðslulán með föstum 4,5% vöxtum. Forsendur um verðbólgu eru 3,5% á ári og 288 gjalddagar (24 ár) eru eftir af lánum. Fjárhæð þegar fenginnar beinnar niðurfærslu er breytileg eftir eftirstöðvum og endurspeglar hún meðaltöl niðurfærslu eftir eftirstöðv- um lána samkvæmt gögnum fjár- mála- og efnahagsráðuneytis. Gert er ráð fyrir að heimili nýti sér séreignarsparnaðarleið til fulls, þ.e. 1,5 milljónir á þremur árum. Breyt- ingar ráðstöfunartekna endurspegla breytingar þegar bein niðurfærsla og séreignarsparnaðarleið hafa verið nýttar til fulls. Búið er að reikna til frádráttar fyrri úrræði sem heimili hafa notið. Kom til fyrstu umræðu Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, mælti fyrir fyrra frumvarpi ríkisstjórnarinnar af tveimur vegna leiðréttingar íbúða- lána á Alþingi í gær, um ráðstöfun séreignasparnaðar. Lauk fyrstu um- ræðu um málið á ellefta tímanum í gærkvöldi og fer málið áfram til efna- hags- og viðskiptanefndar. Fyrsta umræða um leiðréttinguna hefst því á mánudaginn, en þingfund- ir eru ekki í dag eða á morgun vegna fundar með samtökum þingkvenna. Áður en frumvarp vegna skattleys- is séreignar til niðurgreiðslu höfuð- stóls íbúðalána kom til fyrstu um- ræðu spurði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, í óundir- búnum fyrirspurnum, hvar reiknivél- in vegna úrræðanna væri, í fyrir- spurn til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra. Þá sagði Helgi áformin önnur en þau sem kynnt voru á blaðamannafundi í Hörpu 30. nóv. „Nú er búið að taka þær tillögur af borðinu og kynna ein- hverjar allt aðrar tillögur sem enginn getur reiknað út.“ Sigmundur sagði Helga reyna að ala á tortryggni gegn tillögunum. „Hér er verið að kynna tillögur sem fela í sér gríðarlega stórt úrræði til að koma til móts við heimili landsins. Viðbrögð háttvirts þingmanns við þessu og undirbúningur hans fyrir umræðuna hefur eingöngu snúist um það að reyna að ala sem mest á tor- tryggni og reyna að finna sem flesta hópa sem hann getur mögulega á ein- hvern hátt gert óörugga eða óánægða. Þetta er ekki gott að hafa að leiðarljósi í pólitísku starfi,“ sagði Sigmundur Davíð. Dæmi um lækkun húsnæðislána Fimm dæmi um áhrif á stöðu lántaka* (allar tölur í krónum) A 13.000.000 1.500.000 1.100.000 2.600.000 252.000 B 16.000.000 1.500.000 1.200.000 2.700.000 288.000 C 20.000.000 1.500.000 1.500.000 3.000.000 312.000 D 25.000.000 1.500.000 1.700.000 3.200.000 336.000 E 30.000.000 1.500.000 1.900.000 3.400.000 360.000 Hjón Eftirstöðvar íbúðaláns frá árinu 2008 Hámarksúttekt séreignar á þremur árum** Lækkun höfuð- stóls vegna leiðrétt- ingar að teknu tilliti til frádráttarliða* Heildarlækkun láns vegna leiðréttingar Breyting á ráðstöfunar- tekjum á ári vegna lægri greiðslubyrði *Forsendur: Sjá texta í greininni með þessari töflu. Dæmin eru byggð á fyrirspurn Morgunblaðsins. Heimild: Fjármála- og efnahagsráðuneytið. Getur lækkað lánin um milljónir króna  Fjármálaráðherra mælti fyrir skuldafrumvörpum á þingi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.