Morgunblaðið - 03.04.2014, Qupperneq 11
Tískusýning Hér sést Laila í miðjunni ásamt fyrirsætum frá seinustu tískusýningu Lailu sem var haldin í mars.
starfaði við hönnun og hún kenndi
mér ýmislegt. Síðan fór ég til Dan-
merkur í fatahönnunarnám,“ segir
Laila blaðamanni. Laila hannar að-
eins klæðnað og hefur undanfarin
ár einblínt á kjóla. „Fólk kemur til
mín og biður mig að hanna á sig
kjól. Undanfarið hef ég þó aðeins
hannað kjóla þar sem ég get stjórn-
að ferðinni. Kúnninn getur komið
með einhverjar litlar óskir en ég
ákveð allt annað. Mér finnst gott að
vera frjáls í hönnun minni.“ Hönnun
Lailu vakti mikla athygli árið 2012
þegar þáverandi Ungfrú Danmörk
klæddist kjól eftir Lailu í keppninni
um Ungfrú heim í Kína. „Iris
Thomsen, sem var ungfrú Danmörk
á þeim tíma, sá kjólana mína á Fa-
cebook og hafði samband. Það að
hún skyldi klæðast hönnun minni
hafði mjög mikil áhrif á feril minn,“
segir Laila. Síðan hefur Laila hann-
að fyrir fleiri þekkta einstaklinga og
má þá helst nefna söngkonuna Ei-
vöru Pálsdóttur. Laila selur hönnun
sína ekki í ákveðinni verslun en
heldur reglulega svokallaða pop up-
verslun fyrir jólin þar sem hún sel-
ur barnaföt. „Annars hanna ég bara
kjóla sem eru einstakir og pantaðir
af viðskiptavininum persónulega.“
Laila er einnig yfirkennari í og
stýrir hönnunardeild Tækniskólans
í Þórshöfn. „Ég kenni hönnun en
það er svo magnað að þegar maður
kennir ungu fólki lærir maður svo
mikið af nemendum sínum. Ég hef
grætt alveg ótrúlega margt á þess-
ari kennslu, þetta er frábært starf.“
Lífið er stutt
Tónlistin hafði alltaf verið í lífi
Lailu en aldrei opinberlega. „Þegar
ég varð þrítug gerði ég mér þó
grein fyrir því að lífið er stutt og
ákvað þá að kýla á það og taka upp
og gefa út plötu. Ég hef fengið mjög
góð viðbrögð sem ég kann vel að
meta, sérstaklega þar sem ég bjóst
við hinu versta,“ bætir Laila við.
Þegar Laila er beðin að lýsa
tónlistinni sinni segir hún að hún sé
að stórum hluta innblásin af náttúru
Færeyja en hún sé einnig drama-
tísk og stundum sorgleg. „Ég missti
bróður minn fyrir nokkrum árum
og fyrsta lagið sem ég samdi var um
hann. Það er eina lagið á plötunni
sem er persónulegt, hin lýsa því
bara í hvernig skapi ég er daginn
sem þau eru samin.“
Tónlist Lailu er elektrónísk og
hefur henni verið lýst sem mikil-
fenglegri og melódískri og að hún
minni einna helst á Enyu og Mike
Oldfield með keltnesku ívafi. Laila
tók upp og samdi lögin á plötunni
með hjálp Gunnars G. Guttesen sem
hún segir að hafi verið ómetanleg
aðstoð og hennar hægri hönd í upp-
tökuferlinu. „Við erum þegar farin
að vinna að næstu plötu. Reyndar
býr Gunnar núna í Frakklandi
þannig að við gerum þetta mikið í
gegnum tölvu, sendum hvort á ann-
að hugmyndir og melódíur.“
Aðspurð segist Laila vera mjög
ánægð yfir því að vera komin til Ís-
lands og hún sé spennt fyrir kom-
andi tónleikum. „Það er mikill heið-
ur að fá að taka þátt í þessu
verkefni. Skipuleggjandinn heyrði
af mér, hafði samband og bað mig
að koma, sem mér fannst frábært.
Ég elska Ísland, það eru allir svo
vinalegir og skemmtilegir. Það ligg-
ur við að ég biðji manninn minn að
flytja hingað með mér,“ segir Laila
að lokum.
Hönnun Laila segist vilja vera frjáls
í hönnun sinni og ráða flestu.
Fegurð Ungfrú Danmörk klæddist
hönnun Lailu í keppni árið 2012.
Ljósmynd/Høgni Heinesen
Kjóll Söngkonan Eivör Pálsdóttir
klæddist kjól Lailu í auglýsingu.
Þegar ég varð þrítug
gerði ég mér þó grein
fyrir því að lífið er stutt“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2014
Verkir í hálsi og öxlum?
Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði
3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án
samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum
bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota
lyfið. Síðustu 3 mánuðir meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir eða augu. Getur
valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða
astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á almennum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við
brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi:
Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Fæst án lyfseðils
Verkjastillandi og bólgueyðandi við
verkjum í hálsi og öxlum!
Því miður er það staðreynd að óút-
runninn matur fyllir ruslagáma versl-
ana á höfuðborgarsvæðinu. Gríðarleg
verðmætasóun á sér stað í matvæla-
framleiðslu, smásölu og hjá neyt-
endum. Sóunin hefur ekki eingöngu
áhrif á matvælaverð heldur er hún
einnig mikið umhverfisvandamál.
Í tilefni af grænum dögum á vegum
Háskóla Íslands verður í dag kl. 11.30
haldið málþing í Norræna húsinu
undir yfirskriftinni Matarleifar. Mál-
þingið er vettvangur áhugaverðra
vangaveltna um matarleifar, sóun og
umhverfismál. M.a verður fjallað um
sjálfbærni í matvælaframleiðslu og
samfélagslega ábyrgð framleiðenda,
matjurtarækt í borg og vinnslu líf-
ræns úrgangs. Í lokin verða umræður.
Stutt hlé verður gert á fyrirlestrum
þegar boðið verður upp á léttan há-
degismat, framreiddan af meistara-
kokki sem nýtir hráefni sem komið er
yfir síðasta söludag og venjulega er
hent beint í ruslið.
Á morgun, föstudag, verður Guð-
rún Bergmann með fyrirlestur kl. 11-
12 í stofu 201 í Odda. Hún mun ræða
um græn viðskipti og þátttöku
kvenna í umhverfismálum.
Frítt er inn á alla viðburði grænna
daga og dagskrá þeirra er að finna á
Facebook: Green days-Iceland eða
vefsíðu: nemendafelog.hi.is/gaia.
Málþing um sóun á matvælum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Rakel Garðarsdóttir Hún setur málþingið í dag þar sem margt ber á góma.
Bragðið á matarleifum sem
meistarakokkur matreiðir í dag
Vitar hafa löngum heillað mannfólkið
en myndir úr bókinni Viti vitavarðar-
ins, eftir franska vitavörðinn og lista-
manninn François Jouas-Poutrel, eru
nú til sýnis í anddyri Norræna húss-
ins. François Jouas-Poutrel starfaði
sem vitavörður til ársins 2008, en
hann var af efnafólki kominn. Hann
hóf feril sinn á því að mála og lita áð-
ur en hann einbeitti sér að því að
gera táknmyndir. Dag einn í vita að
nafni Roches Douvres kviknaði hjá
honum hugmynd þegar hann las bók
um frægan listmálara: Hvernig hefði
sá listamaður málað þennan tiltekna
vita? „Viti vitavarðarins“ var fyrsta
bók François en í seinni bók sinni
túlkaði hann Mont Saint-Michel í
Frakklandi eftir ólíkum stíl fjölmargra
listamanna.
Sýning í anddyri Norræna hússins
Vitar franska vitavarðarins
Listamaður François Jouas-Poutrel hefur eytt mörgum stundum í vitum.