Morgunblaðið - 03.04.2014, Síða 16
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Tápmiklar stúlkur hlaupa um og
kasta bolta á æfingu í KA-heimilinu
á Akureyri. Jóhannes Gunnar
Bjarnason, kennari, handboltaþjálf-
ari og fyrrverandi bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins, þarf að benda
á dóttur sína til að sá sem þetta ritar
átti sig á því hver hún er. Sú stutta
sker ekki úr hópnum. Fyrir liðlega
sjö árum, þegar Bjarney Hilma
fæddist, var henni hins vegar vart
hugað líf; vó ekki nema 680 grömm
enda fædd þremur og hálfum mán-
uði fyrir tímann. Tvíburabróðir
hennar, Jóhannes Gunnar, fæddist
andvana nokkrum vikum fyrr.
Kraftaverk
Jóhannes og eiginkona hans,
Kristín Hilmarsdóttir, gengu í gegn-
um miklar hremmingar eins og
nærri má geta.
Kristín hafði farið í allar hefð-
bundnar skoðanir og allt var með
felldu þar til dag einn, 16. júlí 2006, á
18. viku meðgöngu, að hún missti
vatnið að öðru barninu.
Kvensjúkdómalæknir var ræstur
út á Sjúkrahúsinu á Akureyri og Jó-
hannes segir ekki mikla bjartsýni
hafa verið ríkjandi. „Læknirinn
sagði að fóstrið kæmi líklega fljót-
lega – jafnvel strax – og maður
skynjaði á starfsfólkinu að í vændum
væri mikið áfall. Að nú fæddust lík-
lega tvö andvana börn. En fyrsta
kraftaverkið af nokkrum var það að
drengurinn kemur ekki fyrr en eftir
ríflega þrjár vikur og hjálpaði systur
sinni í raun með því. En þegar hann
fæddist reiknuðum við með, miðað
við andlegan undirbúning, að skell-
urinn yrði tvöfaldur. Að hitt barnið
kæmi strax á eftir, eins og lang-
algengast er í tilfellum sem þessu.
Við höfðum ákveðið að ef þetta
færi svona myndum við skíra börnin
í höfuðið á okkur og hann heitir Jó-
hannes Gunnar. Þegar farið var með
hann í líkhúsið var hugsun mín sú að
eftir að stúlkan væri fædd myndu
þau hvíla saman. En fyrir annað
kraftaverk fæddist stúlkan ekki
strax. Okkur hafði verið sagt að 24
vikur væri lágmarkstími til að lífs-
líkur væru bærilegar þannig að von-
in jókst á hverjum einasta degi; hver
dagur var mikilvægur og allir voru
þeir lengi að líða.“
Hjónin voru lögð inn á kvenna-
deild Sjúkrahússins á Akureyri.
„Þar lá ég í 40 daga, þar til 26. ágúst.
Daginn áður hófust miklar blæð-
ingar hjá konunni minni – á 23. viku
– en þegar þær hættu og barnið kom
samt ekki var ákveðið að senda okk-
ur með sjúkraflugi suður.
Í millitíðinni hafði ég farið í gegn-
um þá erfiðu athöfn með fósturdóttur
minni og séra Jónu Lísu Þorsteins-
dóttur að jarðsetja drenginn; það var
gríðarlega erfið stund, ekki síst fyrir
konu mína því hún gat ekki verið við-
stödd. Mátti ekki hreyfa sig úr rúm-
inu. Ég fæ aldrei fullþakkað Jónu
Lísu fyrir það hvernig hún lóðsaði
mig í gegnum þessar ömurlegu að-
stæður. Það er örugglega henni og
Ingibjörgu Jónsdóttur yfirljósmóður
að þakka að ég var lagður inn á fæð-
ingardeild en ekki aðra, ónefnda
deild á spítalanum. Það var ótrúlega
mikill styrkur að þeim.“
Þegar til Reykjavíkur kom lögð-
ust bæði hjónin inn á kven-
sjúkdómadeild á ný. „Ég skal hund-
ur heita ef einhver karl hefur lengið
lengur á kvennadeild en ég!“ segir
Jóhannes í gríni.
Þegar Kristín var gengin 24 vikur
og fimm daga sér læknir við skoðun
að fæðing er að hefjast.
„Litla krílið neitaði reyndar að
koma út; var þversum og læknirinn
þurfti að beita handafli til að ná
þessum 680 grömmum í heiminn. Á
lífsmarksskalanum, sem er frá 0 til
10, skoraði Bjarney Hilma 1,0 við
fæðingu og ég gat ekki betur séð en
hún væri dáin.“
Þegar Kristín fór í aðgerð eftir
fæðinguna sat Jóhannes frammi á
gangi og segist hafa verið nánast úti
á þekju. „Ég hefði sennilega ekki
ratað út úr húsinu þótt ég hefði
reynt. Þá kemur Hróðmar Helgason
hjartalæknir, þessi mikli snillingur,
og fer með mig inn á vökudeild.
Hann gaf mér reyndar fyrst kaffi-
bolla og það met verður aldrei slegið
sem sá bolli gerði mér. Öll lyfjaflór-
an hefði sennilega ekki haft jafn
mikil áhrif.“
Þegar þeir komu inn á vökudeild
hafði dóttir Jóhannesar verið tengd
við alls kyns vélar. Stúlkan var blá
og marin á höfði, öxl og hendi, vegna
þess hve læknirinn hafði þurft að
taka hraustlega á henni í fæðing-
unni. „Ég verð að viðurkenna að mín
fyrstu viðbrögð voru þau að ég hugs-
aði um hve mikið hún yrði skert, ef
hún myndi þá lifa þetta af.“
Stúlkan fæddist 6. september,
rúmlega hálfum fjórða mánuði á
undan áætlun. Hún átti að fæðast á
aðfangadag, en þannig vildi til að
hún var útskrifuð af Landspít-
alanum þann dag.
Jóhannes segir Kristínu konu sína
hafa verið töluverðan tíma að jafna
sig. „Hún var búin að liggja mán-
uðum saman og ég þurfti eiginlega
að hjálpa henni að læra að ganga
upp á nýtt. Það var heilmikið mál
fyrir gamla Andrésar andar meist-
arann á skíðum og fimleikadrottn-
inguna fyrrverandi. En það hjálpaði
henni reyndar örugglega hve vel
hún var á sig komin.“
Spítalinn útvegaði hjónunum íbúð
skammt frá stofnuninni „og við vor-
um í mat hjá systur minni sem býr
þar stutt frá. Stína gat mjólkað sig
þannig að barnið fékk móðurmjólk
með öllum þeim bæti- og næring-
arefnum sem brjóstamjólkin gefur
og það hefur örugglega átt stóran
þátt í því að Bjarney hafði sig í gegn-
um þetta.“
Stúlkan veiktist nokkrum sinnum
en Jóhannes segir lækna hafa fylgst
vel með og ætíð brugðið skjótt við.
„Erfiðasti hjallinn var vegna þess að
lungun tóku ekki nógu vel við sér.
Við vorum kölluð á fund og sagt að
eini möguleikinn væri að taka
nokkra áhættu; að setja stúlkuna á
sterameðferð sem myndi hjálpa
lungnablöðrunum að þroskast en
það gæti líka haft neikvæð áhrif ef
það mistækist. Það var ekki um neitt
að velja; við urðum að taka áhættuna
og lungun tóku kipp.“
Jóhannes segir það hafa verið gíf-
urlegan sigur þegar dóttir hans losn-
aði úr öndunarvélinni en í kjölfarið
hófst vinna við að þyngja hana því
enn var hún var mjög lítil. Hann tek-
ur af sér giftingarhringinn til að út-
skýra stöðuna fyrir blaðamanni:
„Bjarney
Hilma er
kraftaverk“
Vó 680 grömm en spjarar sig vel
Jóhannes: „Ég er breyttur maður“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hamingja Jóhannes Gunnar Bjarnason og dóttirin Bjarney Hilma, sem nú er á áttunda ári. Henni gengur vel í skóla
og hún æfir íþróttir af miklum áhuga. Myndin er tekin á handboltaæfingu hjá KA í vikunni.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2014
HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS
…OGÞÚVELURLENGRI LEIÐINAHEIM.
HENTAR MJÖG VEL FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR ÞAR SEM „MICRO“ FJAÐRANDI STELLIÐ
ÉTUR Í SIG GRÓFA MALBIKIÐ OG GERIR HJÓLAFERÐINA ENN ÞÆGILEGRI
ÞÚ NÝTUR ÞESS
AÐ MOKA INN KÍLÓMETRUNUM
Á CANNONDALE SYNAPSE.
229.900.-
Oddur Helgi Halldórsson, stofn-
andi Lista fólksins, hættir í bæjar-
stjórn í vor. Hann hefur setið þar í
17 ár sem aðalmaður en þrjú ár þar
á undan sem varamaður.
Oddur var fyrst í Framsóknar-
flokknum en stofnaði L-listann 1998
og náði meirihluta í bæjarstjórn fyr-
ir fjórum árum: fékk sex menn
kjörna. Það hafði engu framboði tek-
ist áður í sögu bæjarins.
Bæjarfulltrú-
anum fráfarandi
telst til að hann
hefi setið meira
en 300 bæj-
arstjórnarfundi.
„Ég hef setið í
bæjarráði frá
árinu 1998 og því
setið yfir 700
bæjarráðsfundi.
Það má segja að
langflesta fimmtudagsmorgna und-
anfarin 16 ár hafi ég setið í þessum
sal,“ sagði Oddur á bæjarstjórn-
arfundi í fyrradag.
AK Extreme, árleg bretta- og
skíðahátíð, verður á Akureyri um
helgina. Ballið byrjar í dag í Hlíð-
arfjalli en hápunkturinn verður efst
í Gilinu í miðbænum á laugardags-
kvöld. Fimm hæða stæðu af stórum
Eimskipsgámum hefur verið staflað
upp, fyrir neðan gamla íþróttahúsið
við Laugargötu; hetjurnar renna sér
þaðan niður braut og stökkva af
palli.
Stökkkeppnin nýtur mikilla vin-
sælda. Talið er að 7.000 manns hafi
verið á staðnum í fyrra. Bein útsend-
ing verður á sjónvarpsstöðinni N4.
Í tengslum við hátíðina eru tón-
leikar í Sjallanum fimmtudags-,
föstudags- og laugardagskvöld, þar
sem diskótekarar og hljómsveitir
koma fram; á laugardagskvöldið t.d.
bæði Brain Police og Sólstafir.
Líklegt er að fjöldi ungmenna leggi
leið sína til bæjarins því Söngkeppni
framhaldsskólanna fer fram um
helgina. Að þessu sinni í menningar-
húsinu Hofi. Úrslit verða á laugar-
dagskvöld, í beinni útsendingu
RÚV.
Helgi Björns og Reiðmenn vind-
anna verða með tónleika á Græna
hattinum, bæði föstudags- og laug-
ardagskvöld. SSSól verður svo með
dansleik eftir laugardagstónleikana.
Oddur: Þúsund fundir
í sal bæjarstjórnar
Oddur Helgi
Halldórsson