Morgunblaðið - 03.04.2014, Side 29

Morgunblaðið - 03.04.2014, Side 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2014 ✝ Lilja HalldóraGuðnadóttir fæddist í Reykjavík 3. mars 1920. Hún lést á Landspít- alanum Fossvogi 23. mars 2014. Foreldrar henn- ar voru Sóldís Guð- mundsdóttir, f. 17. ágúst 1882, d. 18. mars 1969, og Guðni Guðnason, f. 23. maí 1872, d. 21. ágúst 1921. Lilja var gift Kjartani Benja- mínssyni, f. 2. september 1920, d. 31. mars 1996. Börn Lilju og Kjartans eru: 1) Sóldís, f. 20. október 1950, maki Kenneth Marty Russell, f. 19. mars 1967, Sóldís á fjögur börn af fyrra hjónabandi: a) Kjartan Halldór, f. 31. desember 1968, d. 27. október 2003, b) Birgi, f. 29. desember 1969, c) Kolbrúnu ágúst 1978, d) Hugborg Anna, f. 28. október 1981. 4) Helgi, f. 6. apríl 1955, maki Kristín Sigurð- ardóttir, f. 20. júní 1957. Helgi á fjögur börn af fyrra hjóna- bandi: a) Bent, f. 23. júní 1979, b) Frey, f. 4. júlí 1982, c) Að- alheiði, f. 18. desember 1983, d) Snædísi, f. 1. janúar 1990. Kjartan átti fyrir eina dóttur, Guðnýju Jóhönnu, f. 13. febrúar 1945, maki Ólafur Hannes Kornelíusson, f. 5. september 1945, börn þeirra: a) Guðjón, f. 19. janúar 1966, b) Helgi, f. 22. febrúar 1970. Langömmubörnin eru 35 og langalangömmubörn- in eru þrjú. Ung að árum vann Lilja í Leðuriðjunni og við að halda hreinu í heimahúsum. Árið 1966-1971 starfaði hún í Efna- blöndunni í Rauðagerði, ári síð- ar hóf hún störf við ræstingar á skrifstofum Orkustofnunar á Grensásvegi og hjá Mjólk- urfélagi Reykjavíkur þar til hún lét af störfum vegna aldurs 67 ára gömul. Útför Lilju fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 3. mars 2014, og hefst kl.13. Ósk, f. 15. janúar 1975, d) Stefán Ak- sel, f. 15. júní 1984. 2) Benjamín Magn- ús, f. 15. mars 1952, maki Anna Kristín Guðbrands- dóttir, f. 8. febrúar 1960, börn þeirra eru: a) Sóldís Lilja, f. 12. júlí 1983, b) Kjartan, f. 13. des- ember 1988, c) Margrét Mjöll, f. 19. ágúst 1995, Benjamín á einnig þrjú börn frá fyrra hjónabandi: a) Evu Katr- ínu, f. 9. apríl 1976, b) Benjamín Má, f. 10. júní 1979, og c) Erlu Dagrúnu, f. 5. nóvember 1980. 3) Bryndís, f. 7. mars 1954, maki Sturla Halldórsson, f. 10. febrúar 1955, börn þeirra eru: a) Lilja Halldóra, f. 30. apríl 1973, b) Halldór Birkir, f. 29. mars 1976, c) Veigar Þór, f. 1. Jæja, það hlaut að koma að því, þú fékkst loksins hið langþráða sumarfrí sem þú varst búin að tala um í mörg ár. Ekki hvarflaði það að mér, þegar Benni bróðir hringdi og sagði að það væri búið að leggja þig inn á bráðamót- tökuna, að það yrði síðasti dagur- inn í þínu lífi. Lífshlaup þitt var langt og oft á tíðum erfitt, en góðu stundirnar voru stutt undan, öll ferðalögin sem farin voru á árunum 1962- 1970, jöklar rannsakaðir, Þórs- mörk, Hveravellir, Hagavatn og Laugarvatn. Þá var alltaf heima- bakað brauð með í nesti, raðað í ferkantaðan járnkassa, kleinurnar á sínum stað, steinolíuprímus. Já, það voru sko ferðalög. Þá var mik- ið sungið og hver með sínu nefi; Ólafur Liljurós, Harðarhólmi og öll hin lögin sem varla heyrast í dag. Þá voru jepparnir litlir og þröngir en hverjum var ekki sama, við vorum á ferðalagi! Seinna meir ferðuðust þið pabbi um landið þvert og endilangt skoðandi hina og þessa sveitavegi og heimsækja ættingja og vini. En hver var hún þessi kona, hún Lilja? Hún hafði allt sitt á hreinu, fylgdist vel með öllu, las öll fréttablöðin, tók ekki lán, allt stað- greitt, hafði skoðun á flestu, tjáði þér hug sinn hvort sem þér líkaði betur eða verr, var oft á tíðum mjög orðheppin, gamansöm, hafði yndi af ömmubörnunum og vildi vera með í veislum og skemmtun- um. Já, mamma, það eru ljúfar minningar um þig sem streyma í gegnum hugann þessa dagana og þær munu lifa. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Helgi og Kristín. Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöð- um hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (höf. óþekktur) Oft verðum við mennirnir vitni að upphafi og endi, þannig er lífið, við fæðumst í þennan heim og eitt er víst að héðan verðum við frá að hverfa. Hún tengdamóðir mín Lilja Halldóra Guðnadóttir tók öllu því sem varð á vegi hennar á þessu ferðalagi opnum hug og er það heiður að hafa fengið að vera sam- ferða henni í rúmlega 30 ár. Að ná 94 ára aldri er nú nokkuð gott, við getum sætt okkur við dauðann þegar aldraðir og sjúkir fá að komast á endastöð á þessu ferða- lagi lífsins, þó svo Lilja hafi náð háum aldri var hún hress og 100% skýr í allri hugsun og gjörðum, þó svo líkaminn hafi verið farinn að gefa sig þá fylgdist hún með öllu, las blöðin og fylgdist með fréttum og hafði skoðun á „bacelorettum“ og öðrum þáttum í sjónvarpinu, leiðindaljós eins og hún kallaði þátt í sjónvarpinu var hennar tími og var maður ekkert að trufla á þeim tíma. Hún hélt vel utan um alla afkomendur sína, þekkti þá og vildi vita hvað þau hefðu fyrir stafni. Minnist ég sunnudaganna í Ásgarðinum þar sem allir komu saman, börn og barnabörn, og var þá oft glatt á hjalla, ég sakna oft þessara samverustunda með öll- um börnunum sem fannst ekki leiðinlegt að renna sér í brekkunni við Ásgarðinn og koma svo inn til ömmu og fá nýbakaða kleinu í lóf- ann. Já, margs er að minnast við andlát ástvinar og eru þær minn- ingar ljúfar og notalegar. Fyrir nokkrum árum var Lilja farin að finna fyrir þreytu og vildi komast á heimili þar sem hún fengi að vera samferða sínum jafnöldrum og fá þá þjónustu sem öldruðu fólki ber en það gekk ekki þrautalaust að fá vist á elliheimili þó hún væri komin yfir nírætt. Í febrúar fékk hún þó inni á Grund og var farin að taka þátt í fé- lagsstarfinu þar og fann sig vel í handavinnustofunni. Það hefði verið svo gott og gaman ef hún hefði getað notið þessara stunda lengur og við fengið að hafa hana hjá okkur þó ekki væri nema í smátíma í viðbót. Hún sagði við mig að kannski yrði hún ekki þarna lengur en svona 3 mánuði, þá færi hún sko í langa sumarfríð, ég er viss um að Kjartan tekur á móti henni með opinn faðminn og þau leiðast saman í langa sum- arfríið og sameinast á ný, en þau voru einstaklega samrýmd hjón og sá maður ástina og kærleikann á milli þeirra. Já, minning þín lifir og þú gleymist aldrei. Ég veit að þín er sárt saknað en nú var tímaglasið þitt útrunnið hér á meðal vor. En það eru ekki til orð sem geta full- þakkað þér allar ánægjustundirn- ar sem við áttum með þér en þar sem þið Kjartan hafið nú samein- ast á ný í himnaríki veit ég að þið lítið til með okkur öllum og verðið í huga okkar. Minning þín lifir sem ljós í hjarta mínu. Kveðja, Anna Kristín Guðbrandsdóttir. Elsku amma, nú er stundin runnin upp sem ég hef ætíð forð- ast að hugsa um. Komið er að kveðjustund eftir langa yndislega samverustund hjá okkur í þessari tilvist. Kveðjustund sem erfitt er að sætta sig við en ég veit að þú ert hvíldinni fegin og loksins á leið á þann stað sem þú saknaðir mik- ið, þ.e. að vera við hlið afa. Alltaf er sárt að kveðja manneskju sem manni þykir svona innilega vænt um. Hér sit ég með tárvotar kinn- ar og hugsa til þín og allra þeirra góðu stunda sem við höfum átt saman, rifja upp margar dásam- legar minningar sem ég er svo heppin að eiga um þig og tímann okkar saman og get ekki annað en verið þakklát fyrir það. Minningar um allar stundirnar í Ásgarðinum, ferðalögin sem ég fór í með ykkur afa, um alla pakkana og umslögin sem þú sendir mér vestur sem innihéldu nokkur pör af eyrna- lokkum eða einhverju fíneríi sem þér fannst ég verða að fá, sérstak- lega því þú taldir að ekki væri mikið í boði á Ísafirði fyrir stelpu- skjátuna mig, minningar um öll frímerkin sem þú sendir mér því þér var svo mikið í mun að eitt- hvert okkar barnabarnanna myndi safna frímerkjum, minn- ingar um tímann sem ég fékk að eyða með þér í vinnunni þegar þú varst að ræsta hjá Orkustofnun, minningar um ferðirnar í tusku- búðirnar því þú gast ómögulega verið oftar en tvisvar til þrisvar í sömu fötunum þegar þú varst að hitta hinar kerlingarnar. Það er svo margs að minnast, þú varst svo einstök og hjartahlý og ekki má gleyma hversu mikill húmor- isti þú varst og einstaklega orð- heppin. Það eru líka ekki allir sem eru svo heppnir að eiga 94 ára gamla ömmu og langömmu sem fylgdist með öllu og var vel með á nótunum í öllu saman fram á síð- asta dag. Ég og mínir vorum rík að eiga þig, elsku amma, og fá að njóta lífsins með þér. Þú munt allt- af eiga stað í hjarta mínu og ég mun ætíð minnast þín. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hvíl í friði. Kveðja, þín dótturdóttir, Lilja Halldóra. Elsku amma okkar hefur nú kvatt þennan heim og skilið eftir stórt skarð í fjölskyldunni. Úr barnæsku eigum við margar skemmtilegar minningar frá heimsóknum til ömmu og afa. Minningar um ömmubrauð, klein- ur og kandís eða við að spila klepp- ara við frændsystkin okkar. Það var alltaf líf og fjör í Ásgarðinum. Eftir að afi féll frá og amma flutti í Hæðagarðinn fékk maður alltaf hlýjar og notalegar móttökur. Það var gaman að spjalla við ömmu, bæði um almenna hluti sem og heimsmálin. Óhætt er að segja að amma hafi haft munninn fyrir neðan nefið því hún lá ekki á skoð- unum sínum. Þá má ekki gleyma að minnast á stríðnina. Við höld- um að það sé ekki ofsögum sagt að nú sé fallinn frá formaður hins óformlega stríðnifélags fjölskyld- unnar. Sumir myndu segja að amma hafi verið með söfnunaráráttu því hún geymdi flestöll ílát, krukkur, dollur og plastpoka sem inn á heimilið komu en hið rétta er að amma var einfaldlega nýtin og nýtti þá hluti sem hún gat. Dæmi um nýtni hennar er að hún klippti út myndir af jólasveinum af mjólk- urfernum og geymdi í gömlu boxi. Þegar barnabörnin komu í heim- sókn um jólin fengu þau að velja sér nokkrar myndir og hafa með sér heim sem vakti mikla kátínu. Amma gaf sér alltaf tíma til að leika og spjalla við barnabörnin sem öll hændust að henni. Ekki er hægt að kveðja ömmu án þess að minnast á handlagni hennar og handverk. Ásamt því að mála á gler og postulín þá perlaði amma m.a. jólaskraut og kúlur og gaf okkur í jólagjöf. Handverk hennar einkennist af nákvæmni og er okkur afskaplega kært. Þrátt fyrir að líkami ömmu hafi verið orðinn lúinn og tilbúinn til þess að fara í „sumarfrí“ eins og amma átti til að orða það þá var höfuðið á sínum stað. Sjaldan höf- um við hitt jafn lífsglaða og skemmtilega konu. Það er erfitt að koma orðum að því en hún var bara eitthvað svo með á nótunum og hress þrátt fyrir háan aldur og með þá mynd í huga kveðjum við ömmu Lilju. Hvíl í friði, elsku amma. Heiða og Snædís. Elsku amman mín. Mikið var nú erfitt að vera svona langt í burtu þegar pabbi hringdi og lét mig vita að þú værir komin aftur á sjúkrahúsið. Enn erfiðara þegar hann sagði mér að þetta væri síð- asta ferðin á sjúkrahúsið. En mik- ið er ég nú þakklát fyrir það að hafa heyrt af því að þú varst alger- lega þú sjálf og gerðir læknunum erfitt fyrir með þínum skemmti- lega kaldhæðna húmor. Eins er það nú gott að vita að þú varst tilbúin og þér leið alls ekki illa. Margs er að minnast og ekki annað hægt en að brosa í gegnum tárin því minningarnar eru góðar. Ég hitti þig síðast í byrjun mars þegar ég kom óvænt heim í af- mælið hennar mömmu og kom þér jafnmikið á óvart og er minningin af viðbrögðunum þínum við því eins og greypt í hugann. Ég átti nokkrar góðar stundir með þér þá og þú gafst mér nokkur viskukorn í brunninn sem maður á eftir að varðveita. Þú varst svo ánægð með nýja herbergið þitt á Grund og sagðir mér að þú værir núna komin á biðstofuna og þegar þú færir tæki annar við. Takk fyrir að kenna mér að maður þarf ekki að vera annar en maður sjálfur og góða ferð í langa ferðalagið. Ég er nokkuð viss um að nafnarnir hafi tekið þér fagn- andi og eru farnir að sýna þér kennileitin hinum megin. Og hvar sem að leiðin mín liggur þá liljuna í hjartastað ber, en missi ég liljuna ljúfu Þá lífið er horfið frá mér. (Þorsteinn Gíslason) Sjáumst seinna, amma mín. Þín litla, Hugborg. Lilja Halldóra Guðnadóttir ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN FRIÐRIKSDÓTTIR frá Hjarðarhaga, verður jarðsungin frá Kaupangskirkju laugardaginn 5. apríl kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð. Ragnheiður Snorradóttir, Haraldur Haraldsson, Oddný Snorradóttir, Sigurður Snorrason, Anna Sigríður Haraldsdóttir, Friðrik Snorrason, Ólöf Guðrún Helgadóttir, Snorri Snorrason, Heiða Dís Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar og fósturmóðir, SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Eskifirði, lést sunnudaginn 30. mars. Útför hennar fer fram frá Eskifjarðarkirkju þriðjudaginn 8. apríl kl. 14.00. Sigurborg Hilmarsdóttir, Hilmar Hilmarsson, Sonja Hilmars. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SÓLVEIG ÁRNADÓTTIR, andaðist í Brákarhlíð, hjúkrunar- og dvalar- heimili, Borgarnesi, sunnudaginn 30. mars. Hún verður jarðsungin frá Borgarneskirkju laugardaginn 5. apríl kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarsjóð Brákarhlíðar. Eggert Margeir Þórðarson, Júlíanna Júlíusdóttir, Theódór Kristinn Þórðarson, María Erla Geirsdóttir, Guðrún Þórðardóttir, Gylfi Björnsson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVERRIR BJÖRNSSON, Smáragrund 20, Sauðárkróki, lést mánudaginn 31. mars. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 11. apríl kl. 14.00. Guðný Eyjólfsdóttir, Hallfríður Sverrisdóttir, Sigurlaugur Elíasson, Björn Sverrisson, Hrefna Björg Guðmundsdóttir, Eiríkur Þór Sverrisson, Gunnlaug Ingvadóttir, Eyjólfur Gjafar Sverrisson, Anna Pála Gísladóttir, Sverrir Sverrisson, Fríða Ólöf Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, LOFTUR ÞORSTEINSSON verkfræðingur, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli aðfaranótt þriðjudagsins 1. apríl. Útför hans verður gerð frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 8. apríl kl. 15.00. Þorsteinn Loftsson, Hanna Lilja Guðleifsdóttir, Matthías Loftsson, Kolbrún Þorsteinsdóttir, Ingibjörg Loftsdóttir, Páll Loftsson, Anna Pála Vignisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.