Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Blaðsíða 3
gamma er aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Við erum stolt
af samstarfi okkar við hljómsveitina og ánægð með að geta tekið höndum
saman með ástríðufullu fagfólki um þetta mikilvæga starf.
www.gamma.is
Baksviðs með Sinfóníuhljómsveit Íslands� �
Feðgarnir Martial Nardeau og Matthías Nardeau vinna vinnuna sína með lungum og munni.
Matthías: Annars er ég mjög feginn að það hlýnaði
í vikunni. Blöðin eru svo viðkvæm fyrir frostinu.
Martial: Einmitt, það eru alltaf sömu vandræðin með
ykkur óbóleikara og þessi blöð. Matthías: En hvað með
pikkólóflautuna, er hún ekkert að springa?
Það er talsvert mikið loft í meðlimum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands og sumir
þeirra vinna hreinlega við að dæla því út
í heiminn í gegnum rör, pípur og ventla.
Hljóðfæri þeirra feðga, Martials og
Matthíasar Nardeau, tilheyra bæði
tréblástursdeild hljómsveitarinnar, þó
að annað þeirra, þverflautan, sé reyndar
yfirleitt úr málmi.
Óbóið er viðkvæmt hljóðfæri sem gerir
miklar kröfur til óbóleikara sem yfirleitt
eru í stanslausum vandræðum með
svokölluð „blöð“ sem þeir blása í
gegnum. Flautan á sér hins vegar langa
hefð og hefur fylgt manninum um
árþúsundir í ýmsum formum.
Martial Nardeau settist að með fjöl-
skyldu sinni á Íslandi árið 1982, sama ár
og Matthías fæddist suður í Frakklandi.
Martial hefur lagt mikið til tónlistarlífs-
ins hér á landi og ferðast víða til
tónleikahalds. Matthías Nardeau er
meðal unga fólksins í hljómsveitinni sem
fer létt með að taka að sér viðkvæmar
sólóstrófur á mikilvægum augnablikum.