Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Blaðsíða 41
20.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
U
ppáhaldskristilega hátíðin mín er að ganga í garð – sjálfir
páskarnir. Ólíkt jólunum þá koma páskarnir alltaf notalega
á óvart enda gerir fólk almennt engar sérstakar kröfur til
páskanna. Það er ekki með væntingar um að fá eitthvað
sjúklega dýrt og fínt frá ástinni og heimilið þarf ekki að vera fullkomið.
Flestir sætta sig við eina grein í vasa með nokkrum vesælum eggjum á
og í versta falli nokkrar páskaliljur á stangli.
Ég veit ekki um neinn sem dressar sig sérstaklega upp fyrir
páskana, lætur klippa fjölskylduna, kaupir páskagjaf-
ir eða er búinn að ákveða það með margra
vikna fyrirvara hvað matreitt verð-
ur. Nema náttúrlega hinir ofur-
skipulögðu sem borða alltaf það
sama á páskadag og annan í
páskum. Páskarnir eru tími til
að njóta, vera afslappaður og
svo væri ekki verra ef maður
myndi finna miðj-
una … (svona í eitt skipti
fyrir öll).
Eftir sérlega mikla vinnu-
törn sé ég það í hillingum að slappa
af, gera ekkert heldur vera svolít-
ið eins og 12 ára. Í eigin heimi og
áhyggjulaus. Á einhverjum tíma-
punkti í þarsíðustu viku var ég
orðin svo stressuð út af vinnu
(og kaótísku einkalífi) að ég var
komin með öran hjartslátt. Þeg-
ar ég ræddi það við móðursystur
mína sagði hún að ég yrði að
finna leið til að slaka á og sagði
svo: „Þú veist að fólk fær enga
aðvörun þegar það fer yfir um.
Það getur bara snappað allt í
einu.“
Það var því allt sett á fullt við
að reyna að slappa af, tæma
hugann, leggja gerviþarfir til
hliðar og einbeita sér að andar-
drættinum – anda inn – anda
út. Eftir þrotlausa vinnu í að
reyna að slaka á verð ég að játa
að núllstillingin gengur ágæt-
lega en ég hef örlitlar áhyggjur
af einu.
Það sem raskar áætluninni
um að finna miðjuna er spenn-
ingur einkasonanna tveggja
fyrir páskunum. Monsurnar
tvær (synir mínir) eru sérstaklega búnar að óska eftir því að fá risavax-
in páskaegg og þeir vilja leita að þeim. Það eina sem ég hef gert fyrir
þessa páska, fyrir utan náttúrlega að kaupa í matinn, er að fjárfesta í
gulum skrifstofumiðum sem dreift verður um húsið í hinum ógurlega
ratleik sem mun teygja anga sína yfir á lóð nágrannans og ég veit ekki
hvað. Þessi ratleikur er svolítið að eyðileggja fyrir mér leitina að miðj-
unni því ef ég þekki mína menn þá verður sá yngri vaknaður fyrir
klukkan sjö á páskadag í geðveiku stuði. Hann mun því drösla lang-
þreyttri móður sinni á fætur sem mun að öllum líkindum vera hálf-
vönkuð í leitinni ógurlegu að súkkulaðieggjunum.
Ef monsurnar finna eggin, verða þau svo borðuð uppi í hvítu rúmföt-
unum mínum sem munu láta verulega á sjá eftir þessa aðför … sem
veldur smá spennu.
Kraftlyftingaþjálfarinn minn spurði mig í vikunni hvort ég ætlaði
nokkuð að fá mér páskaegg. Ég horfði á hann með undrunarsvip og
sagðist að sjálfsögðu ætla að fá mér. Í lífinu skiptir nefnilega mjög
miklu máli að hafa góða stemningu í forgrunni og það að borða páska-
egg uppi í rúmi á páskadag er liður í því. Þótt páskaegg séu kannski
ekki það alhollasta sem hægt er að borða hef ég enga trú á að smá
súkkulaði fari með mig í gröfina og ég muni hljóta varanlega skaða af.
Þar sem páskanna verður notið í Reykjavík City finnst mér mikil-
vægt að það komi fram að klæðnaður hátíðarinnar hefur nú þegar verið
valinn. Um er að ræða neonlitaðar „hot-pants“, hlýrabol og hlébarða-
sokka. Í þessum klæðnaði er mjög gott að liggja undir sæng og horfa á
sjónvarpið og svo þrengir dressið ekki að þegar búið er að offylla mag-
ann af harðri fitu … Stundum er bara nauðsynlegt að klæða sig eftir
veðri, vindum og aðstæðum innandyra. martamaria@mbl.is
Finndu miðjuna
í neonlituðum
„hot-pants“
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
www.spennandi.com
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 - fös. 12-16
Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaísland
Eitt best geymda
leyndarmálið á
markaðnum
Weleda Skin Food er í miklu uppáhaldi hjá þekktum tísku-
fyrirsætum og förðunarfræðingum um allan heim. Skin
Food er 100% lífrænt árangursríkt alhliða krem sem nærir
þurra og viðkvæma húð og kemur jafnvægi á húðina.
Skin Food kom fyrst á markað fyrir meira en 80 árum síðan
og hefur uppskriftin verið óbreytt síðan.
Kremið er unnið úr lífrænt ræktuðum Stjúpum, Baldursbrá,
Morgunfrú og Rósmarín, gott krem fyrir alla fjölskylduna
– Í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is
Þú kaupir Weleda vörur í heilsuverslunum og apótekum um
allt land