Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Blaðsíða 33
Morgunblaðið/Þórður
Gestirnir og hópurinn er stend-
ur að baki tónlist og myndbandi
skyndihjálparlagsins frá vinstri:
Hermann Ottósson, fram-
kvæmdastjóri Rauða krossins á
Íslandi, Erla María Árnadóttir
myndskreytir, Lára Garð-
arsdóttir kvikari, Þórunn sjálf,
Gunnhildur Sveinsdóttir, verk-
efnisstjóri skyndihjálpar hjá
Rauða krossinum, Snæbjörn
Ragnarsson úr Skálmöld og
Ljótu hálfvitunum og Sævar Sig-
urgeirsson úr Ljótu hálfvitunum.
20.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Ýmislegt
páskalegt
góðgæti
KRABBASALAT ÞÓRUNNAR
surimi-krabbakjöt
1 dós sýrður rjómi
½ rauðlaukur, smátt saxaður
sítrónusafi eftir smekk
flöt steinselja eftir smekk
salt og pipar eftir smekk
Surimi-krabbakjötið skorið niður, ekki þó of smátt.
Rauðlaukurinn saxaður smátt og öllu blandað saman
varlega. Skreytið með steinseljunni. Berið fram með
brauði, kexi eða avókadó.
REYKT LAXABLÓM MEÐ
PIPARRÓTARRJÓMAOSTI
reyktur lax, skorinn í þunnar sneiðar
hreinn rjómaostur
piparrót, annaðhvort fersk og rifin eða fyr-
irfram maukuð
Hrærið piparrótina saman við hreinan rjómaost.
Skerið laxinn í ræmur og smyrjið með
rjómaostsblöndunni. Rúllið ræmunum upp
fallega.
HUMMUS
1 krukka lífrænar kjúklingabaunir,
notaði frá Sollu
½ dl möndlumjólk eða eftir smekk
2-3 hvítlauksrif
1 msk. tahini
1 msk. tamarisósa
¼ tsk. kúmenkrydd
1 tsk. paprikukrydd
salt og pipar eftir smekk
graslaukur eftir smekk
Gott er að byrja að mauka baunirnar í mat-
vinnsluvél og bæta svo afganginum saman við.
Endið á því að setja möndlumjólkina út í og
ákveðið magnið eftir því hvernig áferðar er
óskað. Tilvalið að skreyta með graslauk.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Bræðir þig
laugavegi 47, opið mán.- fös. 10-18, lau. 11-17 www.kokka.is kokka@kokka.is
Koparáhöld eru ekki bara snotur. Kopar hefur
óviðjafnanlega leiðni, dreifir varma haganlega og
dregur fram seiðandi bragð. De Buyer hefur búið
til eldhúsamboð frá 1830 og þar á bæ vita menn að
koparpottarnir þeirra eru pottþétt meistaraverk.
Þess vegna lofa þeir lífstíðarábyrgð.