Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.4. 2014
Græjur og tækni
Með Smartbean Bluetooth-tækinu er hægt
að breyta öllum heyrnartólum í Bluetooth-
heyrnartól og losna þannig við óþægindin
snúruheyrnartól. Tækið, sem er á stærð við
iPod shuffle, kostar 40 dollara á Amazon,
eða rúmlega fimm þúsund krónur.
Heyrnartól gerð þráðlaus
S
telpur eru að koma meira
og meira inn í þessi fög
sem er mjög skemmti-
legt,“ segir Erla Harð-
ardóttir, nýkjörinn formaður
nemendafélagsins Tvíundar sem
er nemendafélagnema í tölv-
unarfræðideild við Háskólann í
Reykjavík.
Hrönn Róbertsdóttir er upp-
lýsingafulltrúi og Fanney Hrund
Jónasdóttir gjaldkeri en auk
þeirra eru þau Liljar Már Þor-
björnsson, Svava Dögg Björg-
vinsdóttir og Grímur Krist-
jánsson í stjórn Tvíundar.
Stúlkur sækja meira í tækni-
greinar en undanfarin tvö ár
hefur markvisst verið reynt að
fjölga stúlkum í þeim greinum.
Nú stunda alls 653 nám í tölv-
unarfræði við Háskólann í
Reykjavík, þar af 115 konur.
Aldrei spilað tölvuleiki
Erla segist ekki vera hinn týp-
íski tölvunarfræðinemandi; hún
kenni ballett og hafi aldrei spil-
að tölvuleiki. Námið sé hins veg-
ar skemmtilegt og forvitnilegt.
„Ég valdi þetta nám svolítið út í
bláinn en þetta er fjölbreytt
nám og starfsmöguleikarnir
miklir þegar maður er búinn.
Pabbi minn er forritari og það
hafði eflaust áhrif. Svo er þetta
er bara mjög skemmtilegt og
gefandi nám.“
Stelpurnar í tölvunarfræði
stofnuðu félagið /sys/tur í haust.
„Markmiðið með stofnun /sys/tra
er að skapa vettvang fyrir stelp-
ur þar sem þær geta fjallað um
nördalega hluti án þess að hafa
áhyggjur,“ segir á heimasíðu fé-
lagsins, sky.is.
Vísun í goðsögn
Nafnið /sys/tur er vísun í skrá-
arkerfi stýrikerfisins Linux og
póstlistann Systers sem Anita
Borg stofnaði árið 1987. Póstlist-
inn var hugsaður sem tengslanet
kvenna innan tæknigeirans en
þegar hún byrjaði með hann
voru tólf konur skráðar. Nú er
hann orðinn að heimsins stærsta
póstlistasamfélagi kvenna í
tæknigeiranum.
Starf félagsins fer þannig
fram að tvisvar í mánuði eru
svokölluð /sys/tra/kvöld. Þá koma
konur úr tæknigeiranum til að
segja stelpunum frá starfi sínu
og reynslu. Þar að auki hafa
verið settar upp tæknilegar
vinnustofur þar sem tölvur eru
meðal annars teknar í sundur
og aðrar áskoranir skoðaðar.
„/sys/tur var fyrst hugsað
bara frá tölvunarfræðinni en
núna hefur félagið stækkað og
þarna eru komnar inn stelpur
úr öðrum tæknideildum. „Konur
í tækni“, ætli það sé ekki góð
yfirskrift.“
Heillandi
heimur
tölvunnar
Í TÖLVUNARFRÆÐIDEILD HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK ERU 20%
NEMENDA KONUR. ÞEIM HEFUR FJÖLGAÐ TÖLUVERT
UNDANFARIN ÁR ENDA FÓR HÁSKÓLINN Í MARKVISST
STARF AÐ SÆKJA STELPUR Í ÞETTA NÁM. Í NÝKJÖRINNI
STJÓRN NEMENDAFÉLAGS TÖLVUNARFRÆÐIDEILDARINN-
AR ERU FJÓRAR KONUR OG TVEIR KARLMENN.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Nýkjörin stjórn Tvíundar, nemendafélags í tölvunarfræðideild við HR. Hrönn Róbertsdóttir upplýsingafulltrúi, Svava
Dögg Björgvinsdóttir skemmtanafulltrúi, Erla Harðardóttir formaður og Fanney Hrund Jónasdóttir gjaldkeri.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
* /sys/tur varfyrst hugsaðbara frá tölvunar-
fræðinni en núna
hefur félagið stækk-
að mikið.
LithiumCard sló í gegn á fjár-
mögnunarsíðunni Indiegogo síð-
astliðinn febrúar en frumkvöðl-
arnir á bak við LithiumCard,
Linearflux, höfðu vonast til að
safna 30 þúsund dollurum til að
koma vöru sinni á markað. Þeir
söfnuðu rúmum 170 þúsund doll-
urum og mun LithiumCard fara í
framleiðslu í lok apríl eða maí.
Búist er við að tækið komi á
markað í lok ársins.
Tækið er álíka þykkt og fimm
kreditkort sett saman og gert til
að passa í flestöll veski. Tækið
hefur fengið viðurnefnið súper-
hleðsla (e. Supercharger) og ekki
að ástæðulausu því það nær að
hlaða síma og önnur tæki með
sama hraða og sé vegginnstunga
notuð. Sé síminn settur í flug-
stillingu tekur enga stund að ná
topphleðslu en símar hlaðast mun
fljótar séu þeir settir í þá still-
ingu.
Til að nota tækið þarf að
hlaða það með venjulegri usb-
snúru. Þá er það tilbúið til notk-
unar og á ein hleðsla að duga til
að fylla á batterísbirgðir þriggja
tækja hvar og hvenær sem er.
Batteríhleðsla hvar sem er
SNJALLSÍMAR OG ÖNNUR
TÆKI GETA GERT DÁSAM-
LEGA HLUTI OG AUÐVELD-
AÐ LÍFIÐ EN BATTERÍIÐ
DUGAR OFT HELDUR
SKAMMT FYRIR MARGA.
Það getur tekið á taugarnar að vera alltaf með batteríslaust snjalltæki.
LithiumCard getur hlaðið það.
Ódýrt: Stafrænn FANTAST-
kjöthitamælir, segull á bakhlið-
inni, hægt að hafa bæði Celcius
og Fahrenheit. Verð: 1.490
Fæst í IKEA.
DÝRT, MIÐLUNGSDÝRT, ÓDÝRT
Kjöthita-
mælir
Dýrt: iGrill Þráðlaus kjöt-
hitamælir sem tengist
iPhone, iPad eða iPod touch
með Bluetooth. Verð: 22.990
Fæst í epli.is
Miðlungs: Stafrænn og
þráðlaus Weber-kjöt-
hitamælir. Tveir þræðir
geta verið á sama tíma
hvor í sínu stykkinu.
Verð: 9.895 Fæst í Elko
Lindum.
Aðgerðirnar
felast meðal
annars í að auka
sýnileika kvenna
í tæknigreinum,
bæði í auglýs-
ingum og í um-
fjöllun um fagið,
draga fjölbreytt
og spennandi
störf í geiranum fram og konur
sem sinna þeim, og efna til við-
burða þar sem við vinnum sér-
staklega með stúlkum.
Þar má til dæmis nefna Stelpur
og tækni / Girls in ICT-day, sem
við höldum í fyrsta sinn hinn 30.
apríl næstkomandi, en dagurinn
er samstarfsverkefni HR,
mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins, GreenCloud, Advania,
Hugsmiðjunnar og Women in
tech, sem er félagsskapur innan
GreenCloud.“
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri hjá Háskól-
anum í Reykjavík, segir að skólinn
hafi farið markvisst í að sækja
stelpur í tækninám í skólanum.
„Í tölvunarfræðideild núna eru
20% konur og 80% karlar. Til
samanburðar má taka árið 2012
en þá vorum við í 14% konum
og 86% körlum. Þannig að við
erum á réttri leið og sjáum að
aðgerðirnar skila sér.
Ástæða þess að við fórum í
markvissar aðgerðir er að við
sáum að tæknigreinar voru úr
samhengi við kynjahlutföll
háskólanema. Árið 2010 voru
62% heildarnemendafjölda á há-
skólastigi á Íslandi konur, og hlut-
fall kvenna í háskólanámi eykst
enn.
En konur sóttu mun minna í
tæknigreinar en karlar og það
þyrfti að snúa við þessari þróun.
Hlutfallið eykst ár frá ári
Jóhanna Vigdís
Guðmunsdóttir