Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Blaðsíða 12
* Blessunarlega ræð ég ekki öllu í Samfylkingunniog geri enga kröfu til þess. Árni Páll Árnason. Ungir flokksmenn gagnrýndu þá skoðun
formannsins að þjóðkirkja yrði hér áfram með tengsl við ríkisvaldið.
Landið og miðin
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
UM ALLT LAND
ÞINGEYRI
Bæjarfull-
trúar í
Ísafjarðarbæ,
allir með
tölu,
mótmæla
því sem
komið hefur fram af hálfu
Isavia að ekki sé til fjárma
til að laga Þingeyrarflugvö l
svo hann nýtist sem varav
fyrir Ísafjarðaflugvöll. Í ály
sem samþykkt var samhljó
bæjarstjórn, segir: „Nú ný
var opinberað að Isavia ha
verið rekið með 3,2 millja
króna hagnaði á síðasta
rekstrarári. Því er það kra
okkar að strax verði farið
í að laga Þingeyrarflugvöll
Öllu tali um að ekki sé til
fjármagn er hér með vísað
föðurhúsanna.“
ÐURSEYÐISFJÖR
Áform eru uppi um að ta
spennuþáttaröðina
leikstjórn Baltas
er segir á aus
þættirnir h
ÞISTILFJÖRÐUR
Kynslóðabilið var
brúað á aðalfundi
fjarða
Els
A
er 77
Ása M
Auk h
umræður
félagsins sem ve
Þistilfjarðar var sto
FLÚÐIR
Sveitarstjórn Hrunamann ðið
að koma upp níu hola fris
Þetta er ámóta sport og g
henda frisbídiski á undan
slá golfkúlu. Kostnaður sv
verkefnið verður tæp ein
BORGARNES
Framkvæmdir 2.
áf ið d ð
r að lj
ryrir lok maí. Meðal anna s verður
etbekkur við Skallagrímslaug og
ná í hálfhring utan við haug
Bekkurinnallagríms Kveldúlfssonar.
erður úr samskonar grjóti og hlöðnu
veggirnir við innganginn og við sviðið.
Valur hefur lamið húðir íhljómsveitum síðan hannvar níu ára en lagði kjuðana
að mestu á hilluna um áramótin.
Seldi þá trommusettið og allt til-
heyrandi. „Ég fann að vísu einn
kjuða í sokkaskúffunni um daginn!
Hann er það eina sem ég á eftir,“
segir Valur við Morgunblaðið.
Hann hóf störf hjá Slökkviliðinu
á Akureyri 2002 og stofnaði um
þær mundir hljómsveitina Hvann-
dalsbræður ásamt Sumarliða
Helgasyni og Rögnvaldi B. Rögn-
valdssyni; Summa og Rögnvaldi
gáfaða. „Við ákváðum að stofna
saumaklúbb og spila sem minnst en
hafa sem mest gaman sjálfir! Það
breyttist fljótt því brjálað var að
gera og góður peningur í boði.“
Fljótlega fjölgaði í sveitinni og
hún spilaði flestar helgar, hér og
þar um landið, árum saman. Valur
hélt sínu striki í aðalvinnunni, sem
slökkviliðs- og neyðarflutninga-
maður, en þar kom að hann langaði
að mennta sig meira. „Ég fann fyr-
ir ákveðinni stöðnun og til greina
kom að drífa sig í níu mánaða nám
til Pittsburgh í Bandaríkjunum og
verða bráðatæknir. Það er hins
vegar meira en að segja það þegar
maður er með fjölskyldu og ég
ákvað þess vegna að fara í hjúkr-
unarfræði í Háskólanum á Akur-
eyri og sé ekki eftir því. Mér
fannst námið liggja beint við vegna
þekkingar minnar á sjúkraflutn-
ingum. Í skólanum er mikið farið í
lyfjafræði, líffærafræði og lífeðlis-
fræði og það á vel við mig.“
Valur, sem jafnframt er í fullri
vinnu hjá slökkviliðinu, er hálfn-
aður með námið en segir fram-
haldið óráðið. „Mig langar að sér-
hæfa mig, hvort sem það verður
fyrir sjúkraflutninga eða starf inni
á spítala. Mér finnst svæfinga-
hjúkrun mest spennandi í augna-
blikinu, hana yrði ég annaðhvort
að læra fyrir sunnan eða úti og það
er ekkert launungarmál að ég horfi
spenntur til Svíþjóðar, en ekkert
er öruggt í þeim efnum.“
Valur vill hafa nóg fyrir stafni og
hafði nýlokið kennslu á endurlífg-
unarnámskeiði í sjúkraflutninga-
skólanum þegar blaðamaður ræddi
við hann. „Við erum nokkur með
réttindi frá evrópska endurlífg-
unarráðinu, og kennum sjúkrflutn-
ingamönnum, læknum og hjúkr-
unafræðingum sérhæfða endur-
lífgun.“ Hjúkrunarfræðineminn
sinnir því sem sagt í aukavinnu að
kenna læknum …
Starf slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamanns hentar ekki öllum, að
sögn Vals, „en það kemur fljótt í
ljós hvort starfið á við menn eða
ekki. Það þarf sérstaka persónu-
leika í þetta því við komum að ljót-
um slysum, sem getur tekið mikið
á. Ég hef alltaf verið pínulítið of-
virkur og nokkurs konar adrenalín-
fíkill, og finnst sjálfum að ég standi
mig best við aðstæður þar sem er
mikið at; það róar mig einhvern
veginn niður að lenda í slíku og ég
á auðvelt með að einbeita mér“.
Mikilvægt er að taka hlutina
ekki of nærri sér, þá geta menn
brunnið fljótt upp í starfi, segir
Valur, og bætir við að mikilvægt sé
að ræða málin við starfsfélagana
eftir erfið atvik og mikið álag.
„Það hljómar kannski undarlega
en starfið er fyrir löngu orðið eins
og hver önnur vinna fyrir mér en
þó ekki þannig að einbeitingin
minnki. Hún þarf alltaf að vera
fullkomin. Ég hef gaman af þessari
vinnu og get vonandi sinni henni í
mörg ár enn,“ segir Valur Freyr
Halldórsson.
AKUREYRI
Lærir hjúkrun
en kennir
læknum!
VALUR FREYR HALLDÓRSSON HEFUR KOMIÐ VÍÐA VIÐ
ENDA VILL HANN HAFA NÓG AÐ GERA; SLÖKKVILIÐS-
OG NEYÐARFLUTNINGAMAÐUR UM ÁRABIL OG TROMM-
ARI HVANNDALSBRÆÐRA, EN LÆRIR NÚ HJÚKRUN.
Valur Freyr á vaktinni á lyfjadeild Sjúkrahússins á Akureyri: Velti fyrir mér að læra svæfingahjúkrunarfræði, segir hann.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Valur „Hvanndal“ trommaði og söng með Hvanndalsbræðrum en er nýhættur.
Ljósmynd/Daníel Starrason
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.4. 2014