Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Blaðsíða 17
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, segir fjöl-
skyldustundirnar ákaflega dýrmætar,
sér í lagi þegar mikið er að gera hjá
meðlimum.
Þátturinn sem allir geta horft á?
Þeim fer fjölgandi þáttunum sem við
getum öll horft á saman og haft gam-
an af, frá fimm ára til tæplega mið-
aldra. Fyrst koma mér í hug dýra-
lífs- og fræðsluþættirnir um heiminn
sem voru alltaf á dagskrá á mánu-
dagskvöldum. Við skemmtum okkur
konunglega með mörgæsunum og ís-
björnunum og fylgdumst svo spennt
með harðri lífsbaráttu þeirra þess á
milli.
Fólkið í blokkinni var líka í miklu
uppáhaldi hjá okkur öllum.
Spaugstofan og Ísland got tal-
ent komast líka á blað.
Maturinn sem er í uppá-
haldi hjá öllum? Þetta er
auðvelt, kjúklingakássa
eins og amma Fríða
(mamma mín) bjó alltaf
til. Helgi Matthías, yngri
sonur minn, er alltaf al-
sæll þegar þessi rétt-
ur er í matinn því þá
er hann viss um að
fá eftirrétt. Af
hverju skyldi það
vera? Jú, það er sko ekkert mál að klára matinn
sinn þegar þetta er í matinn.
Skemmtilegast að gera saman? Okkur þykir
mjög gaman að ferðast saman, innan-
lands sem utan, og eigum ótrúlega
margar góðar og notalegar minningar
úr skemmtilegum ferðalögum. Við
förum á Þjóðhátíð í Eyjum á hverju ári og erum
farin að hlakka til næstu hátíðar þegar við keyr-
um upp úr Herjólfi í Landeyjahöfn. Svo þykir
okkur líka gaman að fara saman í bíó, út að hjóla
og í fjöruferð.
Borðið þið morgunmat saman? Við reynum að gera það, en oftast er
það á miklum hlaupum. En það borða samt allir morgunmat áður en hald-
ið er út í daginn, eða svona yfirleitt. Oftast. Ókei, það tekst oftar um helg-
ar.
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? Okkur þykir
rosalega gott bara að vera saman, eiga notalegan letidag heima á náttföt-
unum, spjalla saman um heima og geima og gera kannski bara lítið sem
ekki neitt. Í miklu annríki eru þær stundir ákaflega dýrmætar og þá
hreinlega skiptir ekki máli hvað við erum að gera. En af því að sumarið er
nú alveg að koma þá er það líka alveg uppáhalds að vera á pallinum heima
á Heiðarbrún, fara í pottinn, sleikja sólina og hafa það almennt huggulegt.
Já, ég skal alveg viðurkenna að ég er tilbúin í sumarið!
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Þjóðhátíð í miklu uppáhaldi
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
590 3000 wowtravel@wowtravel.is
Menningarferð til
Varsjár og Kraká
1.-8. ágúst 2014
Verð frá: 149.900 kr.
Fararstjóri:Óttar Guðmundsson
læknir og rithöfundur.
Í ferðinni kynnir Óttar fyrir gestum
sínum sögu, menningu, listir og
mannvirki þessara borga, sem hafa
þolað bæði súrt og sætt og er
saga þeirra oft á tíðum ótrúleg.
BÓKAÐU Í TÍMA
20.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
… að turtildúfur velja sér einn maka fyrir lífstíð?
Það er ekki að ástæðulausu að talað er um tvær
dúfur í hinu erlenda jólalagi Þrettán dagar jóla í
þýðingu Hinriks Bjarnasonar.
Vissir þú …*Ekki setja öll páskaeggin þín íeina körfu.
Páskakanínan
Krakkajóga nýtur æ meiri vin-sælda hér á landi. Jógasetr-ið er á meðal þeirra sem
bjóða upp á jóga fyrir krakka á
aldrinum 4-14 ára og þar skiptast
jógatímar í þrjá aldursflokka, 4-7
ára, 8-11 ára og 12-14 ára.
Álfrún Helga Örnólfsdóttir kennir
krakkajóga í Jógasetrinu og segir
jóga til að mynda veita börnum
góða tækni til að róa sig sjálf niður
og ná stjórn á önduninni. „Krakkar
þurfa á slökun að halda eins og við
fullorðna fólkið. Þau eru reyndar
betri að lifa í núinu á meðan við
fullorðna fólkið erum stundum upp-
tekin við að hugsa um framtíðina og
festumst gjarnan í fortíðinni. Hug-
leiðsla er góð fyrir alla og ef hún er
þjálfuð sérstaklega á meðan við er-
um börn þá verður hún þeim eðl-
islæg. Það er mjög gott að hafa
tæki til að minnka skvaldrið í höfð-
inu á sér af og til,“ segir Álfrún.
Sigraðist á hræðslunni
„Við erum að kenna krökkunum
kyrrð, að geta sest niður, lokað aug-
unum og fundið sjálf leið til þess að
slaka á. Þau eru svo móttækileg að
þau nota það sem þau læra í tím-
unum í sínu daglega lífi. Ein stelpa
sem er búin að vera hjá mér í jóga
síðan hún var fimm ára var logandi
hrædd við sprautu sem hún þurfti að
fá en náði tökum á hræðslunni með
því að fara með möntru sem hún
hafði lært í jóganu. Dætur mínar
eiga það líka til að setjast í hug-
leiðslustöðu í bílnum eða syngja
möntrur þegar þær eru heima að
dunda sér. Jóga snýst líka mikið um
að búa til jafnvægi svo við erum ekki
bara að hægja á önduninni og skapa
ró heldur eru líka gerðar æfingar til
að rífa upp orkuna, bæði með öndun
og líkamsæfingum. Jógastöðurnar
sem við gerum eru mjög styrkjandi
og skemmtilegar í þokkabót.“
Krakkarnir tilbúnir að prófa
Mismunandi er eftir hópum hvernig
kennslan fer fram. Álfrún kennir 8-
11 ára krökkum og þar er lögð
áhersla á ýmsar jógastöður og æf-
ingar sem styrkja jafnvægi, einbeit-
ingu og samhæfingu. Þá eru einfald-
ar öndunaræfingar kenndar auk
þess sem möntrur eru sungnar með
hreyfingum, farið í leiki, kynnst
jógafrosknum Manduk ásamt því að
hugleiða stutta stund í senn. Allir
tíma enda síðan á slökun eins og er
venjan í jóga. Hún segir að krakk-
arnir hafi mjög gaman af jóga og
eigi auðvelt með að framkvæma
jógastöður, enda flestir krakkar lið-
ugir og tilbúnir að prófa. „Ég kenni
jóga mikið í gegnum sögur og leiki.
Sögurnar hjálpa þeim að halda at-
hygli og þannig eru æfingarnar
settar inn í aðstæður í lífinu þar
sem jógað getur hjálpað okkur.
Krökkunum finnst þetta rosalega
gaman og mér líka.“
HUGLEIÐSLA ER GÓÐ FYRIR ALLA
Krakkar læra slökun í jóga
MEÐ JÓGA LÆRUM VIÐ AÐ
STJÓRNA ÖNDUN, SLAKA Á
OG TEYGJA VEL Á LÍK-
AMANUM. IÐKUNIN HÖFÐ-
AR EKKI EINUNGIS TIL FULL-
ORÐINNA HELDUR ER HÚN
TILVALIN FYRIR KRAKKA Á
ÖLLUM ALDRI. JÓGAKENN-
ARI SEGIR ÞAU FLJÓT AÐ
LÆRA AÐ NÝTA SÉR JÓGA Í
DAGLEGU LÍFI.
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Einbeittir jógaiðkendurnir ĺétu ljósmyndarann sko ekki slá sig út af laginu.
Með jógaiðkun ná krakkarnir bæði að hafa stjórn á öndun og fá aukna orku.
Morgunblaðið/Golli