Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Blaðsíða 4
maður Sjálfstæðisflokksins, sem
kjörinn var 1932. Jón hafði áður
verið forsætisráðherra, einn fimm
manna til að gegna báðum emb-
ættum. Hann er á hinn bóginn eini
maðurinn sem var forsætisráð-
herra á undan. Hinir fjórir, Bjarni
Benediktsson, Gunnar Thoroddsen,
Geir Hallgrímsson og Davíð Odds-
son, voru allir borgarstjórar áður
en þeir settust í stól forsætisráð-
herra.
Tögl og hagldir
Allt eru þetta sjálfstæðismenn
enda hafði flokkurinn áratugum
saman bæði tögl og hagldir í borg-
arstjórn og átti borgarstjórann í
46 ár samfellt, frá 1932 til 1978.
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn missti
meirihluta sinn í borgarstjórn í
kosningunum 1978 var myndaður
nýr meirihluti Alþýðubandalags,
Alþýðuflokks og Framsókn-
arflokks. Hann réð utanaðkomandi
mann í starf borgarstjóra, Egil
Skúla Ingibergsson verkfræðing.
Sjálfstæðisflokkurinn, undir for-
ystu Davíðs Oddssonar, endur-
heimti borgina 1982 og hélt henni
næstu tólf árin. Davíð var borgar-
E
f marka má skoðana-
kannanir að undan-
förnu nýtur Dagur B.
Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar í
Reykjavík, mests trausts borgar-
búa til að gegna embætti borgar-
stjóra á komandi kjörtímabili. Setj-
ist Dagur í stól borgarstjóra eftir
sveitarstjórnarkosningarnar 31.
maí næstkomandi verður hann
fyrsti maðurinn í sögunni til að
gegna embættinu í tvígang. Dagur
var borgarstjóri á árunum 2007-08.
Í bæjarstjórnarlögum fyrir
Reykjavík sem sett voru árið 1907
var í fyrsta sinn kveðið á um emb-
ætti borgarstjóra. Embættið var
auglýst árið 1908 og sóttu tveir um
stöðuna, þeir Páll Einarsson og
Knud Zimsen. Páll var ráðinn til
sex ára af bæjarstjórn Reykjavík-
ur en að þeim tíma loknum ákvað
hann að hætta störfum og Knud
Zimsen tók við embættinu. Hann
hélt því til ársins 1932. Knud var í
tvígang á þriðja áratugnum kjör-
inn borgarstjóri í almennri at-
kvæðagreiðslu meðal bæjarbúa.
Fyrsti pólitíski borgarstjórinn í
Reykjavík var Jón Þorláksson, for-
stjóri í níu ár en þegar hann varð
forsætisráðherra tók Markús Örn
Antonsson við af honum. Fyrir
kosningarnar 1994 leysti Árni Sig-
fússon Markús Örn af hólmi.
Vinstrimenn náðu borginni aftur
á sitt vald í þeim kosningum og
rann þá upp lengsta samfellda
valdaskeið þeirra í borginni, tólf
ár. Fyrir kosningarnar gerðu
flokkarnir með sér kosninga-
bandalag og buðu fram undir
merkjum Reykjavíkurlistans.
Kvennalistakonan Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir varð borgarstjóri.
Þegar Ingibjörg Sólrún hætti
sem borgarstjóri snemma árs 2003
var sóttur maður út fyrir borgar-
stjórnarflokk Reykjavíkurlistans,
Þórólfur Árnason. Steinunn Valdís
Óskarsdóttir var svo þriðji og síð-
asti borgarstjóri listans.
Reykjavíkurlistinn bauð ekki
fram í kosningunum 2006 og þá
endurheimtu sjálfstæðismenn borg-
arstjórastólinn. Kjörtímabilið sem
fór í hönd var um margt óvenju-
legt enda var í tvígang skipt um
meirihluta í borginni. Borgarstjór-
arnir á kjörtímabilinu urðu alls
fjórir, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
Sjálfstæðisflokki, Dagur B. Egg-
ertsson, Samfylkingu, Ólafur F.
Magnússon, F-listanum, og Hanna
Birna Kristjánsdóttir, Sjálfstæðis-
flokki. Áratuga stöðugleiki í borg-
arstjórnarmálum, fyrst í tíð Sjálf-
stæðisflokks og síðan Reykjavíkur-
listans, breyttist í mikla óvissu.
Ævintýri Besta flokksins
Á téðu kjörtímabili gerðist það líka
í fyrsta skipti að stjórnmálamaður,
sem ekki er sjálfstæðismaður, varð
borgarstjóri í krafti eigin flokks,
Dagur B. Eggertsson. Ingibjörg
Sólrún var borgarstjóri af hálfu
Reykjavíkurlistans en ekki
Kvennalistans.
Hvorki Alþýðuflokkur né Al-
þýðubandalag eignuðust borgar-
stjóra meðan þeir voru og hétu og
Framsóknarflokkurinn hefur aldrei
hreppt embættið. Ekki heldur
Vinstri hreyfingin – grænt fram-
boð.
Það sætti svo miklum tíðindum
þegar nýtt stjórnmálaafl, Besti
flokkurinn, kom sínum manni, Jóni
Gnarr, í stól borgarstjóra fyrir
fjórum árum. Hann dregur sig nú
í hlé – sem og flokkurinn.
Ó borg, mín borg
ALLT ÚTLIT ER FYRIR SPENNANDI KOSNINGAR TIL BORGARSTJÓRNAR 31. MAÍ NÆSTKOMANDI. VERÐUR DAGUR B. EGGERTSSON, ODDVITI SAMFYLK-
INGARINNAR, FYRSTI MAÐURINN Í SÖGUNNI TIL AÐ VERÐA BORGARSTJÓRI Í ANNAÐ SINN EÐA ENDURHEIMTIR SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN EMBÆTTIÐ
SEM HANN HEFUR HAFT Á SÍNU VALDI Í 61 ÁR FRÁ ÞVÍ AÐ FLOKKSPÓLITÍSKUR BORGARSTJÓRI VAR FYRST KJÖRINN FYRIR 82 ÁRUM?
Þórólfur Árnason
2003-04.
Ólafur F. Magnússon
2008.
Davíð Oddsson
1982-91.
Árni Sigfússon
1994.
Jón Gnarr
2010-14.
Hanna Birna Krist-
jánsdóttir 2008-10.
Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson 2006-07.
Dagur B. Eggertsson
2007-08.
Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir 2004-06.
Markús Örn Ant-
onsson 1991-94.
Páll Einarsson
1908-14.
Knud Zimsen
1914-32.
Jón Þorláksson
1932-35.
Pétur Halldórsson
1935-40.
Bjarni Benediktsson
1940-47.
Gunnar Thorodd-
sen 1947-59.
Auður Auðuns
1959-60.
Geir Hallgrímsson
1959-72.
Birgir Ísleifur Gunn-
arsson 1972-78.
Egill Skúli Ingibergs-
son 1978-82.
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir 1994-2003.
Morgunblaðið/Ómar
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.4. 2014
Knud Zimsen hefur lengst
allra verið borgarstjóri í
Reykjavík, átján ár. Geir
Hallgrímsson gegndi emb-
ættinu í þrettán ár og Gunn-
ar Thoroddsen í tólf. Davíð
Oddsson var borgarstjóri í
níu ár, eins Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir.
Skemmst hefur Árni Sig-
fússon setið á stóli borgar-
stjóra, þrjá mánuði.
Auður Auðuns varð fyrst
kvenna borgarstjóri í Reykja-
vík, 1959. Hún gegndi emb-
ættinu ásamt Geir Hall-
grímssyni. Alls eru borgar-
stjórar Reykjavíkur 21, þar
af fjórar konur.
Yngstur til að taka við
embættinu var Bjarni Bene-
diktsson, 32 ára. Davíð
Oddsson var 34 ára. Elstur
var Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, 60 ára. Ólafur F. Magn-
ússon og Jón Þorláksson
voru 55 ára.
KNUD ZIMSEN
SAT LENGST
*Hann var snemma ódæll og til vandræða.Úr ferilskrá núverandi borgarstjóra, Jóns Gnarrs, á heimasíðu Reykjavíkurborgar.ÞjóðmálORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is