Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Blaðsíða 41
20.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 U ppáhaldskristilega hátíðin mín er að ganga í garð – sjálfir páskarnir. Ólíkt jólunum þá koma páskarnir alltaf notalega á óvart enda gerir fólk almennt engar sérstakar kröfur til páskanna. Það er ekki með væntingar um að fá eitthvað sjúklega dýrt og fínt frá ástinni og heimilið þarf ekki að vera fullkomið. Flestir sætta sig við eina grein í vasa með nokkrum vesælum eggjum á og í versta falli nokkrar páskaliljur á stangli. Ég veit ekki um neinn sem dressar sig sérstaklega upp fyrir páskana, lætur klippa fjölskylduna, kaupir páskagjaf- ir eða er búinn að ákveða það með margra vikna fyrirvara hvað matreitt verð- ur. Nema náttúrlega hinir ofur- skipulögðu sem borða alltaf það sama á páskadag og annan í páskum. Páskarnir eru tími til að njóta, vera afslappaður og svo væri ekki verra ef maður myndi finna miðj- una … (svona í eitt skipti fyrir öll). Eftir sérlega mikla vinnu- törn sé ég það í hillingum að slappa af, gera ekkert heldur vera svolít- ið eins og 12 ára. Í eigin heimi og áhyggjulaus. Á einhverjum tíma- punkti í þarsíðustu viku var ég orðin svo stressuð út af vinnu (og kaótísku einkalífi) að ég var komin með öran hjartslátt. Þeg- ar ég ræddi það við móðursystur mína sagði hún að ég yrði að finna leið til að slaka á og sagði svo: „Þú veist að fólk fær enga aðvörun þegar það fer yfir um. Það getur bara snappað allt í einu.“ Það var því allt sett á fullt við að reyna að slappa af, tæma hugann, leggja gerviþarfir til hliðar og einbeita sér að andar- drættinum – anda inn – anda út. Eftir þrotlausa vinnu í að reyna að slaka á verð ég að játa að núllstillingin gengur ágæt- lega en ég hef örlitlar áhyggjur af einu. Það sem raskar áætluninni um að finna miðjuna er spenn- ingur einkasonanna tveggja fyrir páskunum. Monsurnar tvær (synir mínir) eru sérstaklega búnar að óska eftir því að fá risavax- in páskaegg og þeir vilja leita að þeim. Það eina sem ég hef gert fyrir þessa páska, fyrir utan náttúrlega að kaupa í matinn, er að fjárfesta í gulum skrifstofumiðum sem dreift verður um húsið í hinum ógurlega ratleik sem mun teygja anga sína yfir á lóð nágrannans og ég veit ekki hvað. Þessi ratleikur er svolítið að eyðileggja fyrir mér leitina að miðj- unni því ef ég þekki mína menn þá verður sá yngri vaknaður fyrir klukkan sjö á páskadag í geðveiku stuði. Hann mun því drösla lang- þreyttri móður sinni á fætur sem mun að öllum líkindum vera hálf- vönkuð í leitinni ógurlegu að súkkulaðieggjunum. Ef monsurnar finna eggin, verða þau svo borðuð uppi í hvítu rúmföt- unum mínum sem munu láta verulega á sjá eftir þessa aðför … sem veldur smá spennu. Kraftlyftingaþjálfarinn minn spurði mig í vikunni hvort ég ætlaði nokkuð að fá mér páskaegg. Ég horfði á hann með undrunarsvip og sagðist að sjálfsögðu ætla að fá mér. Í lífinu skiptir nefnilega mjög miklu máli að hafa góða stemningu í forgrunni og það að borða páska- egg uppi í rúmi á páskadag er liður í því. Þótt páskaegg séu kannski ekki það alhollasta sem hægt er að borða hef ég enga trú á að smá súkkulaði fari með mig í gröfina og ég muni hljóta varanlega skaða af. Þar sem páskanna verður notið í Reykjavík City finnst mér mikil- vægt að það komi fram að klæðnaður hátíðarinnar hefur nú þegar verið valinn. Um er að ræða neonlitaðar „hot-pants“, hlýrabol og hlébarða- sokka. Í þessum klæðnaði er mjög gott að liggja undir sæng og horfa á sjónvarpið og svo þrengir dressið ekki að þegar búið er að offylla mag- ann af harðri fitu … Stundum er bara nauðsynlegt að klæða sig eftir veðri, vindum og aðstæðum innandyra. martamaria@mbl.is Finndu miðjuna í neonlituðum „hot-pants“ Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911 www.facebook.com/spennandi www.spennandi.com Opið: Mán. - fim: 12 - 18 - fös. 12-16 Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaísland Eitt best geymda leyndarmálið á markaðnum Weleda Skin Food er í miklu uppáhaldi hjá þekktum tísku- fyrirsætum og förðunarfræðingum um allan heim. Skin Food er 100% lífrænt árangursríkt alhliða krem sem nærir þurra og viðkvæma húð og kemur jafnvægi á húðina. Skin Food kom fyrst á markað fyrir meira en 80 árum síðan og hefur uppskriftin verið óbreytt síðan. Kremið er unnið úr lífrænt ræktuðum Stjúpum, Baldursbrá, Morgunfrú og Rósmarín, gott krem fyrir alla fjölskylduna – Í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is Þú kaupir Weleda vörur í heilsuverslunum og apótekum um allt land
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.