Morgunblaðið - 23.05.2014, Side 21
FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2014
Fyrirtækin í landinu standa vel en
þau eru enn varfærin í fjárfestingum
vegna ótryggs efnahagsástands,
segir Höskuldur H. Ólafsson, banka-
stjóri Arion banka.
Úr uppgjöri Arion banka fyrir
fyrsta fjórðung
ársins má lesa að
lán sem hafa farið
í gegnum endur-
skipulagningu og
teljast nú til
vandræðalána
mælast einungis
0,3% af útlánum
bankans.
„Okkur finnst
fyrirtækin standa
vel,“ segir Hösk-
uldur. „Við teljum að á fjárfesting-
arhliðinni séu menn fyrst og fremst
varfærnir vegna óvissu í efnahagslíf-
inu. Það er ekki nema ríflega hálft ár
síðan sú umræða var hávær að lík-
lega yrði að fara í aðra umferð end-
urskipulagningar. Við teljum að nú
sjáum við skýr merki þess að þessi
umræða var ekki á rökum reist.“
Arion banki skilaði 2,9 milljarða
króna hagnaði á fyrsta fjórðungi árs-
ins og arðsemi eigin fjár var 7,8% á
tímabilinu. Vaxtatekjur lækkuðu um
1,1 milljarð króna, einkum vegna
minni verðbólgu. Vaxtamunur var
2,6% en hann var 3,1% á sama tíma-
bili í fyrra. Höskuldur segist þokka-
lega sáttur við uppgjörið, þótt vaxta-
munur hafi minnkað. Horfur fyrir
bankann séu almennt góðar fyrir ár-
ið.
Staða fyrirtækja
almennt góð
Önnur umferð endurskipulagningar
óþörf, segir bankastjóri Arion banka
Arion banki
- 1. ársfjórðungur
tölur í milljörðum króna
1F 1F
2014 2013 Breyt.
Vaxtatekjur 5,5 6,3 -13%
Vaxtamunur 2,6% 3,1%
Þóknanatekjur 3,1 2,4 29%
Rekstrark. 6,2 6,6 -6%
Kostnhlutf. 69,0% 72,6%
Hagn. e. skatt 2,9 1,4 103%
Arðs. eigin fj. 7,8% 4,3%Höskuldur
Ólafsson
Sigurður Nordal
sn@mbl.is
Hagnaður Íslandsbanka á fyrsta
fjórðungi ársins nam 8,3 milljörðum
króna, en hann var 4,6 milljarðar á
sama tímabili í fyrra. Munurinn á
milli ára má að stærstum hluta
rekja til hagnaðar af sölu eignar-
hluta í aflagðri starfsemi, sem nam
3,7 milljörðum króna eftir skatt,
samanborið við 69 milljóna króna
tap fyrir ári. Hér er um sölu á dótt-
urfélögum í óskyldum rekstri að
ræða, en í fjórðungnum helming-
uðust slíkar eignir í bókum bank-
ans.
Arðsemi batnar milli ára
Arðsemi eigin fjár var 19,3% eftir
skatta á fyrsta fjórðungi, en sé ein-
ungis litið til reglulegrar starfsemi
var arðsemin 10,2%. Í fyrsta fjórð-
ungi í fyrra var arðsemi eigin fjár
12,2%, en 6,2% af
reglulegri starf-
semi. Eigið fé
bankans hækkaði
um 15% á milli
ára og nam 175
milljörðum króna
í lok mars.
Hreinar vaxta-
tekjur lækkuðu
um 11,1% á milli
ára, sem er í takt
við áætlanir bankans eftir því sem
afföll á yfirteknu lánasafni eru
tekjufærð. Vaxtamunur var 3,0% á
fyrsta ársfjórðungi, en hann var
3,6% á sama tímabili í fyrra. Vaxta-
munur var hins vegar 3,1% í fjórð-
ungnum á undan og telur bankinn
hann hafa nú náð jafnvægi eftir að
hafa verið hlutfallslega hár, einkum
vegna tekjufærslu affalla og mik-
illar verðbólgu.
Hreinar þóknunartekjur jukust
um 16,4% á milli ára og námu 2,9
milljörðum króna. Þóknunartekjur
myndast í markaðsviðskiptum, við-
skiptabankaþjónustu, eignastýringu
og hjá dótturfélögum.
Kostnaðarhlutfall á markmiði
Kostnaðarhlutfall bankans í lok
ársfjórðungsins nam 55,1% og
lækkaði úr 67,1% á milli ára. Hlut-
fallið undanskilur bankaskatt og
einskiptiskostnað og er í samræmi
við langtímamarkmið bankans um
55% kostnaðarhlutfall.
Laun og launatengd gjöld lækk-
uðu um 0,8% á milli ára, sem að
nokkru leyti má rekja til lækkunar
fjársýsluskatts á laun. Meðalfjöldi
stöðugilda samstæðunnar var 1.125
á fyrsta ársfjórðungi sem er 11%
fækkun frá sama tímabili 2013, en
þar af fækkaði stöðugildum í móð-
urfélaginu um 7,5%.
Skattar og gjöld til ríkisstofnana
námu alls 2,5 milljörðum króna á
fjórðungnum og er þar innifalinn
sérstakur bankaskattur að fjárhæð
592 milljónir króna.
Aukin eftirspurn útlána
„Við erum ánægð með afkomu
fyrsta ársfjórðungs þar sem við
sjáum aukna arðsemi, hækkun
þóknanatekna og áframhaldandi
lækkun kostnaðar milli ára,“ segir
Birna Einarsdóttir bankastjóri í
tengslum við uppgjörið. „Svo virðist
sem markaðurinn hafi tekið við sér
sem endurspeglast í aukinni eftir-
spurn eftir útlánum sem hafa vaxið
um 2% frá áramótum. Grunnrekst-
ur bankans styrkist og 16% aukning
var á þóknanatekjum á milli ára.
Hagræðingarverkefni hafa gengið
vel og við höfum haldið áfram að
hagræða í útibúaneti bankans,“ seg-
ir Birna.
Íslandsbanki hagn-
ast um 8,3 milljarða
Vöxtur hagnaðar að stórum hluta vegna sölu á eignum
Íslandsbanki - 1. ársfjórðungur
tölur í milljörðum króna
1F 2014 1F 2013 Breyting
Vaxtatekjur 6,6 7,5 -11%
Vaxtamunur 3,0% 3,6%
Þóknanatekjur 2,9 2,5 16%
Rekstrarkostnaður 6,8 6,5 3%
Kostnaðarhlutfall 55,1% 67,1%
Aflögð starfsemi 3,7 -0,1
Hagnaður eftir skatt 8,3 4,6 71%
Arðsemi eigin fjár 19,3% 12,2%
Afskriftarferli lokið
» Frá stofnun Íslandsbanka
hafa 4.160 fyrirtæki fengið
skuldir afskrifaðar, eftirgefnar
eða leiðréttar.
» Einstaklingar sem hafa
fengið slíka fyrirgreiðslu eru
35.900.
» Heildarfjárhæð þessara
skulda nemur 555 milljörðum
króna.
» Öllum stórum málum er lúta
að fjárhagslegri endur-
skipulagningu hefur nú verið
lokið, að sögn Íslandsbanka.
Birna
Einarsdóttir
Jarðvegsþjöppur, valtarar, malbikunarvélar,
gatnasópar, umferðaröryggisbúnaður
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
Stofnað 1957
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver
Útskriftir
Brúðkaup
Afmæli
Erfidrykkjur
Fundir
Vinir okkar á Facebook geta
unnið allskyns góðgæti!
Nánari upplýsingar
í síma 533 3000