Morgunblaðið - 23.05.2014, Síða 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2014
Traust og góð þjónusta Í 17 ÁR
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200
OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18, LAUGARDAGA 11-14
Umgjarðir
í miklu úrvali
Er ekki
kominn t
ími á
sjónmæl
ingu
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Neyðaraðstoð sem Portúgal fékk
frá Evrópusambandinu, Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum og Seðlabanka
Evrópu lauk formlega um síðustu
helgi. Þrátt fyrir að hagstærðir hafi
farið batnandi hafa aðhaldsaðgerð-
irnar sem gripið var til í því skyni
að leysa úr gríðarlegum skulda-
vanda landsins verið mikil blóðtaka
fyrir landsmenn.
José Sócrates, þáverandi for-
sætisráðherra Portúgal, sótti um
neyðaraðstoð frá ESB í apríl 2011.
Landið var þá á endastöð fjárhags-
lega og gat ekki staðið við skamm-
tímaskuldbindingar sínar. Síðan þá
hafa Portúgalar fengið um 78 millj-
arða evra að láni frá fyrrnefndu
þríeyki stofnana sem þeir þurfa að
greiða til baka fyrir árið 2042. Lán-
inu hefur fylgt strangt efnahags-
legt aðhald.
Sú fórn hefur borið árangur. Í
lok árs 2010 var fjárlagahalli portú-
galska ríkisins 9,8% og ávöxt-
unarkrafa á skuldabréfum ríkisins
til tíu ára nam 10,6%. Nú er hallinn
kominn inn fyrir þau mörk sem
þríeykið setti Portúgölum, mælist
4,9% og vextir á skuldabréfunum
eru í kringum 3,6%. Nú er meira
að segja spáð 1,4% hagvexti á
þessu ári eftir þriggja ára sam-
drátt.
Lækkuðu í launum
Sú kjaraskerðing sem millistétt-
in, sérstaklega opinberir starfs-
menn og lífeyrisþegar, hefur orðið
fyrir hefur hins vegar skapað and-
rúmsloft vonleysis, þrátt fyrir um-
skiptin.
Dæmi um þetta er Florbela
Fernandes, 42 ára gamall starfs-
maður borgarstjórnar í Évora. „Ég
er búin að vinna og leggja mitt af
mörkum í tuttugu ár. Núna er ég
með sömu laun og ég var með þeg-
ar ég var búin að vinna í tvö ár hjá
borgarstjórninni,“ segir Fernandes
við spænska dagblaðið El País.
Árið 2011 var hún með 1.400 evr-
ur í mánaðarlaun en eftir þrjú ár af
aðhaldsaðgerðum hafa launin lækk-
að í 1.050 evrur, jafnvirði um
162.000 króna. Eiginmaður hennar
er lögreglumaður og hefur svipaða
sögu að segja. Þau hafa þurft selja
annan bílinn sinn, gleyma sum-
arleyfum og helgarferðum og sonur
þeirra ákvað að endurtaka síðasta
menntaskólaárið til að ná að spara
fyrir háskólanámi svo eitthvað sé
nefnt.
Viðvarandi kjaraskerðing
Fjöldi landsmanna hefur freistað
gæfunnar annars staðar. Árið 2011
fluttu 23.000 manns úr landi. Árið
eftir var sá fjöldi kominn upp í tæp
52.000. Síðustu ár hefur fjöldi sveit-
arfélaga ákveðið að hafa mötuneyti
skóla opin fyrir fjölskyldur sem
náðu ekki endum saman yfir jólin.
Eftir fyrsta ár aðhaldsaðgerð-
anna stóð ríkisstjórn Pedro Passos
Coelho tæpt vegna mótmæla gegn
henni. Allur vindur er hins vegar
úr þeim mótmælum og virðist upp-
gjöf einkenna þá sem hafa orðið
verst úti. Þó að neyðaraðgerðunum
sé formlega lokið þá trúa margir
því að kjaraskerðing þeirra verði
viðvarandi.
Uppgjöf í Portúgal
þrátt fyrir efnahagsbata
Umskipti í hagkerfinu eftir þriggja ára aðhald
AFP
Gjaldþrot Vegfarandi gengur fram hjá lokaðri verslun í miðborg Lissabon.
Neyðaraðstoð ESB og fjármálastofnana lauk formlega á laugardag.
Aðhaldið
» Skv. skilmálum neyðar-
aðstoðarinnar þurfti ríkisstjórn
landsins m.a. að hækka skatta
og skerða laun opinberra
starfsmanna.
» Útsvar og virðisaukaskattur
var hækkaður og gjöld fyrir
grunnþjónustu á borð við sam-
göngur og rafmagn sömuleiðis.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Yfirmaður taílenska hersins, Prayuth
Chan-Ocha, tilkynnti í gær að herinn
hefði tekið yfir stjórn landsins til að
koma aftur á röð og reglu og hrinda
pólitískum umbótum í framkvæmd.
Ráðherrum ríkisstjórnarinnar, sem
nú hefur verið sett af, var skipað að
gefa sig fram við herinn.
„Allir Taílendingar verða að halda
ró sinni og opinberir starfsmenn
verða að halda áfram störfum eins og
venjulega,“ sagði hann í sjónvarps-
ávarpi.
Hermenn lokuðu af byggingu hers-
ins í höfuðborginni Bangkok þar sem
fulltrúar stríðandi pólitískra fylkinga
hafa fundað síðustu daga til að kom-
ast að samkomulagi að undirlagi hers-
ins og færðu burt leiðtogana. Óvíst
var hvort þeir hefðu verið formlega
handteknir.
Herinn hugðist einnig senda her-
menn og farartæki til þess að vísa
mótmælendum frá þeim stöðum þar
sem þeir hafa komið saman. Á þriðju-
dag lýsti yfirmaður hersins yfir her-
lögum í landinu og kom á viðræðum
milli stjórnarsinna og andstæðinga.
Þær virtust ekki hafa borið árangur.
Mótmælendur hafa staðið fyrir
fjölmennum götumótmælum og girt
af viss svæði í höfuðborginni í marga
mánuði en ófriðurinn hófst þar seint á
síðasta ári þegar þáverandi forsætis-
ráðherra, Yingluck Shinawatra, leysti
upp neðri deild þingsins. Dómstóll
svipti hana embætti fyrr í þessum
mánuði vegna valdamisnotkunar.
Tugir manna hafa fallið í átökum
stuðningsmanna og andstæðinga
stjórnvalda síðustu mánuði auk þess
sem óróinn hefur sett hagkerfið á
hliðina.
Herinn tekur
völdin á ný
Stjórnmálaleiðtogar teknir höndum
AFP
Herinn Chan-Ocha yfirgefur fund stjórnarandstæðinga og -sinna í Bangkok
í gær. Hann lýsti í kjölfarið því yfir að herinn hefði hrifsað til sín völdin.
Valdarán
» Stjórnarskráin hefur nú
tímabundið verið felld úr gildi,
fjölmiðlum bannað að birta
annað en útsendingu frá hern-
um, fundarfrelsi fólks skert og
útgöngubann sett í gildi.
» Þetta er í nítjánda skipti
sem herinn rænir völdum í Taí-
landi eða reynir það frá því að
konungsstjórn var afnumin í
landinu árið 1932.
Að minnsta kosti
fjórtán úkra-
ínskir hermenn
féllu og þrjátíu
særðust í árás
stuðningsmanna
Rússa á eftirlits-
stöð við þorpið
Blahodatne í
Austur-Úkraínu í
gær.
Árásin er sú
mannskæðasta hingað til í átök-
unum á svæðinu. Varnarmálaráðu-
neyti Úkraínu staðfesti í gær að
árásin hefði átt sér stað en vildi ekki
gefa upp hversu margir hefðu fallið.
Engar fréttir höfðu í gær borist af
mannfalli úr röðum aðskilnaðarsinn-
anna. Hópur uppreisnarmanna í
bænum Horlivka sem kenna sig við
lýðveldið Donetsk lýsti yfir ábyrgð á
árásinni.
Aðskilnaðarsinnar hafa heitið því
að setja úr skorðum forsetakosn-
ingar sem eiga að fara fram í land-
inu á sunnudag. Stjórnvöld í Kænu-
garði vonast til að þær geti dregið úr
spennu í Austur-Úkraínu og komið á
stöðugleika. Þau viðurkenna þó að
sums staðar í þeim landshluta verði
ekki hægt að halda kosningarnar
vegna ógnana sem bæði fulltrúar
kjörstjórnar og kjósendur hafa orðið
fyrir af hálfu aðskilnaðarsinna.
Drápu 14
stjórnar-
hermanna
Úkraínskur
brynvagn.