Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Side 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Side 15
hann myndi hverfa og sagði: I do it free because you are my fri- end. Ég hafnaði boðinu, hefði ég sagt já hefði Libman horfið því þannig var þessi heimur. Þetta var á laugardegi og á mánudegi hitti ég Libman og ég hlýt að hafa horft á hann með ein- kennilegu augnaráði.“ Hnignun manneskjunnar Hvernig var líf fólks í Úkraínu á þessum tíma? „Fólk bjó þröngt en samkvæmt sovéska skipulaginu hafði hver manneskja sjö fermetra fyrir sig prívat og persónulega. Þarna komst fólkið af með því að vera með kálgarða og rækta grænmeti og ávexti. Þegar fólk tók upp- skeruna inn á haustin þá sauð það og súrsaði og geymdi síðan í endalausum krukkum sem síðan var raðað upp um alla veggi í litlu íbúðunum. Verslanir voru nokkurn veginn tómar, en þó var selt brauð og heima átti fólk sína súrsuðu tómata. Aðalfæðan var kartöflur og tómatar því kjöt var takmarkað og afar dýrt. Þannig lifði fólkið. Það er engin furða að Gorba- sjov hafi gefist upp á að verja þessa stefnu enda drepur hún allt. Rétt eins og er að gerast í Norður-Kóreu núna. Ef einka- framtakið og viljinn til að skapa fá ekki að njóta sín þá koðnar manneskjan niður. Það var ótrú- lega sorglegt að verða vitni að þessari hnignun manneskjunnar. Í Úkraínu var mögulegt að sjá hvað hafði verið gert fyrir bylt- ingu því í listasafninu voru stór- kostleg listaverk frá þeim tíma og í miðbæ Odessa niður við höfn eru margar fallegar bygg- ingar þar sem handverk og sköp- un nutu sín en undir komm- únismanum var allt óvandað og hörmulegt. Ég hélt þetta út í tvö og hálft ár í von um að hlutirnir myndi breytast og ástandið skána. Svo varð þetta að taka enda. Menn sögðu að ég hefði sýnt þraut- seigju með því að vera þarna svona lengi. Henson hélt sínu striki allan tímann vegna mikils dugnaðar konu minnar, Estherar Magn- úsdóttur, og börnin Begga og Einar Bjarni hafa lagt fyrirtæk- inu til gífurlega vinnu og alúð. Hjá Henson er flest laust við að vera staðlað og við fáum enda- lausar sérpantanir af öllu mögu- legu tagi. Tæknilega er fyrirtækið mjög svo fullkomið og við fram- leiðum föt af öllu tagi. Við fram- leiðum búninga nánast allra körfuboltaliða á Íslandi og fjöl- breytnin er gríðarleg. Fatnaður fyrir fimleika, frjálsar íþróttir, blak, handbolta, motorcross, hjól- reiðar, glímu, sund – þó ekki það sem fer ofan í laugina – strokka, hárbönd, veifur, bara nefndu það og nú síðast skíðafatnaður sem meðal annars var notaður á Ól- ympíuleiknum í Sotchi. Auðvitað framleiðum við knattspyrnubún- inga fyrir fjölmörg lið en þó ekk- ert af þeim sem leika í efstu deild og nú er stefnt að því að breyta því. Henson á sannarlega brýnt erindi til þess að brjóta upp einsleitt útlit margra knatt- spyrnu- og handboltafélaga, ekki sízt þar sem við bjóðum mun meiri gæði í keppnispeysum, stór yfirlýsing en sönn.“ Talandi um knattspyrnu, þú varst mikill íþróttamaður. „Já, ég lék knattspyrnu með Val og við urðum Íslands- og bikarmeistarar á því tímabili. Þótt ekkert væri sjónvarpið var enski boltinn mjög vinsæll á þessum tíma en flest var miðað við Puskas sem var Ungverji, feikilega flinkur leikmaður og mjög dáður. Seinna varð Pelé aðalátrúnaðargoðið og það hefur gefið mér mikið að hafa í tímans rás hitt þessa tvo snillinga, Maradona, Beckham og einnig fjöldann allan af hetjum knatt- spyrnunnar og fengið tækifæri til þess að kynnast því hvernig hlut- irnir virka í heimi knattspyrn- unnar.“ Ekki óvænt símtal Ég veit að þú varst vinur Her- manns Gunnarssonar, var þér brugðið þegar hann lést óvænt? „Óvænt er ekki orðið sem ég myndi nota. Það fyrsta sem ég sagði þegar sameiginlegur vinur okkar Hemma hringdi í mig frá Taílandi til að segja mér að hann væri dáinn var: Þetta símtal er ég búinn að óttast lengi. Það var bara þannig að þegar Hermann fór í Dýrafjörðinn að dvelja hjá fóstru sinni henni Unni gladdist ég en þegar hann fór til útlanda varð ég sorgmæddur. Hann losn- aði aldrei við alkóhólismann en átti sína kafla þar sem hann spjaraði sig ágætlega og gat þá verið edrú erlendis en oftast var það þó ekki. Hemmi var tvískipt- ur maður en hjartahlýjan var geislandi. Umfram allt var hann bráðskemmtilegur.“ Hvaða áhugamál áttu utan vinnunnar? „Ég hef ákaflega gaman af söng og myndlist. Ég æfi með Valskórnum á mánudögum, en sá kór er orðinn ansi góður ekki síst vegna frábærs starfs Báru Grímsdóttur kórstjóra sem einnig er frábært tónskáld, og á þriðju- dögum er ég í myndlistarhópi sem hittist í góðri aðstöðu í Hafnarfjarðarhrauni og málar. Þannig að ég nýti tímann utan vinnu fyrir þessi tómstundaáhuga- mál mín. En ég hef ákaflega gaman af að vinna í Henson og vinn langan vinnudag. Ég er kominn mjög snemma í vinnu og er eins lengi og þarf. Þetta er vinna sem þarf að sinna vel. Ég missi aldrei áhugann á því sem ég er að gera. Ég lít á mig sem mjög hepp- inn mann og ég á frábæra fjöl- skyldu sem er mjög samhent. Svo er bara spurning um það hversu lengi maður heldur heils- unni, en meðan hún er í góðu lagi þá kemst ég yfir að gera ansi margt.“ „Ég er kominn mjög snemma í vinnu og er eins lengi og þarf. Þetta er vinna sem þarf að sinna vel. Ég missi aldrei áhugann á því sem ég er að gera,“ segir Halldór í Henson. Morgunblaðið/Árni Sæberg * Ég man eftir umræðum í gamla daga í Félagi íslenskra iðn-rekenda þar sem margir sáu fyrir sér að íslenskur iðnaðurlegðist í rúst ef við gerðumst meðlimir í EFTA og voru sannfærðir um að til dæmis íslenskur sælgætisiðnaður færi fjandans til ef mackintosh-dollur fengjust hér í búðum. Þær voru smyglgóss á þessum tíma og fólk var að pukrast með þær í handfarangri. 25.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.